Ársbann fyrir eldri kylfinga sem gáfu frat og löngutöng í dómara Kjartan Kjartansson skrifar 5. október 2022 22:46 Mönnum var heitt í hamsi á Íslandsmóti eldri kylfinga í sumar. Myndin er úr safni og tengist efni fréttarinnar ekki. Vísir/VIlhelm Þrír kylfingar sem var vísað frá Íslandsmóti eldri kylfinga á Akureyri í sumar hafa verið úrskurðaðir í árslangt keppnisbann fyrir alvarleg agabrot. Þeir tóku meðal annars höndum saman um að hunsa vítahögg sem dómari hafði dæmt á tvo þeirra.
Úlfaþytur skapaðist í íslenska golfheiminum í sumar þegar þeim Margeiri Vilhjálmssyni, Kristjáni Ólafi Jóhannessyni og Helga Svanberg Ingasyni var vísað úr Íslandsmóti eldri kylfinga sem var haldið á Jaðarsvelli á Akureyri í júlí. Margeir, sem er golfkennari og stjórnarmaður í Golfklúbbi Reykjavíkur (GR), skrifaði meðal annars harðorðan pistil á Facebook eftir atvikið og vandaði dómurum og mótsstjórn ekki kveðjurnar. Nafngreindi hann sjálfboðaliða á mótinu og sakaði starfsmenn mótsins um lygar. Aron Hauksson, yfirdómari GR, sagði af sér í mótmælaskyni við að Margeir fengi að sitja áfram í stjórn klúbbsins á meðan aganefnd Golfsambandsins hefði mál hans til skoðunar. Margeir er enn skráður aðalmaður í stjórn GR á vefsíðu klúbbsins. Í uppnámi og skráðu ekki vítahöggin Ástæða frávísunarinnar var sú að Kristján Ólafur og Helgi Svanberg skrifuðu of lágt skor á skorkort sem þeir skiluðu inn eftir hringinn en Margeir staðfesti rangt skor vísvitandi sem ritari. Þremenningarnir höfðu ákveðið að skrá ekki tvö vítahögg sem Kristjáni Ólafi og Helga Svanberg höfðu verið dæmd fyrir brot á staðarreglu þegar þeir tóku æfingarpútt á flöt eftir að þeir luku leik á 17. holu vallarins. Í úrskurði aganefndar er rakið hvernig Margeir þrætti við dómarann sem dæmdi vítin á meðspilara hans. Hélt hann því fram að aðrir kylfingar á mótinu hefðu tekið æfingarpútt vítislaust og að reglan hefði ekki verið kynnt keppendum. Þegar þremenningarnir mættu til að skila inn skorkortum sínum hafi þeir verið æstir. Margeir hafi lýst því yfir að úrskurður dómara hafi verið rugl og meðspilarar hans ættu þess vegna að hunsa hann með því að skrá ekki vítahöggin á sig. Sendi dómurum löngutöng Kristján virðist hafa iðrast ákvörðunar sinnar en í úrskurðinum kemur fram að þegar hann var fenginn til fundar við dómara í herbergi mótstjórnar á mótinu hafi hann sagði að honum hefði verið ljóst að honum hefðu verið úrskurðuð vítahögg. Hann hefði hins vegar hrifist með „í einhverri stemmingu“ sem hafi orðið til í ráshópnum og því hefði hann ekki skráð vítin á skorkort sitt. Helgi tók frávísuninni af mótinu verr. Gekk hann á dyr af fundi með dómara. Reyndi hann í kjölfarið ítrekað að ræða við mótsstjórn til að fá frekari skýringar. Síðar um daginn hafi hann sýnt dómurum löngutöng þegar þeir óku fram hjá honum þar sem hann sat á bekk. Margeir var einnig afar ósáttur og reyndi að fá frávísuninni hnekkt en hafði ekki erindi sem erfiði. Daginn eftir hélt hann því fram að hollinu hefði ekki verið ljóst að dómari hefði dæmt víti á tvímenningana. Þá fannst honum að staðarreglur hefðu ekki verið birtar rétt eða kynntar nægilega vel. Síðar um daginn birti Margeir umrædda Facebook-færslu þar sem hann gagnrýndi mótsstjórnina harðlega. Nafngreindi Margeir sérstaklega alla fulltrúa stjórnarinnar sem komu að málinu og merkti jafnframt forseta Golfsambandsins. Gerði auknar kröfur til Margeirs sem fyrirmyndar annarra kylfinga Aganefndin