Kókaínsmyglhneyksli forsætisráðherrans skekur Bresku jómfrúareyjarnar Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. apríl 2022 23:08 Andrew Fahie, forsætisráðherra Bresku jómfrúareyja. Andrew Fahie, forsætisráðherra Bresku jómfrúareyja hefur verið handtekinn í Bandaríkjunum grunaður um aðild að kókaíninnflutningi og peningaþvætti.
Þetta kemur fram á vef dagblaðsins Miami Herald þar sem segir að Fahie og Oleanvine Maynard, framkvæmdastjóra hafnaryfirvalda Bresku jómfrúareyja hafi verið handteknir í aðgerðum lögreglu í Miami. Þar segir að fulltrúar Fíkniefnalögreglu Bandaríkjanna hafi sett upp aðgerð til að handtaka Fahie og Maynard. Fóru þeir félagar á fund fulltrúanna sem þóttust vera kókaínsmyglarar og meðlimir í mexíkóska eiturlyfjahringnum Sinaloa. Voru Fahie og Maynard lokkaðir til fundarins undir því yfirskyni að þeir ættu að ganga úr skugga um að sending með 700 þúsund dollurum væri á leið til Bresku jómfrúareyjanna. Var þeim sagt að fjármunirnir væru greiðsla fyrir að leyfa eiturlyfjahringnum að senda kókaín til Bandaríkjanna í gegnum eyjarnar. Fahie og Maynard dúsa nú í fangelsi þar sem þeir hafa verið ákærðir fyrir það að hafa lagt á ráðin um að flytja meira fimm kíló af kókaíni til Bandaríkjanna og tilraun til peningaþvættis.
Bandaríkin Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sjá meira