Brassar verða án Neymar út riðlakeppnina Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 25. nóvember 2022 19:00 Neymar missir af næstu tveimur leikjum Brassa á HM. Lars Baron/Getty Images Brasilíska landsliðið í knattspyrnu þarf að sætta sig við það að leika án sinnar stærstu stjörnu það sem eftir lifir riðlakeppninnar á HM sem nú fer fram í Katar. Neymar þurfti að fara meiddur af velli í sigri liðsins gegn Serbíu í gær og nú er ljóst að hann missir af næstu tveimur leikjum liðsins.
Neymar fór af velli á 80. mínútu leiksins eftir samstuð við Nikola Milenkovic. Leikmaðurinn var augljóslega í sárum eftir að hann var tekinn af velli og myndir eftir leikinn sýndu mikla bólgu á hægri ökkla hans. Þrátt fyrir að hafa misst sína stærstu stjörnu af velli vann brasilíska liðið öruggan 2-0 sigur þar sem framherjinn Richarlison skoraði bæði mörk liðsins. Liðinu nægir því einn sigur í seinustu tveimur leikjum riðlakeppninnar, en Brasilía mætir Sviss næstkomandi mánudag og lokaleikur liðsins í riðlinum er gegn Kamerún á föstudaginn eftir viku. Neymar is out injured for the rest of the group stage... 😫 pic.twitter.com/YQnO5ykRCS— SPORTbible (@sportbible) November 25, 2022 Þá mun bakvörðurinn Danilo einnig missa af næstu tveimur leikjum vegna meiðsla. „Neymar og Danilo fóru í myndatöku í dag og við sáum skemmdir á liðböndum í ökkla á þeim báðum,“ sagði læknir liðsins, Rodrigo Lasmar. „Nú er mikilvægt að halda ró sinni og endurmeta stöðuna á hverjum degi. Hugmyndin er að þeir muni ná sér svo þeir geti klárað mótið.“ Eftir sigur Brassa gegn Serbum sagði þjálfari liðsins, Tite, einnig að hann væri sannfærður um að Neymar myndi spila meira á mótinu.
HM 2022 í Katar Mest lesið Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Íslenski boltinn Raya hetjan er Skytturnar lögðu rútunni í Bergamo Fótbolti „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Handbolti Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Handbolti Trompaðist eftir misheppnaða hælsendingu í dauðafæri: „Nei! Nei! Nei!“ Fótbolti Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Enski boltinn Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Íslenski boltinn „Djúpir dalir en þú kemst upp úr þeim“ Sport Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Enski boltinn Fleiri fréttir Seinna spjaldið var ekki viljandi: „Er bara pirraður og missi hausinn“ „Ein besta markvarsla sem ég hef séð“ Atlético lagði sprækt lið Leipzig Rautt spjald snemma leiks dýrt spaug fyrir Börsunga Raya hetjan er Skytturnar lögðu rútunni í Bergamo Benfica og Leverkusen byrja á sterkum útisigrum Uppgjörið: Afturelding - Fjölnir 3-1 | Brenndu víti en tóku tveggja marka forystu Úlfur Ágúst orðaður við Messi og félaga á Miami Sparkað eftir tapið rosalega gegn Bayern Trompaðist eftir misheppnaða hælsendingu í dauðafæri: „Nei! Nei! Nei!“ Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Haaland neitaði að gefa Acerbi treyjuna sína eftir að hann hafði ítrekað togað í hana Næstu mótherjar Íslands mun ofar á heimslista Fannst stemningin á Etihad steindauð Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Utan vallar: Total-fótboltamaðurinn sem rétti Blikakúrsinn Sjáðu öll mörkin og ævintýralegt klúður Gazzaniga Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Stúkan: „Sama hvað hann gerir ekki gefa honum gult spjald“ Stjarnan í vondum málum eftir tap í Írlandi Var hetjan framan af en stóð uppi sem skúrkurinn Markalaust á Etihad Íslendingalið Vålerenga og Wolfsburg með misgóða sigra í Meistaradeildinni Man City saknaði ekki þeirrar markahæstu og Arsenal tapaði í Svíþjóð Keflavík í góðri stöðu Rómverjar búnir að finna eftirmann De Rossi Sjá meira