Umfjöllun: Stelpurnar okkar sluppu með stigið en tóku sögulegt skref Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2022 23:30 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skorar mark íslenska liðsins í dag. Það dugði því miður ekki til sigurs en skilaði stigi. Vísir/Vilhelm Íslensku stelpurnar gátu verið svekktar með jafntefli í fyrsta leiknum á móti Belgíu á EM í Englandi en þær gátu þakkað fyrir stigið í öðrum leiknum á móti Ítalíu. Ísland og Ítalía gerðu 1-1 jafntefli í Manchester í dag þar sem Ítalir voru mun betra liðið eftir sannkallaða draumabyrjun íslenska liðsins.
Íslenska liðið skoraði strax í upphafi leiks en náði ekki að fylgja því eftir. Stórleikur Söndru Sigurðardóttur í markinu og vökul augu miðvarðanna Glódísar Perlu Viggósdóttur og Guðrúnar Arnardóttur áttu mestan þátt í því að íslensku stelpurnar tókst að hanga á stiginu en fleiri ítölsk mörk lágu lengi í loftinu. Þetta eru samt söguleg úrslit fyrir liðið því íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei áður náð í stig í tveimur leikjum í röð á Evrópumóti og þær eiga enn möguleika á sæti í átta liða úrslitunum. Nú liggur aftur á móti á borðinu að líklega dugar þá ekkert annað en sigur á móti sterku liði Frakka þó að stigi gæti verið nóg verði önnur úrslit hagstæð. Liðið er enn taplaust og hefur skorað í báðum sínum leiknum sem er jákvætt. Vandræði liðsins í þessum leik á móti Ítölum fylla mann áhyggjum um hvort að liðið hafi burði til að ná í eitthvað á móti Frökkum. Íslensku stelpurnar ætluðu sér sigur. Markaskorarinn Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var svekkt í leikslok.Vísir/Vilhelm Miðjan virkaði þreytuleg Miðjan virkaði lengstum þreytuleg og stelpurnar náðu ekki að vinna stöðurnar sína eins og þær gerðu svo vel á móti Belgum. Ítalir voru miklu meira með boltann, miklu beinskeyttari og miklu hættulegri. Þær eru hins vegar með stigi minna en þær íslensku eftir fyrstu tvo leikina en fá annað gott tækifæri til að bæta sína stöðu á móti Belgum í lokaumferðinni. Það var eitthvað búið að kvarta yfir því að föstu leikatriðin hafi ekki verið að skila liðinu mörkum í síðustu leikjum. Stelpurnar voru fljótar að svara þeirri gagnrýni með því að skora eftir innkast eftir innan við þrjár mínútur. Boltinn barst þá út til Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur sem afgreiddi boltann upp í bláhornið með óverjandi skoti. Frábært mark og algjör draumabyrjun. Lentu í vandræðum eftir markið Það vantaði auðvitað ekkert til að kveikja á íslenska stuðningsfólkinu sem fagnaði markinu gríðarlega eins og stelpurnar okkar inn á vellinum. Í stað þess að halda áfram og ná tökum á leiknum lentu stelpurnar okkar fljótlega í vandræðum. Ítalir höfðu fengið áfall í byrjun leiks gegn Frökkum og brotnuðu þá. Nú náðu þær aftur á móti að halda velli og vinna sig fljótt inn í leikinn. Þær ítölsku unnu sig út úr þessu áfalli með ágætum kafla en þau skot sem sluppu að íslenska markinu voru sem betur fer ekki sannfærandi. Ítalski þjálfarinn skipti út tveimur sóknarmönnum sínum og sá kannski eftir því þegar fá skotanna þeirra hittu markið. Sandra var vel á verði þegar þau hittu markið. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fagnar markinu.Vísir/Vilhelm Gekk illa að halda boltanum Íslenska liðið hafði byrjað vel með að skora mark en gekk illa að halda bolta og spila í gegnum miðjuna. Miðjumennirnir oftast út úr stöðum, ákefðin mikil en vantaði aðeins upp á skírari sýn á uppbyggingu sóknanna. Sveindís Jane Jónsdóttur gekk illa að komast í boltann fram eftir leik sem var kannski ekki oft henni að kenna því meðspilarar hennar buðu upp á allt of margar slakar sendingar fram á hana. Undir lok hálfleiksins var orðið nauðsynlegt að setjast yfir málin og endurskipuleggja liðið. Ítalir voru allt of mikið með boltann (59%) og jöfnunarmarkið var farið að liggja í loftinu ef ekkert breyttist. Stelpurnar héldu út og gátu rætt aðeins málin í hálfleik. Ítölsku stelpurnar vildu greinilega ekki kólna niður eftir flottan endi á fyrri hálfleik og voru komnar snemma inn á völlinn eftir hálfleiksræðuna. Ítalski þjálfarinn var einnig fljót að setja sóknarstjörnur liðsins inn í seinni hálfleik, þær sömu sem hún hafði sett á bekkinn eftir skellinn á móti Frökkum. Það var þó varamaður íslenska liðsins, Alexandra Jóhannsdóttir, sem fyrr að fá færi en hún hitti ekki markið. Skömmu síðar voru Ítalir búnir að jafna með laglegu marki frá Valentinu Bergamaschi eftir frábæran undirbúning Barböru Bonansea sem hafði komið inn á í hálfleik. Áttu inni fyrir markinu Ítalska liðið átti vel inni fyrir þessu marki en nú þurfti eitthvað meira líf í íslenska liðið. Sveindís Jane var komin upp á topp en gekk áfram illa að komast í boltann og í sína kjörstöðu. Ítalir ógnuðu áfram, Sandra varði vel og svo hafði hún heppnina með sér þegar hún hálfvarði boltann í stöngina. Sókn Ítala þyngdist og hvert færið á fætur öðru leit dagsins ljós. Þessi leikur gat eiginlega ekki endað nema á einn hátt. Íslensku stelpurnar börðust samt fyrir hverjum bolta á erfiðum lokakafla leiksins reyndu að halda út. Hver sókn var ákveðinn léttir á liðinu en því miður voru þær of fáar og of stuttar til að skila einhverju sem hefði getað gefið okkar konum sigurmark. Ítalir fóru að taka meiri áhættu og það opnaði möguleika. Skyndisóknir hefðu getað breytt öllu Frábær sókn undir lokin kom Karólínu Leu i dauðafæri en eins og hún hitti hann vel í fyrri hálfleik þá hitti hún hann skelfilega þarna. Önnur lagleg skyndisókn kom Sveindísi næstum því í færi en það var ljóst að Ítalir lögðu nú ofurkapp á ná í sitt nauðsynlega sigurmark. Íslensku stelpurnar fengu ekki á sig sigurmark sem var gleðiefni miðað við það sem stefndi í en nú er að finna leiðir til að gera eitthvað á móti gríðarlega sterku frönsku liði á mánudaginn kemur.
EM 2022 í Englandi Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Úlfarnir lítil fyrirstaða fyrir Rauðu djöflana Enski boltinn Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Enski boltinn „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ Körfubolti Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Búist við að Salah verði hent úr hóp Enski boltinn Slot: „Hef ekki hugmynd hvort Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Færeyingar taka upp VAR Pulisic kom inn af bekknum og bjargaði Milan Úlfarnir lítil fyrirstaða fyrir Rauðu djöflana Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Dregið í enska bikarnum: Mávarnir fljúga til Manchester Sandra María með þrennu og er markahæst í Þýskalandi Slot: „Hef ekki hugmynd hvort Salah hafi spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool“ Óheppnin eltir Éder Militao: Frá í nokkra mánuði Barton dæmdur í hálfs árs fangelsi Barcelona stillti upp yngsta byrjunarliði félagsins í 95 ár Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Banna samkynhneigð en mætast samt í „Hinsegin leiknum“ á HM 2026 Þrettán mismunandi leiktímar á HM næsta sumar Krísufundur hjá Real Madrid í nótt Neymar hundsaði læknana og bjargaði Santos frá falli Kom stjórnendum Liverpool á óvart hversu harðorður Salah var Scholes segir félagið eyðileggja Mainoo Búist við að Salah verði hent úr hóp FIFA skipar evrópskum fótboltafélögum að borga Rússum Dæmd í fjögurra ára fangelsi Dómsmál vegna andláts Sala hefst í dag Salah-málið farið að minna mikið á þegar Ronaldo yfirgaf Man Utd Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Gefur milljarða svo íþróttakonur séu rannsakaðar betur „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Fékk rauða spjaldið fyrir leik og ástæðan voru nærbuxurnar Sjáðu markið sem West Ham-menn sáu tvær ástæður til að dæma af Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Beðið eftir blaðamannafundi Slot í dag: Er einhver leið til baka fyrir Salah? Landsliðsmaður handtekinn í London Sjá meira