Hverjum er ekki treystandi fyrir heilbrigðismálum? Gunnar Smári Egilsson skrifar 8. ágúst 2021 08:30 Undanfarin 30 hefur Sjálfstæðisflokkurinn setið í ríkisstjórn í 26 ár. Þar af hefur flokkurinn ráðið fjármálaráðuneytinu í 25 ár. Allan þennan tíma hefur verið rekin sveltistefna gagnvart opinberri þjónustu. Stærsti sigurinn eyðilagður Í upphafi þessa tímabils var heilbrigðisþjónusta svo til gjaldfrjáls en Sjálfstæðisflokkurinn innleiddi gjaldtöku í kerfið, tók til við að rukka sjúklinga í stað þess að innheimta skatta af fólki meðan það var fullfrískt. Í dag er staðan sú að meira en helmingur láglaunakvenna hefur neitað sér um heilbrigðisþjónustu vegna kostnaðar. Sama á við um atvinnulausa og öryrkjar, helmingur beggja hópa hefur þurft að neita sér um heilbrigðisþjónustu. Gjaldfrjáls heilbrigðisþjónusta fyrir alla var eitt helsta baráttumál alþýðunnar á síðustu öld. Sú barátta vannst að stóru leyti. Sjálfstæðisflokknum tókst hins vegar með aðstoð annarra flokka að snúa þessum sigur almennings niður í tap. Ísland er verra á eftir. Gjaldtakan hefur ekki styrkt rekstur heilbrigðiskerfisins, enda var það aldrei ætlunin. Að stóru leyti fara peningarnir sem innheimtast í að standa undir innheimtunni sjálfri. Tilgangur gjaldtökunnar er að innleiða markaðsviðskipti inn í almannaþjónustu, venja fólk við að kaupa heilbrigðisþjónustu eins og hverja aðra vöru eða þjónustu. Markmið er að ná heilbrigðiskerfinu Sveltistefna Sjálfstæðisflokksins gagnvart heilbrigðiskerfinu hefur það markmið að einkavæða sem stærstan hluta þess. Almenningur var ekki aðeins vaninn við að greiða fyrir þá þjónustu sem áður var borgað fyrir með sköttum, heldur var á sama tíma dregið úr fjárveitingum til heilbrigðiskerfisins svo þjónustan hrörnaði, biðlistar lengdust, starfsskilyrði versnuðu og geta kerfisins til að þroskast og dafna hvarf. Þá gerði Sjálfstæðisflokkurinn samninga við einkaaðila sem buðu upp á styttri biðlista, nýrri tækni og skaplegra starfsumhverfi. Og þá steig Sjálfstæðisflokkurinn fram og sagði: Sjáið þið hversu einkageirinn er betur til þess fallinn en hið opinbera að sjá um heilbrigðisþjónustu? Síðustu áratugi hafa framlög ríkisins til einkarekinnar heilbrigðisþjónustu aukist mun meira en framlög til opinberrar þjónustu. Á sama tíma og ríkisvaldið, undir stjórn Sjálfstæðisflokksins, hefur ekki aukið framlög til opinberra stofnana í takt við öldrun þjóðarinnar og þjónustuþörf hefur það ýtt undir einkarekstur. Stefna er að veikja opinbera kerfið en styrkja það einkarekna. Markmið þessara stefnu er ekki að tryggja heilbrigði landsmanna. Markmiðið er að ná framlögum ríkissjóðs til heilbrigðismála undir einkafyrirtæki, að breyta því sem áður var samfélagsþjónustu í almannaþágu í markaðsviðskipti sem færa aukinn auð til hinna fáu ríku. En það eru ekki aðeins fjármunir sem eru færðir til hinna fáu ríku heldur yfirráð yfir kerfinu. Ákvarðanir um þróun þess og uppbyggingu eru fluttar frá almannavaldinu, þar sem hver maður hefur eitt atkvæði, út á markaðinn, þar sem hver króna hefur eitt atkvæði, og hin ríku ráða öllu. Markmiðið er að auka við auð og völd hinna ríku. Og til þess þarf að ná fé og völdum af almenningi. Kórónafaraldurinn afhjúpaði sveltistefnuna Þegar kórónafaraldurinn reið yfir heiminn kom í ljós hverjar eru afleiðingar þeirrar sveltistefnu sem auðvaldsflokkar á borð við Sjálfstæðisflokkinn höfðu rekið víða um lönd. Í þeim löndum sem einkavæðing heilbrigðiskerfisins hafði gengið lengst urðu afleiðingarnar verstar. Þar sem einkaaðilar höfðu tekið yfir öldrunarþjónustu dó gamla fólkið í hrönnum. Lærdómur kórónufaraldursins var að þau lönd sem höfðu öflugasta almenna og opinbera heilbrigðiskerfið stóðu faraldurinn best af sér. Hér heima mátti varla tæpara standa. Sveltistefna undanfarinnar ára og áratuga hafði fækkað svo gjörgæslurýmum að fjölga þurfti þeim í neyðaraðgerð. Staða Landspítalans var svo