Framtíð netverslunar í Hörpu Hjörvar Hermannsson kynnir 3. maí 2023 12:14 Á Ráðstefnunni Framtíð netverslunar verður reynt að snerta á sem flestum þáttum sem tengjast netverslun. Ráðstefnan hefst kl. 9 í Hörpu, föstudaginn 19. maí. Mynd/Vilhelm Ráðstefnan Framtíð netverslunar verður haldin í Silfurbergi í Hörpu föstudaginn 19. maí.
Þar verða fluttir tíu fróðlegir og fjölbreyttir fyrirlestrar af fulltrúum íslenskra fyrirtækja sem koma að netverslun úr ólíkum áttum en eiga þó sameiginlegt að vera framarlega á sínu sviði. Skipuleggjandi ráðstefnunnar er Hjörvar Hermannsson en hann hefur starfað í kringum netverslunargeirann undanfarin ár og þekkir þennan markað því afar vel. Tíu fyrirlesarar frá fulltrúum íslenskra fyrirtækja sem koma að netverslun úr ólíkum áttum halda erindi á ráðstefnunni í Hörpu. „Á þessari ráðstefnu reynum við að snerta á sem flestum þáttum sem tengjast netverslun. Það eru yfir þúsund fyrirtæki á Íslandi sem selja vörur sínar og þjónustu í gegnum vefinn og svo öll þjónustan og vöruframboðið tengt því. Þetta mengi er því talsvert stórt.” Hjörvar Hermannsson er skipuleggjandi ráðstefnunnar. Hann hefur starfað í kringum netverslunargeirann í mörg ár og þekkir þennan markað afar vel. Mikill vöxtur hefur átt sér stað Hann segir sífellt fleiri fyrirtæki hérlendis leggja aukna áherslu á netverslun auk þess sem neytendur séu komnir með góða reynslu af henni og átta sig betur á þægindum hennar. „Það er mjög margt í gangi og fyrirtæki eru almennt farin að hafa mun meiri trú á netverslun en áður. Neytendur eru líka farnir að sjá einfaldleikann í því að nýta sér þær lausnir. Fyrir ekki svo löngu síðan höfðu margir ekki trú á því að tryggingar eða bílar yrðu seldir í netverslun. Í dag er Tesla að reka öfluga netverslun og TM hlaut nýlega íslensku vefverðlaunin fyrir söluvef ársins. Það eru því breyttir tímar.“ Dagskráin inniheldur fróðlega og fjölbreytta fyrirlestra. Boðið er upp á kaffi og te allan daginn og hádegisverð. Hjörvar skipulagði ráðstefnuna upphaflega rétt fyrir Covid og þá hafði hann hugsað sér að flytja inn erlenda fyrirlesara í bland við þá sem starfa hér á landi. „Í Covid faraldrinum átti ég mörg samtöl við fagfólk í geiranum hér heima og sá þá fljótlega að óþarfi væri að flytja inn þekkingu þegar við eigum nóg af henni hér á landi. Það er rosalega mikið af flottu fólki og fyrirtækjum sem starfa í þessum geira og við megum vera stolt af þeim.“ Mikill áhugi til staðar Hann segir mikinn áhuga hafa ríkt hjá fyrirtækjum að taka þátt í ráðstefnunni og önnur fyrirtæki séu að senda sitt fólk á hana, ekki bara starfsfólk markaðs- og vefdeilda heldur séu margir almennt áhugasamir um að hlusta á stefnu og strauma á þessum markaði. „Það er augljóst að það eru mikil gæði til staðar og rosalega mikið af flottu fólki sem starfar við ýmislegt tengt netverslun hér á landi. Ráðstefnugjald er 28.900 kr. og er hægt að kaupa miðar hér. Hægt er að kynna sér fyrirlesara og smá fróðleik um hvern fyrirlestur hér. Innifalið í verðinu er kaffi og te yfir daginn ásamt hádegisverði í Hörpu. Boðið verður upp á sítrónu maríneraðan kjúkling með tómötum og mozzarella osti. Einnig verður boðið upp á vegan rétt sem er engifergljáðar oumph bollur með pastasalati, ristuðu grænmeti og kryddjurtasósu. Kynnir ráðstefnunnar er Brynja Dan.
Verslun Tækni Mest lesið Brutu lög við söluna á Íslandsbanka og greiða yfir 60 milljónir í sektir Viðskipti innlent Ekkert tillit tekið til aðstæðna og ljóst að vöruúrval minnki Viðskipti innlent Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Viðskipti erlent Pakkarnir séu langt frá því að vera sambærilegir Viðskipti innlent Síminn má dreifa efni Sýnar Viðskipti innlent Húrra opnar þriðju verslunina á höfuðborgarsvæðinu Viðskipti innlent Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Neytendur Hryllingssögur og dæmi: „Slúbbertar halda heilu stofnunum í gíslingu“ Atvinnulíf Segir félaginu skylt að skipta sér af „sorgarvegferð“ Play Viðskipti innlent Seldu samheitalyf við hvítblæði og HIV fyrir hundruð milljóna Viðskipti innlent Fleiri fréttir BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Nýr vefur Félags foreldra- og uppeldisfræðinga kominn í loftið „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Sjá meira