Sér ekkert að því að senda leikmönnum bara tölvupóst Ágúst Orri Arnarson skrifar 28. maí 2026 09:30 Pochettino skilur lítið í gagnrýninni sem hann hefur fengið. Adam Hunger/Getty Images Mauricio Pochettino hefur verið gagnrýndur fyrir að senda tölvupóst á leikmenn sem hann valdi ekki í bandaríska landsliðshópinn fyrir HM, frekar en að hringja í þá. Sjálfur skilur Pochettino ekkert í þessari gagnrýni.
Það er vant með farið að velja landsliðshóp, óhjákvæmilega þarf að skilja einhverja leikmenn eftir og annað hvort láta þá vita af því eða bara ekki, eins og Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari Íslands ákvað að gera í eitt skipti með Jóhann Berg Guðmundsson. Pochettino fór þá leið að senda öllum leikmönnum tölvupóst. 26 leikmenn fengu því gleðifréttir í pósthólfið, myndband af Pochettino tilkynna þeim valið, en hinir 29 leikmennirnir úr 55 manna úrtakshópnum fengu slæmar fréttir skriflega. Had to add 26 guys into the group chat. 📲This is what it means. ❤️ pic.twitter.com/N3IO3ru1Fy— U.S. Soccer Men's National Team (@USMNT) May 26, 2026 Fyrrum leikmaður bandaríska landsliðsins, Herculez Gomez, steig fram og gagnrýndi Pochettino fyrir þessa samskiptaleið. Hann benti á að fyrrum þjálfarar hans hjá landsliðinu, Bob Bradley og Jurgen Klinsmann, hefðu alltaf hringt. „Þetta er hörð og harkaleg framkoma við leikmenn, sem hafa lagt blóð og svita í verkefnið. Diego Luna er næst leikjahæsti leikmaður liðsins en var ekki valinn. Ertu að segja mér að þú hafir ekki einu sinni tekið upp símann og talað við hann?... Horfðu í kringum þig og þú sérð auglýsingar af honum fyrir HM. Þið áttuð ekki í neinum vandræðum með að mjólka hann í markaðsefni fyrir nokkra dollara svo það minnsta sem hann á skilið er útskýring,“ sagði Gomez. Pochettino svaraði fyrir gagnrýni á starfshætti hans. „Hvað á ég að segja við leikmann? Á ég að ljúga? Það eina sem ég hef að segja er að annar leikmaður varð fyrir valinu, því eins og staðan er í dag er hann betri valkostur… Það eru 55 leikmenn í úrtakshópnum og þarf ég núna að hringja í þá alla? Þarf ég að gera það líka í mars? En í landsliðsverkefnum í janúar? Þetta er ekki rétta leiðin,“ sagði Pochettino. A look at the @USMNT's path through the FIFA World Cup group stage 🇺🇸 pic.twitter.com/G8Prg6BYpq— FOX Sports (@FOXSports) May 26, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti FH - KR 1-1 | Færanýtingin fór með gestina Íslenski boltinn Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Íslenski boltinn Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fleiri fréttir Infantino kom út af neyðarfundinum með afsökunarbeiðni og hótun „Það er skellur“ FH - KR 1-1 | Færanýtingin fór með gestina Gamli West Ham-leikmaðurinn allt í öllu á sigri á Arsenal Jaissle ráðinn aðalþjálfari Newcastle Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sagði það „augljósa“ ákvörðun að velja Man City frekar en Arsenal Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Lukaku lætur ekki sjá sig Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Sjá meira