Mourinho púaði á vítaskyttu og bað sína menn að gera sér upp meiðsli í krakkaleik Roma og Lazio Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. mars 2023 16:01 José Mourinho fagnaði með ungu Rómverjunum eftir sigurinn á Lazio. roma Eftir að hafa verið rekinn af velli í þriðja sinn á tímabilinu er José Mourinho, knattspyrnustjóri Roma, aftur búinn að koma sér í fréttirnar fyrir vafasama hegðun.
Á sunnudaginn var Mourinho áhorfandi á leik U-14 ára liða Roma og Lazio þar sem hann fór mikinn og verulega í taugarnar á þjálfurum Lazio. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum púaði Mourinho á leikmann Lazio þegar hann tók vítaspyrnu og þá hvatti hann leikmenn Roma til að leggjast í grasið og gera sér upp meiðsli til að tefja leikinn eftir að þeir komust yfir. Roma vann leikinn, 2-1. José Mourinho invited the U14 squad into the first team gym to celebrate their derby victory with him and the players! #ASRoma pic.twitter.com/uh5yFEkh1E— AS Roma English (@ASRomaEN) February 26, 2023 Tveimur dögum eftir þetta fékk Mourinho rautt spjald þegar Roma tapaði fyrir Cremonese, 2-1, í ítölsku úrvalsdeildinni. Mourinho var verulega ósáttur við fjórða dómara leiksins og sagði hann hafa talað á óviðunandi hátt við sig. „Ég er tilfinningaríkur en ekki brjálaður. Í fyrsta sinn á ferlinum talaði dómari á óafsakanlegan hátt við mig,“ sagði Mourinho eftir leikinn. Mourinho er á sínu öðru tímabili með Roma. Liðið er í 5. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar með 44 stig, einu stigi á eftir Lazio sem er í 4. sætinu.
Ítalski boltinn Mest lesið Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Enski boltinn Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Fótbolti Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Körfubolti Popovich fékk heilablóðfall Körfubolti Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Enski boltinn Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Handbolti Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Handbolti Fleiri fréttir Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Coote dómari í enn verri málum Misskemmtilegt kvöld hjá íslensku konunum í Meistaradeildinni Kanté fær fyrirliðabandið hjá Frökkum Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Sá sem beit mótherja mætir ekki Íslandi Reiddist blaðamanni: „Þú ert alveg vonlaus“ Furða sig á fangelsisdómnum sem forsetinn fékk Tómas tryggði strákunum sigur á Aserum Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt Vildi ekki deila Match of the Day með konu og hafnaði tilboði BBC Tengdasonur Roy Keane í enska landsliðinu Óþekkjanlegur Adriano: „Ég drekk á hverjum degi“ Hætt eftir drónaskandalinn Frönsk fótboltastjarna fékk fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot Leika fyrir luktum dyrum í öðru landi eftir lætin í Amsterdam Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Sjá meira