Á gæðaeftirlitið ekki við um fólk? Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar 14. febrúar 2022 19:00 Ég naut þeirra forréttinda að fá að alast upp á heimili þar sem afi minn og amma bjuggu einnig. Ég man eftir því að hafa læðst upp í rúm til þeirra og hjúfrað mig að ömmu, stungið tánum á milli fótanna á henni en þá sagði hún ,, Ó þetta eru eins og frostkúlur.” Þegar ég kom heim úr skólanum var ætíð tekið á móti mér, þegar lengja átti helgarnar með vetrarfrís dögum fór ég í sveitina með þeim og var almennt mikið með þeim á uppvaxtarárum mínum. Ég ólst upp við að borða ekta íslenskan mat og þroskuðust bragðlaukarnir mínir langt á undan jafnöldrum mínum. Fyrir u.þ.b. 9 árum síðan þurfti amma mín að flytja á heimili sem bauð upp á frekari aðstoð. Hún er með heilabilun en hún hafði glímt við hana í nokkur ár áður en hún fluttist á hjúkrunarheimili. Biðlistinn var langur og ég man að við höfðum öll áhyggjur af því að hún færi sér að voða sökum sjúkdómsins áður en hún kæmist að. Loksins var röðin komin að henni, og fyrir mikla mildi fékk hún búsetu úrræði í nálægð við gamla heimilið hennar. Afi var ennþá heima hjá okkur en þessar breytingar voru erfiðar fyrir okkur öll en ekki síst hann. Konan hans hafði flutt í burtu og bjó á öðru heimili með öðru veikburða fólki sem þarfnaðist aðstoðar líka. Afi fór í heimsókn til ömmu á hverjum degi, hann skipulagði daginn sinn þannig að hann kæmi aldrei seinna en kl. 3 til ömmu og áttu þau alltaf notalega stund saman. Foreldrar mínir og við systurnar lögðum einnig í vana okkar að heimsækja hana eins oft og völ var á hverju sinni. Amma versnaði umtalsvert eftir komuna á nýja heimilið, en hún fór fljótlega í hjólastól og gat illa borðað án aðstoðar. Allar athafnir daglegs lífs þurfti hún aðstoð við og þetta ristir dýpra en nokkurn grunar að horfa upp á manneskju sem maður elskar svo heitt verða jafn veikburða og raun ber vitni. Nú 9 árum seinna, hefur afa hrakað líka og eru þau hjónakornin loks sameinuð á umræddu hjúkrunarheimili, það er frekar ný tilkomið þar sem afi fékk pláss einungis fyrir nokkrum mánuðum. Heimilislífið er töluvert breytt og við fjölskyldan erum í sífellu að læra að lifa upp á nýtt. Við söknum öll afa, en skiljum að hans þarfir eru ofar öllu. Ég hins vegar verð að játa að ég er býsna reið út í það samfélag sem við búum í, nú þekki ég ekki hvernig þetta er í öðrum löndum og varðar í raun ekkert um það. Mér finnst okkur skorta eftirlit með þessum stofnunum. Það er ekkert gæðaeftirlit, vinnueftirlit eða heilbrigðiseftirlit með þessu fólki okkar. Þarna er verið að vinna með fólk, og oft fólk sem getur hvorki tjáð sig né hreyft sig. Vinnuvélar og alls kyns önnur tæki eru undir eftirliti Vinnueftirlits? Allar lyftur landsins fá á ári hverju heimsókn frá Vinnueftirlitinu til viðbótar því eftirliti sem framleiðandi veitir? Samkeppniseftirlitið hefur í nógu að snúast og ekki má gleyma eftirliti með póst-og fjarskiptaþjónustu? Ég geri mér fulla grein fyrir því að inni á umræddum heimilum starfar fjöldinn allur af dásamlegu fólki sem vinnur einstaklega óeigingjarnt starf, það leggur allt sitt í að veita öllu heimilisfólki bestu aðstoð sem völ er á.