Fótbolti

Siggi Raggi gerði NSÍ Runa­vík að meisturum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er að eiga draumatímabil í Færeyjum.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson er að eiga draumatímabil í Færeyjum. NSÍ Runavík

NSÍ Runavík tryggði sér færeyska meistaratitilinn í fótbolta í dag í síðasta heimaleiknum sínum á tímabilinu.

NSÍ nægði stig til að tryggja sér titilinn og gerði 1-1 jafntefli við HB Þórshöfn.

Það var Petur Knudsen sem jafnaði metin á 84. mínútu og tryggði sínu félagi titilinn í fyrsta sinn í nítján ár. Þetta er líka aðeins annar meistaratitill félagsins í 69 ára sögu þess.

HB hafði komist yfir eftir klukkutíma leik og það stefndi því í að Siggi Raggi og lærisveinar þyrftu að bíða í tæpa viku í viðbót. Sex mínútum fyrir leikslok skoraði Knudsen þetta mikilvæga mark.

NSÍ er með fjögurra stiga forskot þegar aðeins ein umferð er eftir.

Pétur Knudsen átti flott tímabil en hann er markahæsti leikmaður deildarinnar með þrettán mörk.

Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfar NSÍ en þetta er hans fyrsta tímabil í Færeyjum og hefur hann því heldur betur stimplað sig inn í færeyska fótboltann.

KÍ Klaksvík vann sinn leik 3-0 á sama tíma og hefði því minnkað forskotið í þrjú stig ef NSÍ hefði tapað sínum leik en Klaksvíkurmenn eru með betri markatölu.

NSÍ Runavík á eftir einn leik en liðið mætir botnliði B68 Toftir á útivelli um næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×