Erlent

Hinn á­rásar­maðurinn lést í haldi lög­reglu

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Rhonda Blackmore, aðstoðarlögreglustjórinn í Saskatchewan, á blaðamannafundi um helgina. Hinir grunuðu eru báðir látnir. 
Rhonda Blackmore, aðstoðarlögreglustjórinn í Saskatchewan, á blaðamannafundi um helgina. Hinir grunuðu eru báðir látnir.  AP/Michael Bell

Kanadamaðurinn Myles Sanderson, sem grunaður er um að hafa stungið tíu til bana og sært átján í röð árása í héraðinu Saskatchewan fyrr í vikunni, lést í gærkvöldi stuttu eftir að hann var handtekinn af lögreglu.

Sanderson var grunaður um röð stunguárása ásamt bróður sínum, Damian Sanderson, en Damian fannst látinn með sjáanlega áverka á mánudag.

Fram kemur í frétt kanadíska ríkisútvarpsins að Myles Sanderson hafi verið handtekinn síðdegis í gær nærri bænum Rosthern en hafi stuttu síðar veikst alvarlega og verið úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi.

Stuttu áður en Myles var handtekinn hafði lögreglan í héraðinu gefið út viðvörun vegna tilkynninga um að sést hafi til manns í bifreið með eggvopn á lofti. Síðast hafi sést til ökumannsins í Wakaw, um 90 kílómetra norðaustur af Saskatoon. 

Að sögn Rhondu Blackmore, varalögreglustjóra í Saskatchewan, hefur héraðslögreglan óskað eftir því að lögreglan í Saskatoon og rannsókarnefnd viðbragðsaðila (e. Saskatchewan Serious Incident Response Team) rannsaki andlát Myles og aðdraganda þess. 

Árásarhrina bræðranna hófst snemma morguns á sunnudag í James Smith Cree samfélaginu en fljótlega fóru tilkynningar að hrannast inn frá þrettán mismunandi stöðum í héraðinu um stunguárásir. Flestar árásanna voru þó framdar í James Smith Cree samfélaginu og bænum Weldon.

Myles á að baki langan brotaferil, sem spannar um tvo áratugi, en hann var aðeins 30 ára gamall. Hann hefur verið dæmdur 59 sinnum og margsinnis verið dæmdur fyrir ofbeldi. Þá átti hann í vandræðum með neyslu áfengis og fíkniefna frá unga aldri.

Fólkið sem Sanderson-bræðurnir bönuðu. Nöfn þeirra í efri röð frá vinstri til hægri: Bonnie Burns, Carol Burns, Christian Head, Lydia Gloria Burns og Lana Head. Neðri röð frá vinstri til hægri: Wesley Petterson, Thomas Burns, Gregory Burns, Robert Sanderson og Earl Burns.AP/Kanadíska lögreglan

Flest fórnarlamba bræðranna voru af frumbyggjaættum, eins og þeir sjálfir, en James Smith Cree samfélagið er samfélag kanadískra frumbyggja. Á myndinni hér að ofan má sjá fórnarlömb þeirra sem létust. 


Tengdar fréttir

Seinni á­rásar­maðurinn í haldi lög­reglu

Annar þeirra sem var leitað eftir stunguárásirnar í Saskachewan í Kanada nú a dögunum hefur verið handsamaður. Tveir árásarmenn eru sagðir hafa verið að verki og fannst annar þeirra sem lágu undir grun látinn daginn eftir að árásirnar áttu sér stað.

Kanadíska á­rásar­mannsins enn leitað

Kanadíska lögreglan leitar enn Myles Sanderson, sem grunaður er að hafa banað ellefu og sært átján í röð hnífstunguárása í Kanada á sunnudag og mánudag. Lögregla segir hann ekki staddann á landi James Smith Cree þjóðarinnar en grunur var uppi um að til hans hafi sést á svæðinu í gær.

Dæmdur fimmtíu og níu sinnum á rúmum tuttugu árum

Myles Sanderson, annar bræðranna sem grunaðir eru um mannskæðar stunguárásir í Kanada, á sér langan sakaferil að baki og hafði margsinnis verið dæmdur fyrir ofbeldi. Þá hafði hann átt í vandræðum með neyslu áfengis og fíkniefni frá unga aldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×