Fótbolti

Karó­lína skoraði og full­komin byrjun Inter heldur á­fram

Aron Guðmundsson skrifar
Karólína fagnar marki sínu í dag
Karólína fagnar marki sínu í dag Vísir/Getty

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var á skotskónum í dag í 3-0 sigri Inter gegn Parma í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 

Þrjár íslenskar landsliðskonur tóku þátt í leik dagsins. Cecilía Rán Rúnarsdóttir var á sínum stað í marki Inter og hélt því hreinu. Á miðjunni hjá liðinu var Karólína Lea og þá kom Birta Georgsdóttir inn á sem varamaður í liði Parma undir lok leiks.

Haley Bugeja braut ísinn fyrir Inter með fyrsta marki leiksins á 39. mínútu. Var það eina markið í fyrri hálfleik en þegar komið var fram á 57. mínútu tvöfaldaði Karólína Lea Vilhjálmsdóttir forystu Inter með öðru marki liðsins.

Michela Cambiaghi innsiglaði 3-0 sigur Inter undir lok leiks en þar með heldur fullkomin byrjun liðsins á tímabilinu áfram.

Inter er á toppi ítölsku úrvalsdeildarinnar með níu stig eftir þrjá leiki líkt og Como og Roma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×