Mourinho þurfti að kaupa fokdýra skó fyrir hetju Roma Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. nóvember 2021 15:31 José Mourinho þurfti að skreppa í skóbúð í morgun. getty/getty José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, þarf að efna loforð sem hann gaf Felix Afena-Gyan, hetju liðsins gegn Genoa, og kaupa rándýra skó handa honum.
Afena-Gyan kom inn á sem varamaður á 75. mínútu í leik Genoa og Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í gær. Þá var staðan markalaus. Afena-Gyan var ekki lengi að láta að sér kveða því á 82. mínútu kom hann Rómverjum yfir. Hann bætti svo öðru marki við í uppbótartíma. Afena-Gyan er fyrsti leikmaðurinn sem er fæddur 2003 sem skorar í ítölsku úrvalsdeildinni. Ganverjinn er jafnframt þriðji yngsti erlendi leikmaður til að skora í ítölsku úrvalsdeildinni á eftir Valeri Bojinov (sautján ára og 337 daga) og Alexandre Pato (átján ára og 147 daga). Afena-Gyan var átján ára og 306 daga þegar hann skoraði mörkin tvö í gær. Felix Afena-Gyan skoraði sín fyrstu mörk fyrir aðallið Roma í gær.getty/Danilo Vigo Afena-Gyan fagnaði fyrra marki sínu með Mourinhos og minnti hann á loforð sem hann hafði gefið honum. „Ég hafði lofað Felix að kaupa handa honum skó sem hann langar í. Þeir eru mjög dýrir og kosta átta hundruð evrur. Hann hljóp til mín og minnti mig á það! Það fyrsta sem ég geri á morgun er að kaupa skóna handa honum,“ sagði Mourinho eftir leikinn í gær. Afena-Gyan kom til Roma frá EurAfrica í heimalandinu í mars á þessu ári. Leikurinn í gær var hans þriðji fyrir aðallið Roma. Með sigrinum í gær komst Roma upp í 5. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.
Ítalski boltinn Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport Leikurinn í kvöld klárast rétt fyrir miðnætti og því dræm mæting Sport Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Handbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Fleiri fréttir Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjá meira