Freyr sækir leikmann ársins til Lyngby Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 31. maí 2022 15:30 Freyr er þegar hafinn að styrkja leikmannahóp Lyngby. Twitter@LyngbyBoldklub Freyr Alexandersson hefur þegar hafið undirbúning fyrir sitt fyrsta tímabil með Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hann er við það að fá markahæsta leikmann B-deildarinnar til liðs við félagið sem þýðir aukin samkeppni fyrir Sævar Atla Magnússon.
Freyr tók við Lyngby síðasta sumar og stýrði liðinu rakleiðis upp í dönsku úrvalsdeildina á nýjan leik. Lærisveinar Freys voru aðeins stigi frá því að fara upp sem deildarmeistarar en það hindraði ekki gríðarlegan fögnuð liðsins og stuðningsfólks eftir lokaleik tímabilsins. Freyr veit þó að það þarf að styrkja liðið ætli Lyngby sér ekki að fara beint aftur niður og hann hefur því þegar hafið leit að nýjum leikmönnum. Kampavínið var vart búið er danski miðillinn Bold greindi frá því að Lyngby færi í þann mund að semja við Mathias Kristensen. Sá lék með Nykøbing á síðustu leiktíð og endaði sem markahæsti leikmaður dönsku B-deildarinnar með 18 mörk. Þá var hann einnig valinn besti leikmaður deildarinnar. Tilkoma Kristensen þýðir meiri samkeppni fyrir Sævara Atla sem Lyngby keypti frá Leikni Reykjavík skömmu eftir að Freyr tók við. Hinn 21 árs gamli Sævar Atli kom við sögu í 29 leikjum á nýafstaðinni leiktíð, skoraði fjögur mörk og lagði upp þrjú til viðbótar. Sævar Atli lék vel með Lyngby á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku.Twitter/@LyngbyBoldklub
Danski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira