Arsenal vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti Alfons Sampsted og félögum hans í norska meistaraliðinu Bodø/Glimt í Evrópudeild UEFA í kvöld.
Það var Edward Nketiah sem kom heimamönnum í Arsenal í forystu með marki á 23. mínútu eftir stoðsendingu frá Kieran Tierney áður en Rob Holding tvöfaldaði forystu liðsins fjórum mínútum síðar.
Ekki var meira skorað í fyrri hálfleik og staðan því 2-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja.
Heimamenn voru enn sterkari aðilinn í síðari hálfleik og það var að lokum Fabio Vieira sem gulltryggði 3-0 sigur Arsenal með marki þegar um fimm mínútur voru til leiksloka.
Arsenal er því á toppi A-riðils eftir sigurinn með sex stig eftir tvo leiki, tveimur stigum meira en Alfons og félagar sem hafa leikið einum leik meira.
💪 Big team performance
— Arsenal (@Arsenal) October 6, 2022
😍 COME ON ARSENAL!
🔴 3-0 🟡 (FT) pic.twitter.com/OCjGTgOU2G