veik að hann fór á neyðarstig strax við upphaf fyrstu bylgju. Til að mæta kröfum sveltistefnunnar hafði spítalinn verið rekinn eins hótel árum saman, stefnt að góðri nýtingu rúma í stað þess að geta í áföllum varið líf og heilsu landsmanna. Íslenska heilbrigðiskerfið stóð cóvid af sér að mestu. Læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk lét hið laskaða kerfið ganga. Þetta fólk brást við af dugnaði og ósérhlífni en líka útsjónarsemi, eins og uppbygging göngudeildar cóvid sýndi vel. Laskað kerfi eftir langvarandi sveltistefnu Sjálfstæðisflokksins komst í gegnum faraldurinn, var dregið í gegnum hann af starfsfólkinu. Síðan reis þriðja stóra bylgja cóvid-smita. Það gerðist vegna oftrúar á virkni bóluefna, en ekki síður vegna áherslu Sjálfstæðisflokksins á að fella niður sóttvarnir á landamærum sem allra fyrst að kröfu eigenda ferðaþjónustufyrirtækja. Strax á upphafsdögum þessarar bylgju kom í ljós hversu veikt heilbrigðiskerfið var. Það hrikti í stoðum þess, það var of illa manna, starfsfólkið var orðið úrvinda eftir að hafa keyrt hið laskaða kerfi í gegnum fyrri bylgjur. Ósvífnasti ráðherra lýðveldistímans Þá gerðist sá undarlegi atburður að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, þess flokks sem ber allra mesta ábyrgð á veikri stöðu heilbrigðismála, flokkur sem hefur gegn vilja mikils meirihluta landsmanna svelt heilbrigðiskerfið og vísvitandi veikt það áratugum saman; þá stóð þessi maður fyrir utan Ráðherrabústaðinn og hellti sér yfir starfsfólk heilbrigðiskerfisins og sagði að það bæri alla sök á krísunni. Bjarni Benediktsson hefur fyrir löngu sannað sig sem ósvífnasta stjórnmálamann lýðveldistímans, en þarna fór hann langt fram úr sjálfum sér. Jafnvel dyggum Sjálfstæðisflokksmönnum blöskraði. Hvernig dirfist þessum manni að hella sér yfir fólkið sem af ósérhlífni og dugnaði bjargaði því sem bjargað varð innan heilbrigðiskerfis sem flokkurinn, sem hann er formaður fyrir, hafði vísvitandi veikt frammi fyrir smitbylgju sem að stóru leyti má rekja til stefnu Sjálfstæðisflokksins í sóttvörnum? En ósvífni Bjarna var ekki aðeins bundin við að kenna starfsfólki heilbrigðiskerfisins um stöðuna. Til að bæta gráu ofan á svart lýsti Bjarni því yfir að hann ætlaði ekki að bregðast við bráðavandanum með það markmið að vernda sjúka og viðkvæma, heldur ætlaði hann að nota þetta ástand til að knýja í gegn breytingar á heilbrigðiskerfinu sem myndu hjálpa honum við að ná fram markmiðum sveltistefnunnar; að koma sem stærstum hluta heilbrigðisþjónustu í hendur einkafyrirtækja, sem greiða munu eigendum sínum ríkulegan arð. Bjarni ætlaði að græða á krísunni sem honum bar að leysa. Munið eftir Bjarna í kjörklefanum Ef einhver á Íslandi heldur enn að Sjálfstæðisflokknum sé treystandi fyrir heilbrigðismálum ætti sá að leita uppi viðtölin sem Bjarni Benediktsson gaf á föstudaginn síðasta. Spilið þessi viðtöl og spyrjið ykkur á meðan: Myndi ég treysta þessum manni fyrir heilbrigðiskerfinu? Munið svar ykkar þegar þig gangið til kosninga 25. september. Þær kosningar snúast um framtíð samfélagsins. Þau sem vilja sveltistefnu, aukna gjaldtöku og niðurbrot opinberrar heilbrigðisþjónustu en innleiðingu markaðsviðskipta í heilbrigðiskerfið geta kosið Sjálfstæðisflokkinn. Þið hin ættuð að kanna áherslur annarra flokka í heilbrigðismálum og kjósa þann flokk sem kemst næst ykkar skoðunum og væntingum um þróun samfélagsins. Þið getið stoppað Bjarna á kjördag með því að aðra stefnu en Sjálfstæðisflokkurinn og hjálparflokkar hans hafa rekið. Ef þið viljið þá getum við stoppað sveltistefnu Sjálfstæðisflokksins eftir sjö vikur. Kosningarnar snúast um baráttuna um Ísland. Viljum við framtíð sem er aðeins góð fyrir hin fáu ríku eða viljum við byggja upp samfélag sem þjónar öllum? Höfundur er félagi í Sósíalistaflokknum og leiðir lista flokksins í Reykjavík norður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Skoðun: