Guðný lagði upp í stórsigri í Íslendingaslag Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 26. nóvember 2022 15:40 Guðný Árnadóttir lagði upp fyrsta mark AC Milan í dag. Getty/Pier Marco Tacca Guðný Árnadóttir og stöllur hennar í AC Milan unnu sannkallaðan stórsigur er liðið heimsótti Alexöndru Jóhannsdóttur og liðsfélaga hennar í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 1-6 og Guðný átti sinn þátt í fyrsta marki gestanna.
Það var nefnilega Guðný sem lagði upp fyrsta mark AC Milan fyrir Martina Piemonte strax á 11. mínútu leiksins áður en Lindsey Thomas bætti tveimur mörkum við í fyrri hálfleik. Piemonte skoraði svo annað mark sitt og fjórða mark gestanna á lokamínútu fyrri hálfleiksins og staðan þvó 0-4 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Heimakonur í Fiorentina minnkuðu svo muninn strax á fyrstu mínútu síðari hálfleiks og kannski einhverjir sem létu sér dreyma um ótrúlega endurkomu. Þeir draumar flugu þó út um gluggann þegar Stephanie Breitner varð fyrir því óláni að setja boltann í eigið net á 75. mínútu áður en Michaela Dubcova gulltryggði öruggan fimm marka sigur AC Milan, 1-6. Bæði lið höfðu tapað einum og gert eitt jafntefli í seinustu tveimur umferðum og því voru bæði lið orðin þyrst í sigur. Fiorentina þarf þó að bíða eitthvað lengur eftir sínum sigri, en liðið situr í þriðja sæti deildarinnar með 19 stig eftir tíu leiki, þremur stigum meira en AC Milan sem situr í fimmta sæti.
Ítalski boltinn Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Íslenski boltinn Leikurinn í kvöld klárast rétt fyrir miðnætti og því dræm mæting Sport Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Fleiri fréttir Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Sjá meira