Veiðimenn hafa freistast til að veiða við ófullnægjandi skilyrði og hafa þannig þverbrotið lög Ole Anton Bieltvedt skrifar 12. maí 2023 07:00 Ný skýrsla, sem sannar þann hrylling, sem hvalveiðar Kristjáns Loftssonar/Hvals hf eru, liggur nú fyrir. Reyndar var þetta allt löngu vitað, alla vega af þeim, sem vita vildu, en nú liggur viðurstyggileg mynd þessa dýraníðs fyrir með svo óyggjandi hætti, að enginn heiðvirður maður getur lengur litið undan eða stungið höfðinu í sandinn. Í raun eiga sér þarna stað nær ólýsanlegar meiðingar, misþyrmingar og limlestingar háþróaðrar lífveru, spendýrs, eins og við, fíls hafsins, sem finnur fyrir meiðlsum, áverkum og misþyrmingum nákvæmlega eins og við, menn og önnur spendýr. Valda- og kjarklaus ráðherra Sjávarútvegsráðherra (matvælaráðherra) þykist ekki geta stöðvað þennan ljóta eða hryllilega leik; hana vanti til þess lagastaf. Hér er fyrir undirrituðum um undanbrögð og hugleysi ráðherrans að ræða. Hún lætur embættismenn ráðuneytisins vaða yfir sig, beygir sig og bukkar fyrir þeim, eins og í blóðmeramálinu, sem nú er orðin hrein hneysa fyrir hana og ráðuneytið, en þetta ráðuneyti hefur lengst af verið í höndum íhaldsaflanna, D og B, alla vega í seinni tíð, en þau hafa stutt hverskyns dýraníð, svo sem hvalveiðar og blóðmerahald, með ráði og dáð, og safnað fólki sama sinnis í ráðuneytið. Það þarf því kjark og manndóm fyrir ráðherra, sem er með aðra sýn og skoðanir, til að stýra þessu ráðuneyti, en núverandi ráðherra býr augljóslega, því miður, yfir hvorugu. Kjarni hinnar lagalegu hliðar er þessi Hér gilda lög um velferð dýra nr. 55/2013. Markmið laganna hljóðar: „Markmið laga þessara er að stuðla að velferð dýra, þ.e. að þau séu laus við vanlíðan, hungur og þorsta, ótta og þjáningu, sársauka, meiðsli og sjúkdóma, í ljósi þess að dýr eru skyni gæddar erur“. Vart þarf að fjölyrða um, að þetta markmið laganna er marg- og þverbrotið með veiðunum. 21. grein. Aflífun, hljóðar: „Dýr skulu aflífuð með skjótum og sársaukalausum hætti...“ Auðvitað á þetta ákvæði í grundvallar atriðum við um öll dýr, og verður að telja, að andi laganna, tilgangur þeirra, mótist af markmiðinu og þessari grein. Ekki er hægt að ímynda sér, að löggjafinn hafi hugsað lögin þannig, að, annars vegar, væru dýr, sem ekki má misþyrma og kvelja við aflífun, og, hins vegar, væru önnur dýr, hvortveggja kannske háþróuð spendýr, sem mætti misþyrma og kvelja, jafnvel klukkutímunum saman, á versta og illþyrmilegasta hátt, við aflífun. Slík hugsun lögjafans er óhugsandi. 27. grein. Veiðar, hljóðar: Ávallt skal staðið að veiðum þannig að það valdi dýrum sem minnstum sársauka og aflífun þeirra taki sem skemmstan tíma. - Við veiðar er óheimilt að beita aðferðum sem valda dýri óþarfa limlestingum eða kvölum Þessa grein á auðvitað að skilja og túlka í anda markmiðs laganna og 21. greinar, sem er leiðandi grein um aflífun dýra. Veiðileyfi fyrir 2019-2023 frá 05.07.19, grein 3: „Við veiðar skal nota búnað sem tryggir að dýrið aflífist samstundis eða aflífun taki sem skemmstan tíma og valdi þeim sem minnstum þjáningum“. Þetta ákvæði veiðileyfis er auðvitað í samræmi við lögin og anda þeirra. Veiðarnar í framkvæmd og löglega hliðin Til að unnt sé að veiða í anda laganna og uppfylla skilyrði veiðileyfis við veiðar, þarf þetta að koma til 1) stillt veður og rólegur sjór 2) góð birtuskilyrði og gott skyggni 3) reynd, vel þjálfuð og hæf skytta 4) gott ástand byssu og sprengjuskutuls 5) reyndur stjórandi skipsins, sem skilur vel og vinnur vel með skyttu 6) fjarlægð í bráð sé vel innan marka drægni byssu. Ef þessi 6 skilyrði, öll í einu, eru uppfylld, má ætla, að hægt sé að skjóta og drepa hvalinn með einu skoti í anda laganna. Í fyrra voru 148 dýr drepin, þar af 112 með einu skoti. Þessi dýr voru drepin í anda laga og veiðileyfis; voru löglega drepin. Það sannaðist hér, með óyggjandi hætti, að hægt er að fylgja lögum og ákvæði veiðileyfis, veiða með löglegum hætti, ef vandað er til veiðanna, þær framkvæmdar af fullri ábyrgð og fyllstu alúðar og vandvirkni gætt. Ólöglega hliðin, lögbrotin Hér erum við komin að dýrunum 36, sem þurfti að tví- eða margskjóta, eða sluppu illa særð, jafnvel með skutul í baka eftir 5 klukkustunda limlestingar og eftirför!? Augljóslega var ekki staðið að veiði- eða drápstilraunum þessara dýra með sama vandaða, agaða og löglega hætti. Þessar veiðitilraunir voru því ólöglegar. Hér hefur eitt eða fleiri þeirra 6 skilyrða, sem ég listaði upp fyrir löglegum veiðum, verið virt að vettugi eða brotið. Kannske, reynt að veiða í verulegri eða mikilli brælu, úr því að báturinn var kominn út á annað borð. Slíkt væri brot á lögum og veiðiákvæði. Eða, reynt að veiða við