Það er þó afar erfitt að horfa upp á slys sem geta gerst inn á umræddum heimilum og bölva þeim þegjandi og hljóðalaust. Oft á tíðum þegar við fjölskyldan heimsækjum okkar fólk eru þau þyrst og þurfa á klósett. Þau drekka jafnvel hjá okkur fleiri glösin af vatni og það er ekki laust við að maður verði fremur vonsvikin. Ég geri mér fulla grein (enda sjálf unnið á slíkum heimilum) að gamalt fólk biður ekki um að drekka. En það þýðir samt sem áður ekki að þau séu ekki þyrst, þeim skortir hæfnina í að tjá sig og láta vita ef eitthvað er að valda þeim óþægindum. Slys eins og byltur eru því miður allt of tíðar og tel ég að með ákveðnu eftirliti væri hægt að sporna við því, ekki alfarið en að einhverju leyti. Auðvitað gera slysin ekki boð á undan sér en við eigum að geta sagt okkur að manneskja sem hefur verið í hjólastól í tæp 8 ár þurfi að vera bundin við stólinn. Við eigum líka að geta treyst því að ef við sem ættingjar látum vita að eitthvað eitt sé farsælt fyrir viðkomandi að farið sé eftir því. Við eigum að geta trúað því og treyst að gamla fólkið okkar fái þá bestu aðhlynningu sem völ er á. Við eigum ekki að sætta okkur við að koma að þeim uppi í rúmi, heyrnartækin enn í boxinu, fölsku tennurnar í vatninu og stírurnar í augunum og klukkan að ganga 3 að degi til. Iðulega er þeim plantað fyrir framan barnaefni tímunum saman vegna þess að starfsfólkið þarf að sinna öðrum á deildinni. Ég hef alltof oft komið að ömmu minni einni að horfa út í tómið, þar sem hún hvorki veit hvar hún er eða í hvaða tilgangi. Það hefur ekkert upp á sig að spyrja heilabilaðan einstakling ,,Viltu nokkuð vera að fara fram í messu?“. Það þarf að drífa þau áfram með vingjarnlegum aðferðum þar sem samskipti og samskonar tómstundir spila gríðarlega stóran sess í lífi heilabilaðra. Ég vil árétta, enn og aftur, ég er með engu móti að gagnrýna starfsfólkið heldur hefur fjármagn til þessara málaflokka verið á skornum skammti undanfarin ár. Það minnsta sem ég get gert er að vekja athygli á þessum málstað og opna þannig umræðuna sem vonandi breytist til batnaðar. Það geri ég fyrir ömmu sem gerði allt fyrir mig, það geri ég líka fyrir afa sem hefði vaðið eld og brennistein fyrir mig, en ekki síst fyrir okkur hin sem horfum upp á aldraða fjölskyldumeðlimi verða útundan á Jafnréttisparadísinni Íslandi. Höfundur er lokaársnemi í grunnnámi á háskólastigi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Heilbrigðismál Eldri borgarar Mest lesið Áskorun til Þjóðkirkjunnar Skírnir Garðarsson Skoðun Ekki hluti af OKKAR Evrópu! Margrét Kristmannsdóttir Skoðun 30 milljarðar í útsvar en engin rödd í kosningum Róbert Ragnarsson Skoðun Jólakötturinn, ert það þú? Aldís Amah Hamilton,Hulda Jónsdóttir Tölgyes,Klara Ósk Elíasdóttir,Ragnheiður Gröndal,Rósa Líf Darradóttir,Valgerður Árnadóttir Skoðun Áminntur um sannsögli Jón Ármann Steinsson Skoðun Er aukin atvinnuþátttaka kostnaður fyrir samfélagið? Gunnlaugur Már Briem Skoðun Kjarninn í vörninni fyrir hagsmunum Íslands Þórður Snær Júlíusson Skoðun Er Ísland enn fullvalda? Magnús Árni Skjöld Magnússon Skoðun Kílómetragjald – Mun lækkun á bensíni og dísel skila sér til neytenda? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Mun húsnæðispakkinn hækka leigu og þar með verðbólguna? Sigrún Brynjarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Áminntur um sannsögli Jón Ármann Steinsson skrifar Skoðun Nvidia, Bitcoin og gamla varnarliðið: Hvað bíður Íslands? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Ekki hluti af OKKAR Evrópu! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Mikil aukning í unglingadrykkju – eða hvað? