Saka Kínverja um að hafa lýst upp herþotu með leysigeisla Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 21. febrúar 2022 08:03 Kiínversku herskipin tvö sem áströlsk yfirvöld segja að hafi verið á vettvangi þegar leysigeisla var beint að ástralskri herflugvél. Ástralski herinn. Áströlsk hernaðaryfirvöld eru ekki par sátt með kollega þeirra frá Kína, eftir að kínverskt herskip beindi kraftmiklum leysigeisla að ástralskri herþotu.
Atvikið átti sér stað í síðustu viku undan ströndum Ástralíu, í Arafura-hafinu, hafsvæði í Kyrrahafinu. Þar var áströlsk P-8A flugvél við eftirlit þegar herskip á vegum kínverska sjóhersins er sögð hafa lýst upp flugvélina með leysigeisla. Áströlsk yfirvöld segja atvikið hafa verið alvarlegt öryggisatvik sem hafi getað ógnað lífi og heilsu flugmanna flugvélarinnar. Í yfirlýsingu frá ástralska hernum er hegðunin fordæmd sem „óörugg og ófagmannleg hernaðarleg hegðun“, líkt og það er orðað. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Ástralir saka Kínverja um að beina leysigeislum að flugvélum. Árið 2019 greindu ástralskir flugmenn frá því að leysigeislum hafi ítrekað verið beint að flugvélum þeirra er flogið var yfir Suður-Kínahaf. Nokkur spenna hefur færst í hernaðarleg samskipti Kína og Ástalíu að undanförnu, ekki síst eftir að greint var frá því að Ástralir gerðu samkomulag við Breta og Bandaríkjamenn um kaup á kjarnorkukafbátum.
Kína Hernaður Ástralía Suður-Kínahaf Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Fleiri fréttir „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Bandaríkjaforseti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“ Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Sjá meira