Á ráðstefnu New York Times í gær sagði Zuckerberg að forsvarsmenn Apple hefðu „nokkurn veginn staðsett sig sem eina fyrirtæki sem er að reyna að stjórna því, einhliða, hvaða smáforrit komast á tæki.“ Þetta sagði Zuckerberg ekki vera sjálfbæra eða góða stöðu.
Apple gerir öllum hugbúnaðarfyrirtækjum sem þróa snjallforrit fyrir stýrikerfi Iphone-síma að selja þau í gegnum Appstore-forritaverslunina. Fyrirtækin verða einnig að nota greiðslukerfi þar sem Apple tekur 30% þóknun af öllum greiðslum.
Sjá einnig: Apple slakar á klónni gagnvart minni hugbúnaðarfyrirtækjum
Samkvæmt frétt Wall Street Journal vísaði Zuckerberg í kjölfarið til sýndarveruleikabúnaðar Meta og sagði að þar myndu forritarar njóta meira frelsis varðandi hvaða forrit notendur búnaðarins gætu fengið sér.
„Það er vafasamt þegar eitt fyrirtækið ræður því hvaða forrit eru í boði,“ sagði Zuckerberg um Apple, sem framleiðir iPhone, einhverja vinsælustu snjallsíma heimsins.
Mark Zuckerberg, the chief executive of Meta, said that Apple stood out from competing platforms for its attempts to control unilaterally what apps get on a device. https://t.co/PDgcEamzwc pic.twitter.com/cSSb8t8i9n
— The New York Times (@nytimes) December 1, 2022
Elon Musk, sem var nýverið þvingaður til að kaupa Twitter fyrir 44 milljarða dala, lýsti því yfir fyrr í vikunni að Apple hefði dregið verulega úr auglýsingum sínum á Twitter og velti því fyrir sér á samfélagsmiðlinum sínum hvort Apple hataði málfrelsi. Því seinna hélt hann því fram að Twitter hefði borist hótun frá Apple um að forritið yrði fjarlægt úr forritaverslun fyrirtækisins og að starfsmenn Apple vildu ekki segja af hverju.
Sjá einnig: Musk segist ætla í stríð við Apple
Fljótt kom í ljós að hvorug staðhæfing Musks reyndist rétt.
Apple eyddi meira í auglýsingar á Twitter í nóvember en fyrirtækið gerði í október, samkvæmt gögnum sem blaðamaður tæknimiðilsins Gizmodo greindi.
Þá sagði Musk frá því í gær að Tim Cook, forstjóri Apple, hefði boðið sér í heimsókn til höfuðstöðva fyrirtækisins og þeir hefðu rætt saman. Musk sagði að Cook hefði gert sér ljóst að aldrei hefði staðið til að loka á Twitter í forritaverslun Apple.
Good conversation. Among other things, we resolved the misunderstanding about Twitter potentially being removed from the App Store. Tim was clear that Apple never considered doing so.
— Elon Musk (@elonmusk) November 30, 2022