Kosningar 2021 Sósíalistaflokkurinn Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Gunnar Smári Egilsson Mest lesið Vindmyllufyrirtæki í áskrift hjá íslenskum almenningi Linda Jónsdóttir Skoðun Ár vondra vinnubragða í Stúdentaráði HÍ Katla Ólafsdóttir,Mathias Bragi Ölvisson Skoðun Aulatal um að Evrópa sé veik og getulaus Ole Anton Bieltvedt Skoðun Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu Birgitta Þorsteinsdóttir Skoðun Hvers virði er vara ef hún er ekki seld? Jón Jósafat Björnsson Skoðun Sjö mýtur um loftslagsbreytingar Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir Skoðun Metnaðarfull markmið og stórir sigrar Halla Helgadóttir Skoðun „Evrópa er í hnignun“ – Er það samt? Lítum aðeins á söguna Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Pírati pissar í skóinn sinn Helgi Áss Grétarsson Skoðun Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði Ólafur Ingólfsson Skoðun Skoðun Skoðun „Evrópa er í hnignun“ – Er það samt? Lítum aðeins á söguna Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Vindmyllufyrirtæki í áskrift hjá íslenskum almenningi Linda Jónsdóttir skrifar Skoðun Metnaðarfull markmið og stórir sigrar Halla Helgadóttir skrifar Skoðun Hvers virði er vara ef hún er ekki seld? Jón Jósafat Björnsson skrifar Skoðun Aulatal um að Evrópa sé veik og getulaus Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Ár vondra vinnubragða í Stúdentaráði HÍ Katla Ólafsdóttir,Mathias Bragi Ölvisson skrifar Skoðun Mannúð og hugrekki - gegn stríðsglæpum og þjóðarmorði Ólafur Ingólfsson skrifar Skoðun Framtíð menntunar – byggjum á trausti, ekki tortryggni Helga Kristín Kolbeins skrifar Skoðun Fé án hirðis Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar Skoðun Gæludýr geta dimmu í dagsljós breytt Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Myllan sem mala átti gull Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Sjö mýtur um loftslagsbreytingar Kristinn Már Hilmarsson,Elva Rakel Jónsdóttir skrifar Skoðun Pírati pissar í skóinn sinn Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Fáum presta aftur inn í skólana Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Rösk og reiðubúin fyrir landsbyggðina Hópur Röskvuliða skrifar Skoðun Icelandic Learning is a Gendered Health Issue Logan Lee Sigurðsson skrifar Skoðun Goðsögnin um UFS-sjóði sem róttækar „woke"- fjárfestingar Már Wolfgang Mixa skrifar Skoðun Framtíð Öskjuhlíðar Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Vanhæfur Sjálfstæðisflokkur Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Mælt fyrir miklum kjarabótum öryrkja og aldraðra Inga Sæland skrifar Skoðun Mannréttindabrot og stríðsglæpir Rússa í Úkraínu Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar Skoðun Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar Skoðun Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Getur Sturlunga snúið aftur? Leifur B. Dagfinnsson skrifar Skoðun Vaka stendur með Menntavísindasviði í verki Gunnar Ásgrímsson skrifar Skoðun Vorbókaleysingar Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Er þetta í alvöru umdeild skoðun fámenns hóps? Snorri Másson skrifar Skoðun Liðveisla fyrir öll Atli Már Haraldsson skrifar Sjá meira
Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu Birgitta Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu Birgitta Þorsteinsdóttir skrifar
Skoðun Áskorun til Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og Háskóla Íslands Ríkharður Ólafsson,Styrmir Hallsson skrifar
Skoðun Ákvarðanir teknar í Reykjavík – afleiðingarnar skella á okkur Hópur Framsóknarmanna í sveitarstjórnum skrifar
Skoðun Snjallborgin eða Skuggaborgin Reykjavík: Gervigreindarknúið höfuðborgarsvæði Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Ógnin sem við sjáum ekki – Hið falda tungumál ungu kynslóðarinnar á netinu Birgitta Þorsteinsdóttir Skoðun