Ísland engan veginn í stakk búið fyrir viðamiklar lyfjarannsóknir Hólmfríður Gísladóttir skrifar 1. desember 2022 08:11 Sílósíbín er unnið úr sveppum og er nú mikið í umfjölluninni vegna forvitnilegra eiginleika og áhrifa á heilastarfsemina. Getty/Washington Post/Jahi Chikwendiu Ísland er langt í frá reiðubúið til að taka þátt í umfangsmiklum lyfjarannsóknum, ef marka má umsagnir um þingsályktunartillögu um heimild til rannsókna og notkunar á efninu sílósíbíni (e. psilocybin) í geðlækningum.
Vandamálið er meðal annars vanfjármögnun og skortur á mannauð. Bæði geðþjónusta Landspítalans og Læknadeild Háskóla Íslands hafa skilað inn umsögn en í báðum er talað um nauðsyn þess að hlúa betur að meðferð vegna alvarlegs þunglyndis hér á landi og nefnt að Landspítalinn hefur enn ekki yfir að ráða búnaði til segulörvunar á heila, sem hefur gefið góða raun erlendis. Í umsögn geðþjónustu Landspítalans, sem rituð er af Nönnu Briem geðlækni, er fjallað um athugun sem fór fram hér á landi í fyrra og fyrr á þessu ári um möguleika þess að geðþjónusta LSH yrði þátttakandi í alþjóðlegri fasa 3 rannsókn á virkni sílósíbíns gegn meðferðarþráu þunglyndi. Landspítalinn varð ekki fyrir valinu þar sem innviðir spítalans þóttu fremur veikir og vanfjármagnaðir til þátttöku í umfangsmiklum alþjóðlegum lyfjarannsóknum, í samanburði við sambærileg háskólasjúkrahús á Norðurlöndum. „Því er ljóst í mínum huga að það myndi krefjast umtalsverðra fjármuna og uppbyggingar á rannsóknainnviðum ef geðþjónusta Landspítala ætti að geta komið að klínískum rannsóknum á sílósíbíni og skyldum efnum sem standast alþjóðlegar rannsóknarkröfur,“ segir Nanna í umsögninni. Hún segir segulörvun á heila hins vegar annan meðferðarkost gegn meðferðarráðu þunglyndi, það er að segja þunglyndi sem hefur ekki svarað að minnsta kosti tvenns konar lyfjameðferð. Nærtækara væri að spítalinn fengi fjármuni til að geta boðið upp á segulörvun sem meðferð, fremur en að endurtaka rannsóknir á sílósíbíni hér á landi, sem þegar eru stundaðar á miklu stærri skala erlendis. Segir segulörvun geta leitt til 85 prósent bata á viku Engilbert Sigurðsson, prófessor í geðlæknisfræði og yfirlæknir geðþjónustu Landspítalans, er höfundur umsagnar Læknadeildar Háskóla Íslands en það var hann sem stóð fyrir fyrrnefndri athugun á mögulegri þátttöku Landspítala í hinni alþjóðlegu fasa 3 lyfjarannsókn. „Landspítali varð ekki fyrir valinu til að taka þátt í þessu fjölþjóðlega verkefni og kom það undirrituðum ekki á óvart í ljósi þess hve margt vantaði upp á að við hefðum nægilegar góðar aðstæður til að uppfylla öll skilyrði sem mæta þarf í stórum fasa 3 lyfjarannsóknum,“ segir Engilbert í umsögninni. Hann segir að ef marka megi texta greinargerðar með þingsályktunartillögunni ætti Ísland að verða leiðandi í fasa 2 og fasa 3 rannsóknum annars vegar og rannsóknum á dýrum hins vegar. „Hvað varðar ofangreindar rannsóknir á dýrum og bindingu efna í heila og áhrif þeirra á miðtaugakerfið í dýrum og mönnum, þá er ekki til sérhæfður tækjabúnaður, aðstaða, þekking né heldur sérþjálfað starfsfólk hér á landi til að koma að slíkum rannsóknum á þann hátt að Ísland gæti orðið leiðandi á Norðurlöndum, hvað þá á heimsvísu,“ segir Engilbert. „Slíkar rannsóknir krefjast sérhæfðs húsnæðis fyrir rannsóknir á dýrum og mönnum, margs konar dýrs og flókins tækjabúnaðar og þekkingar innfluttra sérfræðinga ef koma ætti af stað slíkum rannsóknum hér á landi.“ Engilbert segir þátttöku Íslands í fjölþjóðlegum klínískum lyfjarannsóknum hafa dregist mjög saman síðustu 15 til 20 ár. Landspítalinn verji enda minna en 1 prósenti af veltu til vísindastarfa, á meðan hlutfallið sé 5 til 10 prósent á sambærilegum háskólasjúkrahúsum á Norðurlöndunum. „Ef rekja má áhuga þingheims á þessu máli til vaxandi skilnings á mikilvægi öflugri og skilvirkari meðferðar á alvarlegu og þrálátu þunglyndi sem ekki svarar hefðbundinni meðferð, vill undirritaður benda á að ný og skjótvirkari heilaörvun afmarkaðs svæðis í framheila (prefrontal dorsolateral cortex) með segulörvun, aðferð sem hefur verið notuð í meira en áratug, hlaut ábendinguna alvarlegt meðferðarþrátt þunglyndi frá FDA í BNA nú í septembermánuði 2022,“ segir Engilbert. Umrætt tæki veiti allt að 85 prósent bata á einni viku. Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu eigi tæki sem dragi úr einkennum á sex vikum en á Landspítala sé ekki til tækjabúnaður til að veita segulörvun af neinu tagi.
Heilbrigðismál Lyf Geðheilbrigði Alþingi Hugvíkkandi efni Mest lesið Íranir skjóta á Ísrael Erlent Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Innlent Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu Innlent Drengurinn fannst heill á húfi Innlent Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Innlent Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Innlent Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Erlent Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Erlent Framtíð Moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Innlent „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Innlent Fleiri fréttir Drengurinn fannst heill á húfi „Ofurnjósnaskip Pútíns“ í íslenskri lögsögu Framtíð Moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Taka L-listann með sér í meirihluta Óumflýjanlegt að atvinnuleysi aukist Óttaslegnir íbúar binda vonir við nýjan meirihluta Hætt við sýningarflug Airbus-þotu yfir Reykjavík Braut kynferðislega á stúlku sem lá með skerta meðvitund á bráðamóttökunni Aðstoðuðu ferðamenn að Fjallabaki „Það er prjónabylting í gangi á Íslandi“ Frábær árangur Teits í alþjóðlegri keppni Eitt er það sem Tómas vissi og gerði, annað hvað honum gekk til Rýnt í stöðu Icelandair og prjónagarn selst upp Gæslan fylgist grannt með rússnesku skipi Dæmdur fyrir tvær nauðganir: Kom steinmunum fyrir í kynfærum konu „Þetta er bara alveg svívirðilegt“ Tilkynnt í annarlegu ástandi og reyndist vera á stolnum bíl Kærðir fyrir að aka á nagladekkjum Harður árekstur á Reykjanesbraut Fjármálastjórinn verður sveitarstjóri Bjóða bæjarbúum á bakgarðstónleika Segir hægrið sækja fram gegn náttúruvernd og mannréttindum Leigubílstjóri jók hraðann á rauðu ljósi og ók á eldri konu Ásta endurráðin í Bláskógabyggð Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Sjálfstæðisflokkur tekur Framsókn með sér í meirihluta Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Áhyggjur Barnaheilla, veikindi prinsessu og sjómannadagur Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Grunaður um fíkniefnabrot á reynslulausn og neitaði að gefa upp nafn Sjá meira