Ljóst varð í morgun að Sunak yrði næsti leiðtogi Íhaldsflokksins eftir að Penny Mordaunt heltist úr lestinni. Sunak var þá einn eftir í kjöri. Hann tekur við flokki sem er klofinn í herðar niður eftir röð hneykslismála og axarskafta undanfarnar vikur og mánuði.
Sigur Sunak er merkilegur viðsnúningur fyrir þennan 42 ára gamla þingmann Richmond í Jórvíkurskíri þar sem aðeins tveir mánuðir eru liðnir frá því að hann beið afgerandi ósigur fyrir Liz Truss í leiðtogakjöri í sumar.
JUST IN: @RishiSunak has been elected as the Leader of the Conservative Party pic.twitter.com/Oa52WWwFck
— Conservatives (@Conservatives) October 24, 2022
Kjörið fór fram eftir að Boris Johnson neyddist til að segja af sér en þar var Sunak örlagavaldur. Forsætisráðherratíð Johnson fjaraði hratt út eftir að Sunak, sem var fjármálaráðherra hans, og Sajid Javid, heilbrigðisráðherra, sögðu af sér í júlí. Sögðust ráðherrarnir hafa misst traust sitt á Johnson vegna þess hvernig hann tók á ásökunum um kynferðislega áreitni innan stjórnarráðsins.
Sunak var þó ekki alsaklaus í þeim hneykslismálum sem plöguðu ríkisstjórn Johnson. Lögreglan í London sektaði Sunak fyrir að brjóta sóttvarnareglur í kórónuveirufaraldrinum með því að vera gestur í samkvæmi á skrifstofu forsætisráðherrans árið 2020. Sunak hélt því fram að hann hefði mætt óvart á teitið og aðeins staldrað stutt við.

Gekk í dýrustu og eftirsóttustu skólana
Sunak er fæddur í Southampton á Suður-Englandi árið 1980, sonur hindúa af indverskum ættum sem fæddust í Austur-Afríku. Aldrei áður hefur forsætisráðherra Bretland verið af indverskum ættum. Sunak er sjálfur virkur hindúi en talar sjaldan um trú sína opinberlega. Hann er skipaður forsætisráðherra á Diwali-hátíð hindúa, hátíðar ljóss og nýs upphafs.
Fjölskyldan tilheyrði miðstétt. Faðir Sunak var læknir en móðir hans rak apótek.
„Ég ólst upp vinnandi í versluninni, að afhenda lyf. Ég vann sem þjónn á indverskum veitingastað neðar í götunni,“ sagði Sunak í framboðsræðu í leiðtogakjörinu í sumar.
Þar með lýkur þó tengingu Sunak við líf neðri- og miðstétta á Bretlandi. Þökk sé foreldrum sínum gekk Sunak í Winchester-skólann, einn dýrasta og eftirsóttasta heimavistarskóla landsins þar sem hann blandaði geði við börn hástéttarfólks.
Í sjónvarpsmynd frá 2001 sem keppinautar Sunak grófu upp sést hann tala um að hann eigi „vini sem eru aðalsmenn, ég á vini sem eru af efri stétt, ég á vini sem eru, þú veist, af verkamannastétt, eða, ekki af verkamannastétt“.
Úr Winchester lá leiðin í Oxford-háskóla þar sem Sunak nam stjórnmálafræði, heimspeki og hagfræði líkt og svo margir fyrri forsætisráðherrar. Seinna nældi hann sér í MBA-gráðu frá Stanford-háskóla í Bandaríkjunum.

Talinn einn ríkasti þingmaðurinn
Í Bandaríkjunum vann Sunak fyrir fjárfestingabankann Goldman Sachs sem yfirmaður vogunarsjóðs. Þar kynntist hann eiginkonu sinni, Akshötu Murty, dóttur indversks vellauðugs kaupsýslumanns. Saman eiga þau tvö börn. Auðæfi þeirra hafa verið metin á um 730 milljónir punda, jafnvirði hátt í 120 milljarða íslenskra króna. Sunak er því talinn einn ríkasti þingmaðurinn á breska þinginu.
Dvölin vestanhafs hefur í tvígang dregið dilk á eftir sér fyrir Sunak. Þannig kom í ljós í vor að Murty hafði ekki greitt skatta í Bretlandi af tekjum sínum erlendis. Hún braut ekki lög en uppljóstrunin þótti vandræðaleg á sama tíma og Sunak hækkaði skatta á Breta.
Þá var vandræðaleg uppákoma þegar það kom á daginn að Sunak hafði ekki skilað inn svonefndu grænu korti, landvistarleyfi, í Bandaríkjunum í tvö ár eftir að hann varð fjármálaráðherra. Það benti til þess að hann ætlaði að setjast að þar.
Talaði snemma fyrir Brexit
Þegar Sunak sneri aftur til Bretlands tók hann sér stöðu með andstæðingum Evrópusambandsaðildarinnar. Þótti það djarfur leikur pólitískt þar sem þáverandi forysta flokksins var fylgjandi aðild.
Afstaðan reyndist Sunak happadrjúg persónulega þar sem hann hlaut skjótan frama innan flokksins. Hann var skipaður í nokkur minniháttar ráðherraembætti áður en Johnson gerði hann að fjármálaráðherra sínum árið 2020, rétt áður en kórónuveiruheimsfaraldurinn brast á.
Sunak aðhyllist lága skatta, afregluvæðingu og takmörkuð ríkisafskipti. Persónulegt átrúnargoð hans er Margaret Thatcher sem skipar öndvegissess á meðal frjálshyggjumanna ásamt Ronald Reagan, fyrrverandi Bandaríkjaforseta og samtíðarmanni hennar.
Sem fjármálaráðherra beitti Sunak engu að síður „bákninu“ fyrir sig til að bregðast við faraldrinum. Lét hann ríkissjóð greiða laun milljóna launþega sem fyrirtæki létu fara og varð fyrir vikið vinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar.

Fetar í þveröfuga átt við Truss
Í leiðtogakjörinu gegn Truss í sumar reyndist Sunak sannspár. Gagnrýndi hann stórfelld skattalækkunaráform Truss sem „ævintýri“ sem hún gæti aldrei staðið við í ljósi blússandi verðbólgu sem hefur geisað í Bretlandi líkt og víðar. Ríkisstjórn Truss féll meðal annars eftir að hún varð að draga áform sín um umfangsmiklar skattalækkanir til baka í ljósi óróa á fjármálamörkuðum, hrun breska pundsins og gagnrýni Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
„Ég vil heldur tapa með því að berjast fyrir því sem ég tel af ástíðu að sé rétt fyrir landið okkar og að vera trúr mínum gildum en að vinna með innantómum loforðum,“ sagði Sunak sem átti þola gagnrýni fyrir að snúa baki við Johnson.
Líklegt að sem forsætisráðherra muni Sunak nú feta þveröfuga leið við Truss með skattahækkunum og miklum niðurskurði ríkisútgjalda til þess að stemma stigu við dýrtíð sem plaga almenning.
Sunak mun frá upphafi glíma við andstreymi, ekki aðeins frá Verkamannaflokknum sem er þegar byrjaður að lýsa nýja forsætisráðherranum sem fulltrúa ofurríkrar elítu, heldur einnig inn eigin flokks þar sem margir kenna honum um fall Johnson, þeirra fyrrum ástsæla leiðtoga.