Með miklu betra sigurhlutfall á Ásvöllum í vetur heldur en heimakonur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. apríl 2022 16:00 Aliyah Collier hefur verið mögnuð með Njarðvíkurliðinu í vetur. Vísir/Bára Dröfn Haukakonur taka á móti stöllum sínum úr Njarðvík í kvöld í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvígi Subway deildar kvenna í körfubolta. Staðan er 1-1 í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari 2022. Ætli Haukakonur að lenda ekki aftur undir í einvíginu þá þurfa þær að gera eitt sem þeim hefur ekki tekist í þremur öðrum tilfellum á tímabilinu. Það er að vinna Njarðvíkurkonur á heimavelli sínum. Njarðvíkurliðið hefur mætt þrisvar sinnum á Ásvelli í vetur og unnið í öll skiptin. Fyrst átta stiga deildarsigur í október (66-58), þá átta stiga deildarsigur í febrúar (78-70) og loks ellefu stiga sigur í leik eitt í einvíginu (70-59). Það er líka fróðlegt að skoða sigurhlutfall Haukanna á Ásvöllum í vetur. Haukakonur eru aðeins með fimmtíu prósent sigurhlutfall á heimavelli sínum, bæði í deildinni (6 sigrar og 6 töp) sem og í úrslitakeppninni (1 sigur og 1 tap). Njarðvíkurkonur eru því með tvöfalt hærra sigurhlutfall á Ásvöllum í vetur (100 prósent) heldur en heimakonur (50 prósent). Haukakonur hafa af einhverjum ástæðum verið mun betri á útivelli í vetur þar sem liðið hefur unnið tólf af fimmtán leikjum sínum eða 80 prósent leikjanna. Leikur Hauka og Njarðvíkur hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Á undan verður upphitun Subway Körfuboltakvölds frá klukkan 18.45 á sömu rás og leikurinn verður síðan gerður upp að honum loknum. Sigurhlutfall á Ásvöllum í Subway deildinni í vetur: Njarðvíkurkonur 100 prósent (3 sigrar í 3 leikjum) Heimakonur í Haukum 50 prósent (7 sigrar í 14 leikjum) - Sigurhlutfall utan Ásvalla í Subway deildinni í vetur: Haukakonur 80 prósent (12 sigrar í 15 leikjum) Njarðvíkurkonur 59 prósent (16 sigrar í 27 leikjum) Subway-deild kvenna Haukar UMF Njarðvík Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fleiri fréttir Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Sjá meira
Ætli Haukakonur að lenda ekki aftur undir í einvíginu þá þurfa þær að gera eitt sem þeim hefur ekki tekist í þremur öðrum tilfellum á tímabilinu. Það er að vinna Njarðvíkurkonur á heimavelli sínum. Njarðvíkurliðið hefur mætt þrisvar sinnum á Ásvelli í vetur og unnið í öll skiptin. Fyrst átta stiga deildarsigur í október (66-58), þá átta stiga deildarsigur í febrúar (78-70) og loks ellefu stiga sigur í leik eitt í einvíginu (70-59). Það er líka fróðlegt að skoða sigurhlutfall Haukanna á Ásvöllum í vetur. Haukakonur eru aðeins með fimmtíu prósent sigurhlutfall á heimavelli sínum, bæði í deildinni (6 sigrar og 6 töp) sem og í úrslitakeppninni (1 sigur og 1 tap). Njarðvíkurkonur eru því með tvöfalt hærra sigurhlutfall á Ásvöllum í vetur (100 prósent) heldur en heimakonur (50 prósent). Haukakonur hafa af einhverjum ástæðum verið mun betri á útivelli í vetur þar sem liðið hefur unnið tólf af fimmtán leikjum sínum eða 80 prósent leikjanna. Leikur Hauka og Njarðvíkur hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2. Á undan verður upphitun Subway Körfuboltakvölds frá klukkan 18.45 á sömu rás og leikurinn verður síðan gerður upp að honum loknum. Sigurhlutfall á Ásvöllum í Subway deildinni í vetur: Njarðvíkurkonur 100 prósent (3 sigrar í 3 leikjum) Heimakonur í Haukum 50 prósent (7 sigrar í 14 leikjum) - Sigurhlutfall utan Ásvalla í Subway deildinni í vetur: Haukakonur 80 prósent (12 sigrar í 15 leikjum) Njarðvíkurkonur 59 prósent (16 sigrar í 27 leikjum)
Sigurhlutfall á Ásvöllum í Subway deildinni í vetur: Njarðvíkurkonur 100 prósent (3 sigrar í 3 leikjum) Heimakonur í Haukum 50 prósent (7 sigrar í 14 leikjum) - Sigurhlutfall utan Ásvalla í Subway deildinni í vetur: Haukakonur 80 prósent (12 sigrar í 15 leikjum) Njarðvíkurkonur 59 prósent (16 sigrar í 27 leikjum)
Subway-deild kvenna Haukar UMF Njarðvík Mest lesið Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Körfubolti Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Fleiri fréttir Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Tryggvi í aðalhlutverki í Meistaradeildinni Kokkur í vandræðum með hráefni eldi aldrei gæðamáltíð Sjá meira