Sport

Dagskráin í dag - Upphitunarþáttur Seinni bylgjunnar

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Svava Kristín Gretarsdóttir og Stefán Árni Pálsson standa vaktina í Seinni bylgjunni í allan vetur.
Svava Kristín Gretarsdóttir og Stefán Árni Pálsson standa vaktina í Seinni bylgjunni í allan vetur. Stöð 2 Sport

Keppni í Olís deild kvenna hefst seinnipart vikunnar og er deildarinnar beðið með mikilli eftirvæntingu.

Í kvöld klukkan 20:00 verður Seinni bylgjan með upphitunarþátt fyrir deildina sem hefst með leik Stjörnunnar og Fram næstkomandi fimmtudag.

Auk Seinni bylgjunnar verður einn leikur í Bestu deildinni í fótbolta sýndur beint á sportstöðvum Stöðvar 2 þegar Þróttur fær Keflavíkurkonur í heimsókn í Laugardalinn.

GameTíví verður á sínum stað á Stöð 2 ESport og þá er ótalinn leikur Empoli og Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta sem verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 2 klukkan 18:35.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×