Segir gæðamálin komin í lag og búið sé að tryggja mönnun til lengri tíma Hólmfríður Gísladóttir skrifar 13. september 2021 06:20 Tölvukerfið sem notað er við úrlestur brjóstamynda styður tvíblindan úrlestur og þá hefur Landspítalinn gripið til ýmissa aðgerða til að tryggja að gæðamál séu í lagi á Brjóstamiðstöðinni sem nú er starfrækt við Eiríksgötu.
Þetta segir Maríanna Garðarsdóttir, forstöðumaður rannsóknarþjónstu Landspítalans, en Vísir greindi frá því á dögunum að tveir læknar sem sinntu myndgreiningum fyrir Brjóstamiðstöðina hefðu látið af störfum í sumar vegna óánægju með gæðamál. „Við sem sagt tókum við framkvæmd og úrlestri brjóstaskimana síðustu áramót og þegar verið var að undirbúa flutninginn á sínum tíma höfuð við samband við framleiðanda kerfisins sem notað er á röntgendeildinni,“ útskýrir Maríanna. „Þá fullyrðir framleiðandinn að kerfið sé gott til að lesa úr brjóstarannsóknum en þegar á hólminn var komið kom í ljós að það uppfyllti ekki kröfur um tvöfaldan úrlestur.“ Það sem Maríanna vísar til er að gæðaviðmið gera ráð fyrir að tveir röntgenlæknar skoði hverja einustu mynd. Annar á ekki að vita að hvaða niðurstöðu hinn komst fyrr en eftir á, því ef niðurstöðurnar eru ekki samhljóma er myndin skoðuð í þriðja sinn. Þetta var sumsé ekki hægt að tryggja strax eftir flutning verkefnisins og þá komu fleiri hnökrar í ljós, sem meðal annars fólust í því að einstaklingar fluttust ekki rétt á milli hópa og að læknarnir fengu ekki upplýsingar um allar þær myndir sem biðu úrlestrar. Að sögn Magnúsar Baldvinssonar, annars læknanna sem hættu, varð þetta til þess að þeir treystu sér ekki til að vinna áfram að verkefninu en Maríanna segir þetta hins vegar komið í lag núna. Búið að vinna á kúfnum Það sem gerst hefur í millitíðinni er að Landspítalinn gerði samning við danska fyrirtækið Senologia ApS. Íslensku læknarnir hættu störfum snemma í júlí þegar sumarfrí hófust á Brjóstamiðstöðinni en rannsóknir hófust á ný í ágúst, þótt ekkert væri lesið úr myndum þann mánuðinn. Fyrstu vikunna í september mættu starfsmenn Senologia til starfa og að sögn Maríönnu er nú búið að vinna á kúfnum sem safnaðist upp í ágúst. En er þetta ákjósanlegt fyrirkomulag, að útvista úrlestrinum til Danmerkur? „Það stóð upphaflega til að samþætta alla starfsemina þannig að klínískar rannsóknir og skimunarúrlesturinn yrði unninn innanhúss,“ segir Maríanna en klínískar rannsóknir eru framkvæmdar vegna einkenna eða ábendinga um krabbamein. „Við vildum fá heildstæðan hóp til að sinna þessu því við höfum verið að leysa mönnunarvandann með erlendum læknum sem hafa verið að koma hingað stutta stund í einu. En við viljum hafa samfellu og einhvern sem þekkir til verklagsins.“ Það muni gerast nú, þegar danska fyrirtækið hefur tekið yfir og allir muni vinna eftir sama verklaginu. Skortur á röntgentæknum hafi löngum háð íslenska heilbrigðiskerfinu, og raunar heilbrigðiskerfum út um allan heim, en með samþættri þjónustu Brjóstamiðstöðvar opnist ný tækifæri fyrir sérnámslækna að kynna sér og starfa við brjóstamyndgreiningar. Verkefnið í haust að forma hina eiginlegu Brjóstamiðstöð Læknarnir sem hingað koma frá Danmörku munu dvelja hér í um tvær vikur í senn og starfa við hlið íslenskra lækna, sem þegar eru við störf hjá Brjóstamiðstöðinni. Að sögn Maríönnu verða þetta hins vegar alltaf sömu einstaklingarnir sem skiptast á að koma og því hefur hún ekki áhyggjur af því að aðkoma Senologia muni flækja teymisvinnuna í kringum þær konur sem greinast með krabbamein. „Við lítum svo á að nú sé þetta komið á gott ról og búið að tryggja mönnun til langs tíma,“ segir Maríanna. „Verkefnið nú í haust er að búa til hina eiginlegu Brjóstamiðstöð, þar sem verður að finna allar sérgreinar sem koma að; skurðlækna, krabbameinslækna, meinafræðinga, röntgenlækna, sérfræðinga í hjúkrun og svo framvegis.“ Maríanna segir um að ræða gríðarstórt verkefni en á því sé mikill áhugi og mikill hugur í fólki að koma á fót alhliða þjónustumiðstöð að erlendri fyrirmynd. Hún leggur áherslu á að unnið sé að gæðavísum hjá Embætti landlæknis og að engin bið sé eftir klínískum rannsóknum.
Skimun fyrir krabbameini Landspítalinn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Fleiri fréttir Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Sjá meira