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kílómetragjald – Mun lækkun á bensíni og dísel skila sér til neytenda? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Er aukin atvinnuþátttaka kostnaður fyrir samfélagið? Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Stjórnmálaflokkar á öruggu framfæri ríkis og sveitarfélaga Jóhannes Bjarni Guðmundsson skrifar Skoðun 30 milljarðar í útsvar en engin rödd í kosningum Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Jólakötturinn, ert það þú? Aldís Amah Hamilton,Hulda Jónsdóttir Tölgyes,Klara Ósk Elíasdóttir,Ragnheiður Gröndal,Rósa Líf Darradóttir,Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Vaxtaokrið Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun Er Ísland enn fullvalda? Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Ó, Reykjavík Ari Allansson skrifar Skoðun Mun húsnæðispakkinn hækka leigu og þar með verðbólguna? Sigrún Brynjarsdóttir skrifar Skoðun Leggðu íslenskunni lið Hópur stjórnarmanna Almannaróms skrifar Skoðun Þegar framtíðin hverfur Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Upplýsingar, afþreying og ógnir á Netinu Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Samráð óskast: fjölmenningarstefna Reykjavíkurborgar Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Kjarninn í vörninni fyrir hagsmunum Íslands Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Til hamingju Ísland Sigurður Kári Harðarson skrifar Skoðun Vestfirðir til þjónustu reiðubúnir Þorsteinn Másson skrifar Skoðun Enn hækka fasteignaskattar í Reykjanesbæ Margrét Sanders skrifar Skoðun Áskorun til Þjóðkirkjunnar Skírnir Garðarsson skrifar Skoðun Samkennd án landamæra Guðrún Helga Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Réttindalaus rafmagnsvinna ógnar öryggi og dregur úr trausti Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Fjölmenning er ekki áskorun, hún er fjárfesting Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar Skoðun Ytra mat á ís Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jenný Árnadóttir skrifar Skoðun Starfslok vegna kennitölu: tímaskekkja sem flýtir öldrun Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Aukinn stuðningur við leigjendur í Reykjavík Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Frelsi frá kynhlutverkum: innsýn sem breytir samböndum Þórdís Filipsdóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög? Örvar Marteinsson skrifar Sjá meira
Jólakötturinn, ert það þú? Aldís Amah Hamilton,Hulda Jónsdóttir Tölgyes,Klara Ósk Elíasdóttir,Ragnheiður Gröndal,Rósa Líf Darradóttir,Valgerður Árnadóttir Skoðun
Kílómetragjald – Mun lækkun á bensíni og dísel skila sér til neytenda? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun
Skoðun Kílómetragjald – Mun lækkun á bensíni og dísel skila sér til neytenda? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar
Skoðun Stjórnmálaflokkar á öruggu framfæri ríkis og sveitarfélaga Jóhannes Bjarni Guðmundsson skrifar
Skoðun Jólakötturinn, ert það þú? Aldís Amah Hamilton,Hulda Jónsdóttir Tölgyes,Klara Ósk Elíasdóttir,Ragnheiður Gröndal,Rósa Líf Darradóttir,Valgerður Árnadóttir skrifar
Jólakötturinn, ert það þú? Aldís Amah Hamilton,Hulda Jónsdóttir Tölgyes,Klara Ósk Elíasdóttir,Ragnheiður Gröndal,Rósa Líf Darradóttir,Valgerður Árnadóttir Skoðun
Kílómetragjald – Mun lækkun á bensíni og dísel skila sér til neytenda? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun