Leicester enn án sigurs í Evrópudeildinni 30. september 2021 18:38 Leicester hefur aðeins tekið eitt stig úr fyrstu tveim leikjum sínum í Evrópudeildinni. Adam Nurkiewicz/Getty Images Mahir Emreli kom Pólverjunum yfir eftir hálftíma leik eftir stoðsendingu frá Josue og staðan var því 1-0 þegar að flautað var til hálfleiks. Gestirnir frá Leicester færðu sig framar á völlinn í seinni hálfleik og sköpuðu sér nokkur álitleg færi til að jafna leikinn. Á 65. mínútu átti Jannik Vestergaard skalla í átt að marki eftir hornspyrnu Kiernan Dewsbury-Hall, en heimamenn náðu að sópa boltanum af marklínunni. Ekki tókst gestunum að jafna metin og niðurstaðan varð því 1-0 sigur Legia sem er nú með sex stig eftir að hafa unnið fyrstu tvo leiki sína í C-riðli Evrópudeildarinnar. Leicester hefur ekki byrjað jafn vel og hefur nú aðeins eitt stig eftir fyrstu tvo leikina, en liðið gerði 2-2 jafntefli við Napoli í fyrsta leik. Evrópudeild UEFA
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Fram 5-0 | Elías Már með þrennu í stórsigri Víkings í toppslagnum Íslenski boltinn
Uppgjörið og viðtöl: Breiðablik - KA 3-1| Mikilvægur sigur Blika en vandræði KA halda áfram Íslenski boltinn