Telur galið að stóru fjölmiðlarnir fái ríkisstyrki Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 3. september 2021 15:57 Þórhallur Gunnarsson er framkvæmdastjóri miðla Vodafone og Stöðvar 2. Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla hjá Vodafone og Stöð 2 segir að sér finnist það galið að fyrirtæki á borð við Sýn og Árvakur, sem reki stóra fjölmiðla, njóti sérstaks ríkisstuðnings. Taka þurfi á fyrirferð RÚV á auglýsingamarkaði og erlendra aðila sem starfi samkvæmt öðrum leikreglum en innlend fyrirtæki á auglýsingamarkaði.
Þetta er á meðal þess sem kom fram í viðtali við Þórhall í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 23 einkareknum fjölmiðlum var alls úthlutað 400 milljónum í fyrra til þess að mæta efnahagsáhrifum heimsfaraldurs kórónaveiru. Alþingi samþykkti fyrr á árinu að áfram yrðu einkareknum fjölmiðlum veittir sambærilegir styrkir út næsta ár og sóttu 22 fyrirtæki um styrk. Árvakur og Sýn þáðu hæstu styrkina Árvakur, sem á og rekur Morgunblaðið, mbl.is og K100, og Sýn, sem á og rekur Stöð 2, Bylgjuna, Vísi og fleiri fjölmiðla, þáðu hæstu styrkina í fyrra. Árvakur fékk 99,9 milljónir en Sýn 91,1 milljón. Þannig þáðu þessi tvö fyrirtæki tæplega helming þeirrar upphæðar sem stóð til boða. Þórhallur, sem er framkvæmdastjóri þeirrar deildar sem inniheldur fjölmiðlana í eigu Sýnar, er á því að stór fjölmiðlafyrirtæki ættu að geta staðið á eigin fótum. „Það er náttúrulega bara galið að við séum að þiggja peninga af ríkinu og séum styrkt af ríkinu. Við erum gríðarlega öflugur fjölmiðill, með fjölda áskrifenda. Við erum með ótal tækifæri,“ sagði Þórhallur í Bítinu í morgun. Ekkert væri þó að því að styrkja minni eða sérhæfðari fjölmiðla. „Mér finnst alveg sjálfsagt að styrkja fjölmiðla sem standa höllum fæti og eru minni miðlar eða landsbyggðarmiðlar eða þeir sem leggja stund á rannsóknarblaðamennsku eingöngu. En að svona stórir miðlar eins og Árvakur eða við séum að njóta einhvers sérstaks ríkisstuðnings, mér finnst það bara galið,“ sagði Þórhallur. Hlusta má á viðtal við Þórhall í Bítinu hér fyrir neðan. Umræðan um ríkisstyrki hefst þegar sex mínútur eru liðnar af klippunni. Rímar þetta illa við það sem fram kom í máli Sigríðar Daggar Auðunsdóttur, formanni Blaðamannafélags Íslands, á Rás 1 í vikunni þar sem hún sem sagði að ekki væri spurning um hvort ætti að styrkja fjölmiðla á Íslandi, heldur um hversu mikið. Staðan væri það slæm að valið stæði á milli ríkisstyrktra fjölmiðla eða engra fjölmiðla. „Ég trúi því að í ljósi umræðunnar undanfarna vikur og mánuði, að stjórnmálaflokkar geri sér grein fyrir því að þetta er í rauninni bara spurning um það hvort þú viljir fjölmiðla sem eru ríkisstyrktir eða enga fjölmiðla. Við erum komin þangað,“ segir Sigríður Dögg í samtali við Þröst Helgason í Svona er þetta á Rás 1. Setja þurfi leikreglur sem gildi til jafns um alla á auglýsingamarkaði Skilja mátti á Þórhalli í Bítinu að hann teldi að með ríkisstyrkjum til fjölmiðla væri ríkisvaldið að reyna að leysa rekstrarvanda allra fjölmiðla, því að það gæti ekki leyst eitt vandamál. Þú segir eitt vandamál og það er að taka RÚV af auglýsingamarkaði? „Já, ef að ríkið kýs að vera með RÚV á auglýsingamarkaði og telja það að það haldi Ríkisútvarpinu á lífi, þá bara gera þau það. En ég ætla ekki að eyða orku minni í að velta því fyrir mér hvernig RÚV á að lifa. Auðvitað vitum við að RÚV yrði miklu, miklu betri miðill án auglýsinga. Það er bara staðreynd. Þau eiga bara að einbeita sér að því að nota þann pening sem þau fá, af afnotagjöldum, það eru heilir fimm milljarðar sem þú getur unnið með. Það er kostnaður að reka auglýsingadeildir, það er bara gríðarlegur kostnaður,“ sagði Þórhallur. Í máli hans kom einnig fram að ríkið gæti einnig sótt sér fé til að að aðstoða fjölmiðla í erfiðum rekstri hér á landi með því að skattleggja erlenda miðla sem eru inni á íslenskum auglýsingamarkaði, án þess að greiða skatta hér á landi, til að mynda Facebook. „Þessir aðilar eru að selja auglýsingar inn hérna inn á íslenskum markaði án þess að tekin sé af því íslenskur skattur eða eitthvað slíkt. Þannig að þau eru bara frjáls inn á þessum markaði og eru með miklu betri kjör einfaldlega vegna þess að þau leika lausum á hala á íslenskum markaði, alveg þvert gegn öðrum miðlum. Það eru engar reglur um efnisveiturnar sem eru sambærilegar þeim sem við þurfum að gangast undir. Þannig að ef stjórnvöld ætla að afla sér tekna, til dæmis til þess að styðja litlu miðlana, þá geta þau fjármagnað þau bara með því að setja reglur, skýrar reglur á samfélagsmiðla og erlenda fjölmiðla inn á þessum markaði,“ sagði Þórhallur. Vísir er í eigu Sýnar.
Fjölmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Samfélagsmiðlar Bítið Ríkisútvarpið Mest lesið Snjallvinna er ekki það sama og fjarvinna eða hybrid Atvinnulíf Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Viðskipti innlent Trump hækkar tolla á öll lönd Viðskipti erlent Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 Samstarf Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Samstarf Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Viðskipti innlent Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Atvinnulíf „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Viðskipti innlent Nova kaupir Ofar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Sjá meira