ófullnægjandi skyggni eða sýn til að nýta ferðina. Líka ólöglegt. Eða, þess freistað, að skjóta dýr af of löngu færi. Líka kolólöglegt. Einhver hinna skilyrðanna kunna líka að hafa komið til. Ef nokkur örfá dýr hefðu ekki drepist strax, við fyrsta skot, en fljótlega við annað skot, má kannske segja, út frá meðalhófsreglu í stjórnsýslu, að slíkt væri ásættanlegt, en, þegar 36 dýr, 24% allra dýranna, þurfti að tví- eða margskjóta, misþyrma og limlesta í upp í fimm tíma, jafnvel án árangurs eða lúkningar, þá blasir stórfellt lögleysi þessara veiða við, sem sjávarútvegsráðherra verður nú að stöðva strax á grundvelli 8. greinar veiðileyfisins, sem hljóðar: „Brot á ákvæðum leyfisbréfs þessa og sérhver misnotkun á því varðar sviftingu leyfisins tímabundið eða missi þess eftir ákvöðrun ráðuneytisins“ Ef sjávarútvegsráðherra skirrist við að gera skyldu sína í málinu, verða forsætisráðherra og utanríkisráðherra að grípa inn í, því ekki er aðeins velferð dýranna í húfi, sem auðvitað er stórmál í sjálfu sér, heldur líka orðspor og ímynd Íslendinga og Íslands. Höfundur er formaður Íslandi allt, félagasamtaka um samfélagsmál og betra jarðlíf. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ole Anton Bieltvedt Hvalveiðar Mest lesið Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Ég á þetta ég má þetta Arnar Atlason Skoðun Fjórða þorskastríðið er fram undan Gunnar Smári Egilsson Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir Skoðun Fjör á fjármálamarkaði Fastir pennar Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson Skoðun Vilja komast í orku Íslands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Það sem við segjum er það sem við erum Guðný Björk Pálmadóttir skrifar Skoðun Óásættanleg bið, fordómar og aðrar hindranir í kerfinu Helga F. Edwardsdóttir skrifar Skoðun Má bjóða þér einelti? Linda Hrönn Bakkmann Þórisdóttir skrifar Skoðun Fyrir hverja eru ákvarðanir teknar? Helga Þórisdóttir skrifar Skoðun Þá var „útlendingur“ ekki sá sem kom frá framandi heimsálfum Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Kann barnið þitt að hjóla? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Er ég Íslendingur? En þú? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Samkeppni um hagsæld Ríkarður Ríkarðsson skrifar Skoðun Inngilding – eða aðskilnaður? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Húsnæðispakki fyrir unga fólkið og framtíðina Anna María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þegar úrvinnsla eineltismála klúðrast Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Virðum réttindi intersex fólks Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun Ha ég? Já þú! Ekki satt! Hver þá? Arna Sif Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun Samfélagslegur spegill lögreglumannsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Rétt klukka síðan 1968: Höldum í síðdegisbirtuna Erlendur S. Þorsteinsson skrifar Skoðun Traust, von og tækifæri á Norðausturlandi Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Tími til að endurskoða persónuverndarlög sem kæfa nýsköpun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir ,Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar Skoðun Skilin eftir á SAk Gunnhildur H Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Hagræn áhrif íþrótta og mikilvægi þeirra á Íslandi Helgi Sigurður Haraldsson skrifar Skoðun Vegið að heilbrigðri samkeppni Herdís Dröfn Fjeldsted skrifar Skoðun Frjósemisvitund ungs fólks Sigríður Auðunsdóttir skrifar Skoðun Ökuréttindi á beinskiptan og sjálfskiptan bíl Þuríður B. Ægisdóttir skrifar Skoðun Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Ísland á krossgötum: Gervigreindarver í stað álvera! Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Endurreisn Grindavíkur Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Plan sem er sett í framkvæmd í stað áralangrar kyrrstöðu Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar Skoðun 57 eignir óska eftir eigendum Sæunn Gísladóttir skrifar Skoðun Vindhanagal Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Vilja komast í orku Íslands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Tölum um 7.645 íbúðirnar sem einstaklingar hafa safnað upp Arna Lára Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tími til að endurskoða persónuverndarlög sem kæfa nýsköpun Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir ,Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Skoðun Á eineltisdaginn minnum við á eineltisdaginn Helga Björk Magnúsdóttir Grétudóttir,Ögmundur Jónasson skrifar
Skoðun Plan sem er sett í framkvæmd í stað áralangrar kyrrstöðu Ása Berglind Hjálmarsdóttir skrifar