Atvinnuleysi var 5,6 prósent í júní Árni Sæberg skrifar 6. ágúst 2021 10:25 Atvinnuleysi minnkaði milli mars og júní. Hagstofa Íslands Atvinnuleysi var 5,6 prósent í júní 2021 samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum úr vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 79,2 prósent og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 74,5 prósent.
Samanburður við maí 2021 sýnir að árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka, hlutfall starfandi og atvinnuleysi hélst nokkuð stöðugt á milli mánaða. Þetta segir í niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofu Íslands Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka og hlutfall starfandi jókst um 0,7 prósentustig og atvinnuleysi dróst saman um 0,1 prósentustig. Leitni hlutfalls starfandi hefur aukist um 0,9 prósentustig síðustu sex mánuði og leitni atvinnuleysis dregist saman um 0,3 prósentustig. Mæling vinnumarkaðsrannsóknarinnar áætlar að 216.900 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára hafi verið á vinnumarkaði í júní 2021 sem jafngildir 82,3 prósent atvinnuþátttöku. Af vinnuaflinu voru 206.700 starfandi og 10.200 atvinnulausir og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,4 prósent og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli 4,7% prósent. Starfandi unnu að jafnaði 36,3 stundir í júní 2021. Samanburður við júní 2020 sýnir að atvinnuleysi jókst um 0,4 prósentustig á milli ára og hlutfall starfandi jókst um 0,6 prósentustig. Áætlað er að 21.600 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu í júní 2021 sem jafngildir 9,8 prósent af vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 47,5 prósent atvinnulausir, 14,0 prósent tilbúnir að vinna en ekki að leita, 7,6 prósent í vinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 30,8 prósent vinnulitlir. Slaki á vinnumarkaði var nánast sá sami nú í júní 2021 og í júní 2020 þegar hann mældist 10,0 prósent. Niðurstöður vinnumarkaðsrannsóknar fyrir júní 2021 ná til fimm vikna frá 31. maí til og með 4. júlí. Í úrtak völdust af handahófi 1.898 einstaklingar á aldrinum 16-74 ára með lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.867 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 1.182 einstaklingum sem jafngildir 63,3 prósent svarhlutfalli.
Vinnumarkaður Mest lesið „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent Fleiri fréttir „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Sjá meira