Íslandsmeistararnir unnu nauman sigur og toppliðið valtaði yfir botnliðið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 2. apríl 2022 17:41 KA/Þór vann góðan sigur gegn HK í dag. Vísir/Hulda Margrét Tveir leikir voru á dagskrá í Olís-deild kvenna í handbolta í dag. Íslandsmeistarar KA/Þórs unnu þriggja marka sigur gegn HK, 26-23, og topplið Fram vann afar sannfærandi 18 marka sigur gegn botnliði Aftureldingar. Gestirnir í HK byrjuðu vel gegn Íslandsmeisturunum og skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins. HK-ingar héldu forystunni lengst af í fyrri hálfleik, en þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 13-14, HK í vil. Mikið jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik, en heimakonur í KA/Þór náðu loks þriggja marka forskoti þegar rúmar fimm mínútur veru til leiksloka. Það forskot létu þær aldrei af hendi og unnu að lokum góðan sigur, 26-23. Martha Hermannsdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir voru markahæstar á vellinum í dag með sjö mörk hvor fyrir norðankonur. Elna Ólöf Guðjónsdóttir var atkvæðamest í liði HK með sex mörk úr jafn mörgum skotum. Það var heldur minni spenna í Mosfellsbænum þar sem Afturelding tók á móti Fram. Heimakonur skoruðu eitt mark á fyrstu tíu mínútum leiksins og þegar flautað var til hálfleiks var staðan 9-21. Framkonur héldu áfram að auka forskot sitt í síðari hálfleik og unnu að lokum 18 marka sigur, 38-20. Steinunn Björnsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir skoruðu sex mörk hvor fyrir Fram og Katrín Helga Davíðsdóttir sjö fyrir Aftureldingu. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Olís-deild kvenna KA Þór Akureyri Fram HK Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira
Gestirnir í HK byrjuðu vel gegn Íslandsmeisturunum og skoruðu fyrstu þrjú mörk leiksins. HK-ingar héldu forystunni lengst af í fyrri hálfleik, en þegar gengið var til búningsherbergja var staðan 13-14, HK í vil. Mikið jafnræði var með liðunum í síðari hálfleik, en heimakonur í KA/Þór náðu loks þriggja marka forskoti þegar rúmar fimm mínútur veru til leiksloka. Það forskot létu þær aldrei af hendi og unnu að lokum góðan sigur, 26-23. Martha Hermannsdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir voru markahæstar á vellinum í dag með sjö mörk hvor fyrir norðankonur. Elna Ólöf Guðjónsdóttir var atkvæðamest í liði HK með sex mörk úr jafn mörgum skotum. Það var heldur minni spenna í Mosfellsbænum þar sem Afturelding tók á móti Fram. Heimakonur skoruðu eitt mark á fyrstu tíu mínútum leiksins og þegar flautað var til hálfleiks var staðan 9-21. Framkonur héldu áfram að auka forskot sitt í síðari hálfleik og unnu að lokum 18 marka sigur, 38-20. Steinunn Björnsdóttir og Þórey Rósa Stefánsdóttir skoruðu sex mörk hvor fyrir Fram og Katrín Helga Davíðsdóttir sjö fyrir Aftureldingu. Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olísdeildirnar í handbolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Olísdeildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Olís-deild kvenna KA Þór Akureyri Fram HK Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira