Samkvæmt reglunum átti síðasta markið hans Messi aldrei að vera dæmt gilt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. desember 2022 09:31 Lionel Messi fagnar marki í úrslitaleiknum á móti Frakklandi. Þau urðu tvö en annað þeirra átti kannski aldrei að standa. AP/Francisco Seco Lionel Messi skoraði tvö mörk í úrslitaleik HM og Argentína vann heimsmeistaratitilinn eftir vítakeppni.
Messi skoraði seinna markið sitt í framlengingu en fljótlega eftir leik fóru sumir að setja spurningarmerki við þetta mark hans. Samkvæmt ströngustu reglum fótboltans þá átti nefnilega að dæma seinna mark Lionels Messi í úrslitaleiknum ógilt. Selon le règlement, le second but de Messi, dans la prolongation, aurait dû être refusé par l'arbitre de la rencontre, Szymon Marciniak. Des remplaçants argentins étaient, déjà, sur la pelouse avant que le ballon ne dépasse la ligne de but d'Hugo Lloris https://t.co/zR3T2EekCR pic.twitter.com/D8cmoe8xw5— L'ÉQUIPE (@lequipe) December 19, 2022 Franska blaðið L´Equipe skrifaði um þetta eftir leikinn og birti meðal annars mynd af því þegar boltinn er á leiðinni yfir línuna og það má sjá varamenn Argentínu vera komna inn á leikvöllinn í fjarska. Ástæðan er að tveir varamenn Argentínu voru komnir inn á leikvöllinn til að fagna markinu áður en Messi kom boltanum yfir línuna. Þetta fór fram hjá myndbandadómurunum eða þeim fannst ekki ástæða til að beita reglubókinni til að dæma markið af. If you're a stickler for the rules, Lionel Messi's 2nd goal last night for #ARG should have been chalked off.https://t.co/jKKdQ22jP7— Joe Krishnan (@joekrishnan) December 19, 2022 Samkvæmt grein í reglubók IFAB þá verður dómarinn að dæma mark af ef einhver fer ólöglega inn á völlinn hvort sem það sé leikmaður, varamaður, leikmaður sem hefur verið skipt út af, leikmaður sem hefur verið rekinn af velli eða þjálfari liðsins sem skoraði. Í stað marksins þá hefði dómarinn átt að dæma Frökkum aukaspyrnu þar sem varamenn Argentínu hlupu inn á völlinn. Argentínumenn sluppu með skrekkinn en Frakkar náðu síðan að jafna metin og tryggja sér vítakeppni. Þar voru Argentínumenn sterkari á taugum og unnu sinn fyrsta heimsmeistaratitil frá 1986.
HM 2022 í Katar Mest lesið Sigursteinn barðist við tárin Handbolti „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn Handbolti „Það er algjör geðbilun að spila í þessum hita“ Sport Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Handbolti Carlsen í neðsta sæti í Noregi Sport Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Handbolti Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Handbolti Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Íslenski boltinn Vilja ráða Iraola eða Lampard Enski boltinn Neitaði að taka í hönd hennar: „Væri til skammar að svindla svona“ Sport Fleiri fréttir Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Jón Daði utan hóps af persónulegum ástæðum Stórhuga Börsungar að undirbúa tilboð í Álvarez Vilja ráða Iraola eða Lampard Frimpong í kuldanum og fer ekki á HM Mikil leynd yfir meiðslum Neymar en þau minna á Romário Vann tvo Evróputitla sama vorið Sér ekkert að því að senda leikmönnum bara tölvupóst Sjáðu markið sem tryggði Palace sigur í Sambandsdeild Evrópu Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Afturelding á flugi, 16 ára hetja Gróttu gegn Þrótti og fyrsti sigur Ægis Unnu sinn fyrsta Evróputitil í kveðjuleik Glasners Davíð Smári fór illa með gömlu lærisveinana Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Fyrirliðinn braut hjörtu Hearts Dæmi um að landsliðsmenn hafi keypt tíu miða Olga dæmd í tveggja leikja bann fyrir „ofsafengna framkomu“ Stórlið slást um Gordon Schmeichel neyðist til að hætta vegna meiðsla Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Bíður lengur eftir fyrsta landsleiknum eftir slæm tíðindi Nuno verður áfram stjóri West Ham Sveindís ekki með í mikilvægum leikjum Íslands Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Sjáðu listir Valdimars, vítið sem enginn bað um og rauða spjaldið Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz Risafréttir af Putellas fyrir Reykjavíkurför HM-hetja mun stýra Alberti Sjá meira