Tveir mánuðir frá síðasta marki Dzeko Valur Páll Eiríksson skrifar 23. mars 2023 08:01 Dzeko hefur ekki skorað mikið að undanförnu. Getty Edin Dzeko er án efa skærasta stjarna bosníska landsliðsins sem mætir því íslenska á Bilino Polje-vellinum í Zenica klukkan 19:45 í kvöld. Hann hefur hins vegar oft verið á betra skriði en undanfarið.
Dzeko er leikmaður Inter Milan á Ítalíu en hefur glímt við töluverða markaþurrð síðustu vikur með liðinu. Hann er orðinn 37 ára gamall og er bæði leikjahæsti og markahæsti leikmaður í sögu Bosníu. Hann hefur leikið 126 landsleiki og skorað í þeim 64 mörk. Honum hefur aftur á móti gengið illa að skora síðustu vikur með Inter Milan en hans síðasta mark kom í 3-0 sigri á AC Milan í Ofurbikar Ítalíu þann 17. janúar. Tveir mánuðir eru því liðnir frá síðasta marki kappans og hefur hann leikið ellefu deildarleiki frá því hann skoraði síðast í Seríu A, í 1-0 sigri á Napoli í upphafi árs. Framherjinn stæðilegi á hins vegar til að stíga upp með landsliðinu og er til alls líklegur í kvöld gegn íslenskri vörn sem hefur oft verið betur mönnuð. Sverrir Ingi Ingason dró sig úr landsliðshópnum og þá verður Aron Einar Gunnarsson í leikbanni. Leikur Íslands og Bosníu hefst klukkan 19:45 í kvöld og verður lýst beint á Vísi auk þess sem allt saman verður gert vel upp eftir leik.
Landslið karla í fótbolta EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira