„Ég hef varið stórum hluta af frítíma mínum síðustu ár í að kynna mér bálkakeðjutækni og fjárfest í rafmyntum. Þetta er ört vaxandi eignaflokkur þar sem ég sé mikil tækifæri á næstu árum,“ er haft eftir Daða, sem réð sig til Fossa árið 2018 og hefur starfað við verðbréfamiðlun í 15 ár, í tilkynningu um starfslokin.
Við starfslok Daða kemur Arnar Geir Sæmundsson yfir í teymi markaðsviðskipta hjá Fossum mörkuðum en hann er nú hluti af teymi fyrirtækjaráðgjafar Fossa. Áður en hann kom til starfa hjá Fossum fyrir tæpu ári síðan starfaði hann á fjárfestingasviði TM hf. og sem forstöðumaður fjárstýringar hjá Lykli fjármögnun hf. Þar áður starfaði Arnar Geir í markaðsviðskiptum Arctica Finance hf. og H.F. Verðbréfum hf.
Arnar Geir er með B.Sc. gráðu í fjármálaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavik og Masters in Finance gráðu frá London Business School, auk þess að hafa lokið prófi í verðbréfaviðskiptum