Fréttablaðið greinir frá þessu og hefur eftir Guðrúnu Kristmundsdóttur, eiganda og framkvæmdastjóra.
Þetta er í annað sinn á fáeinum mánuðum sem Bæjarins beztu hækkar verð á pylsunni, en í nóvember hækkaði verðið úr 470 krónum í sléttar 500 krónur.
Guðrún segir í samtali við Vísi að verðhækkunina nú megi fyrst og fremst rekja til hækkandi kostnaðar aðfanga. Verð hjá birgjum hafi hækkað sem skili sér til þeirra. Sömuleiðis hafi plastgjald áhrif, en Bæjarins beztu notar enn plaströr og plastlok og segir Guðrún að unnið sé að lausn hvað það varðar.
Guðrún segir að verð á gosi hafi sömuleiðis hækkað nú, úr 270 krónum í 300 krónur.
Verð á því sem margir hafa kallað „þjóðarréttur Íslendinga“ – pylsa og kók – hefur því með breytingunum hjá Bæjarins bestu hækkað úr 770 krónum í 850 krónur.