Sautján ára stelpur með glæsimörk úr aukaspyrnum í Pepsi Max í gær: Sjáðu mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júlí 2021 13:31 Liðsfélagar Þóru Björg Stefánsdóttur fagna henni eftir að hún skoraði beint úr aukaspyrnu á móti Fylki í gær. Vísir/Bára Tvær 2004 stelpur skoruðu frábær mörk með skotum beint úr aukaspyrnu í Pepsi Max deild kvenna í fótbolta í gær.
Þetta eru þær Jakobína Hjörvarsdóttir hjá Þór/KA og Þóra Björg Stefánsdóttir hjá ÍBV. Jakobína verður sautján ára eftir aðeins nokkra daga en Þóra Björg varð sautján ára í febrúar. Báðar eru þær örfættar og báðar komu þær sínu liði á bragðið í mikilvægum útisigrum en spennan er mikil í deildinni í sumar. Jakobína kom Þór/KA í 1-0 á 21. mínútu í Keflavík en norðankonur unnu leikinn á endanum 2-1. Þetta var fyrsta mark hennar í efstu deild. Aukaspyrnan var út á hægri kanti en frábært skot Jakobínu úr aukaspyrnunni sigldi í fjærhornið upp. Þóra Björg kom ÍBV í 1-0 á 45. mínútu á móti Fylki í Árbænum en Eyjakonur unnu leikinn 2-1. Þóra Björg var að skora sitt annað mark í efstu deild en hún skoraði einnig með mjög flottu skoti af vítateigslínu í sigri á Selfossi í Eyjum. Aukaspyrna Þóru var fyrir utan teiginn hægra megin. Hér fyrir neðan má sjá þessar tvær frábæru aukaspyrnur þessa efnilegu knattspyrnukvenna. Klippa: Sautján ára stelpur að setja hann úr aukaspyrnum í Pepsi Max
Pepsi Max-deild kvenna ÍBV Þór Akureyri KA Mest lesið Argentína - Ísland | Messi og félagar mæta strákunum okkar Fótbolti Völlurinn og stúkan á floti stuttu fyrir leik Íslands og Argentínu Fótbolti Krakkarnir fá frí í skólum vegna HM og foreldrarnir vinna heima Fótbolti Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Enski boltinn Miðar teknir af Íran dögum fyrir fyrsta leik Fótbolti Komst á US Open-mótið með son Tiger Woods sem kylfusvein Golf „Þær eru ekkert eðlilega góðar“ Fótbolti Mæta Argentínu í nótt: „Þetta er svona Bucket-list leikur Fótbolti Serena Williams fagnaði sigri í endurkomunni: „Ég var stressuð“ Sport „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings