Skoðun

Alþýðusamband Íslands njóti sannmælis

Halldór Oddsson skrifar

Vegna umræðu um meint áhrifaleysi Alþýðusambands Íslands gagnvart stjórnvöldum vil ég segja þetta:

Heildarsamtök eru aldrei sterkari en sú samstaða sem ríkir innan þeirra. Í störfum mínum fyrir ASÍ undanfarin 10 ár eða svo hef ég fundið mjög áþreifanlega fyrir mismunandi viðbrögðum stjórnvalda við málflutningi okkar eftir því hvernig samstaðan eða samstöðuleysið er innan verkalýðshreyfingarinnar. Staðreyndin er sú að skýr og vönduð sýn innan hreyfingarinnar er talsvert líklegri til að ná máli en sundurleitni og gífuryrði. Ég tala nú ekki um ef samstaðan er slík að ætla má að hreyfingin sé reiðubúin að beita vopnum sínum til að ná fram kjara- og réttarbótum fyrir íslenskt launafólk.

Helstu ástæður fyrir meintu áhrifaleysi ASÍ við að ná sínu fram gagnvart stjórnvöldum tel ég að eigi fyrst og fremst að skrifast á samstöðuleysi og skort á vilja forsvarsmanna aðildarfélaga til að sameina rödd hreyfingarinnar í sterk og skýr skilaboð. Eðli málsins samkvæmt verður allt forsvarsfólk aðildarfélaga ASÍ að axla ábyrgð á því að raðirnar séu þéttar og áherslurnar skýrar. Með þessum orðum er það ekki ætlun mín að beina spjótum að ákveðnu forsvarsfólki umfram annað í þeim efnum. ASÍ er, þegar allt kemur til alls, verkfæri stéttarfélaganna. Það er ábyrgð þeirra að beita því vel eða illa.

Veruleiki þar sem margar lágróma raddir tala út og suður þýðir að stjórnvöld þurfa aðeins að hlusta á enduróm eigin orða þegar ákvarðanir sem varða lífsviðurværi alþýðu landsins eru teknar.

Þegar okkur hefur tekist að sameina raddir okkar og áherslur gagnvart stjórnvöldum höfum við náð mikilsverðum árangri og nefni ég nokkur nýleg dæmi:

-Almenna íbúðakerfið (Bjarg-íbúðafélag) – 2016

-Keðjuábyrgð í opinberum framkvæmdum – 2016

-Keðjuábyrgð (þjónustuveitendur frá EES / Starfsmannaleigur) – 2018

-Leiðrétting/hækkun greiðslna úr Ábyrgðasjóði launa – 2018

-Ný almenn lög um jafna meðferð á vinnumarkaði – 2018

-Endurskoðuð þrep í tekjuskattskerfi – 2019

-Tengsl vinnu og leigu í húsaleigulögum rofin – 2019

-Lengra og betra fæðingarorlof – 2020

-Hækkun lífeyrissjóðsiðgjalds lögbundin – 2022

En betur má ef duga skal, og já, vissulega er stundum erfitt að finna samhljóminn í svo stórri hreyfingu. Á sama tíma og ég tek fegins hendi og fagna allri umræðu um gagnsemi og uppbyggingu hreyfingarinnar, þá biðla ég til þeirra sem hvað mest hafa sig í frammi að leyfa ASÍ að njóta sannmælis í umræðunni. Við eigum ekki að ræða hvort við ætlum að vera saman, heldur hvernig við ætlum að vera saman. Með hagsmuni launafólks á Íslandi fyrir brjósti, vona ég innilega að komandi forsetar og miðstjórnarfulltrúar beri gæfu til að sameina hreyfinguna í samstillta og öfluga rödd.

Við erum 130.000 félagar og ef við viljum erum við óstöðvandi.

Höfundur starfar hjá Alþýðusambandi Íslands.




Skoðun

Sjá meira


×