Evrópumeistarar Real Madrid máttu þola 1-0 tap er liðið heimsótti úkraínska liðið Shakhtar Donetsk til Varsjá í Póllandi í fjórðu umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Þá gerðu franska stórliðið PSG og Benfica 1-1 jafntefli í París á sama tíma.
Evrópumeistarar Real Madrid hefðu tryggt sér sæti í útsláttakeppni Meistaradeildarinnar með sigri, en það var Oleksandr Zubkov sem kom heimamönnum í Shakhtar Donetsk í forystu þegar hann skoraði í upphafi síðari hálfleiks eftir stoðsendingu frá Bogdan Mykhaylichenko.
Lengi vel leit út fyrir að heimamenn myndu landa sigrinum og staðan var enn 1-0 þegar komið var djúpt inn í uppbótartíma. Það var ekki fyrr en á fimmtu mínútu uppbótartímans að jöfnunarmarkið leit dagsins ljós þegar Antonio Rüdiger skallaði fyrirgjöf Toni Kroos í netið og niðurstaðan því 1-1 jafntefli.
Real Madrid trónir því enn á toppi F-riðils með tíu stig eftir fjóra leiki, fimm stigum fyrir ofan Shakhtar Donetsk sem situr í þriðja sæti riðilsins. Madrídingar þurfa aðeins tvö stig úr seinustu tveimur leikjum riðilsins til að tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni.
⚽ 90'+5' | 1-1 | GOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOAAAAALLLL by @ToniRuediger!!!! #UCL | #FIFA23 pic.twitter.com/a37DalIHkt
— Real Madrid C.F. 🇬🇧🇺🇸 (@realmadriden) October 11, 2022
Þá þurfti franska stórliðið Paris Saint-Germain einnig að sætta sig við 1-1 jafntefli er liðið tók á móti portúgalska liðinu Benfica.
Kylian Mbappé kom heimamönnum í forystu með marki af vítapunktinum stuttu fyrir hálfleik, en Joao Mario jafnaði metin fyrir gestina eftir rúmlega klukkutíma leik, einnig af vítapunktinum.
PSG og Benfica eru því enn jöfn á toppi H-riðils með átt stig hvor og eru bæði á góðri leið með að tryggja sér sæti í útsláttarkeppninni.
Úrslit kvöldsins
E-riðill
AC Milan 0-2 Chelsea
Dinamo Zagreb 1-1 FC Salzburg
F-riðill
Celtic 0-2 RB Leipzig
Shakhtar Donetsk 1-1 Real Madrid
G-riðill
FC Kaupannahöfn 0-0 Manchester City
Borussia Dortmund 1-1 Sevilla
H-riðill
Maccabi Haifa 2-0 Juventus
Paris Saint-Germain 1-1 Benfica