Skoðun

Það er vegið að bændum þessa lands

Anton Guðmundsson skrifar

Öll þekkjum við til íslenskra matarhefða sem fylgt hafa okkur í gegnum tíðina og þjóð okkar í áratugi, eitt það besta sem hægt er að bera á borð á íslenskum heimilum eru íslenskar hreinar afurðir sem aldar eru okkar einstaka landi, þar má nefna sjávarafurðir og afurðir landbúnaðarins.

Flestir vita að notkun sýklalyfja í íslenskum landbúnaði er ein sú minnsta sem gerist í heiminum, sauðkindin drekkur tært lindarvatn og bítur gras við jökulrönd, heilnæmi íslenskra afurða er einstakur á heimsvísu.

Á þeim tímum sem við lifum nú í dag á landbúnaðurinn á íslandi undir högg að sækja, það er sótt að íslenskum bændum víðast hvar, að mínu mati þurfum við að styðja betur við íslenska bændur og auka greiðslur til þeirra í gegnum búvörusamninga. En hver er í raun stefna Matvælaráðherra í þessum efnum ? ætlar ráðherra að auka en frekar á innflutning á erlendu lambakjöti? Fjögur fyrirtæki skiptu með sér tollkvóta fyrir innflutning á 345.000 kg af kinda- eða geita- kjöti á tímabilinu 1. júlí 2022 til 30. júní 2023. Á tímabilinu frá júlí 2022 til og með febrúar 2023 hafa 14.606 kg af kinda- eða geitakjöti verið flutt hingað til lands, langmest, eða 14.209 kg, frá Spáni.

Nú ryðjast þessir innflutningsaðilar með spænskar lambaafurðir inn í matvöruverslanir og á stóreldhúsamarkað með aðeins einu markmiði að undirbjóða afurðir íslenskra bænda, það er vegið að fæðuöryggi íslensku þjóðarinnar með þessari framgöngu. Því eitt er víst ef við höldum áfram að flytja inn landbúnaðarafurðir á verði sem er ekki samkeppnishæft fyrir íslenska bændur þá mun þetta bara enda á einn veg. Þetta er ekki það sem íslenskir bændur þurfa á að halda á krefjandi tímum. Styðjum við bændur þessa lands og veljum íslenskt.

Höfundur er oddviti Framsóknar í Suðurnesjabæ og formaður bæjarráðs.




Skoðun

Sjá meira


×