komst að þeirri niðurstöðu að Helgi og Kristján hefðu sýnt af sér óprúðmannlega og ámælisverða hegðun þegar þeir ákváðu að skrá ekki vítishöggin sem þeim voru úrskurðuð. Þeir hafi þannig ákveðið að hafa rangt við í golfmótinu með því að hunsa úrskurð dómara. Með því hafi þeir sýnt dómara, starfsmönnum og öðrum keppendum vanvirðingu. Framkoma Helga að sýna formanni mótanefndar og dómara löngutöng hafi jafnframt sýnt virðingarleysi við sjálfboðaliða sem störfuðu á mótinu. Margeir var talinn hafa sýnt af sér ámælisverða hegðun með því að láta sér í léttu rúmi liggja hvort að skor meðspilara hans væri rétt skráð. Með þessu og Facebook-færslu sinni hafi hann sýnt keppinautum og starfsfólki mótsins vanvirðingu. Við ákvörðun refsingar leit aganefndin sérstaklega til stöðu Margeirs sem eins af bestu kylfingum landsins, golfkennara og héraðsdómara. Taldi nefndin að gera mætti kröfur til Margeirs um að framkoma hans væri öðrum kylfingum fyrirmynd. Kylfingarnir þrír voru taldir hafa sýnt af sér óprúðmannlega og ámælisverða hegðun og gerst sekir um alvarleg agabrot. Hæfileg refsing var talin tólf mánaða leikbann sem gildir frá 30. september 2022.
Golf Akureyri Mest lesið Ræddu brotthvarf Davíðs: „Þetta er eins og köld vatnsgusa“ Íslenski boltinn „Eina leiðin að segja já og amen við dómaranefndina“ Körfubolti Davíð Smári hissa: „Sökudólgur sjálfur með því að setja viðmiðið mjög hátt“ Íslenski boltinn Jón Þór ráðinn í björgunaraðgerðir hjá Vestra Íslenski boltinn Fengu nóg af skeytingarleysi og mismunun Íslenski boltinn Amorim að verða uppiskroppa með afsakanir Enski boltinn Slæm byrjun Chelsea skilaði Bayern sigri Fótbolti Héldu vöku fyrir leikmönnum Liverpool Fótbolti Sjáðu boltahnupl Valdimars sem nánast tryggði Víkingum titilinn Íslenski boltinn Meiddist hroðalega en fór hlæjandi af velli Sport Fleiri fréttir „Ertu að horfa Donald Trump?“ Bjór kastað í konu McIlroy: „Þurfti að þola ótrúlegt magn af svívirðingum“ Evrópa marði Ryder-bikarinn á dramatískan hátt Bandaríkin í brekku en reyna að klóra í bakkann Grínisti hættir og biðst afsökunar á að hafa byrjað níðsöngva í garð Rory Fyrirliði Bandaríkjanna ver gjammandi stuðningsmennina Evrópa með afgerandi forystu fyrir lokadaginn Sagði áhorfanda að naglhalda kjafti Bandaríkin með bakið upp við vegg Fyrirliði Evrópu greinir frá því hvað Trump sagði við hann Trump missir ekki trúna: „Við munum klára þetta“ Bara einn spáði Bandaríkjunum sigri og annar vissi ekkert um Ryder-bikarinn „Keppni sem allir golfáhugamenn elska“ Svona hefst Ryder-bikarinn: „Viljum ná öflugri byrjun“ Þora ekki að horfa á strákinn vegna fúkyrðaflaums Fyrirliði Evrópu baunar á Bandaríkin: „Drifnir áfram af einhverju sem peningar geta ekki keypt“ Stjörnustjarfur þegar hann sá Zola á Ryder bikarnum Varar við áhorfendum á Ryder Cup: „Hey Rahmbo, hvar er Ozempicið?“ Bandarísku kylfingarnir gefa Ryder-launin eftir gagnrýni Gunnlaugur Árni næstefstur og verður á Golf Channel í kvöld Rosalegt prump samherja setti Hatton út af laginu Ragnhildur endaði önnur eftir bráðabana Vaknaði útataður í eigin ælu eftir að hafa komist í Ryder-lið Evrópu Andrea tók sjötta sætið Stórsér á stjörnunni eftir leikfang dótturinnar Eina breytingin á Ryderliðinu var að skipta um tvíbura Stórkostleg spilamennska hjá Haraldi í Svíþjóð Stjörnurnar samglöddust Fleetwood sem vann loks í 164. tilraun Arnar og Bjarki unnu golfmót Fluga hjálpaði kúlunni ofan í holuna Sjá meira