Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar 24. október 2026 12:00 Tvö ár eru liðin frá því að sautján ára drengur lést í eldsvoða á Stuðlum 19. október 2024. Hann var þar í neyðarvistun, sviptur frelsi sínu á ábyrgð ríkisins. Þegar barn er vistað í lokuðu úrræði til að tryggja öryggi þess verður það að geta treyst því að þar sé því óhætt. Ríkið ber ríka ábyrgð á að tryggja öryggi þessara barna, enda geta þau ekki sjálf yfirgefið húsnæðið þegar hætta steðjar að. Skýrsla Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar (HMS) um brunann var birt 18. mars 2026, um sautján mánuðum eftir eldsvoðann. Niðurstaðan var alvarleg: Ef brunavarnir hefðu verið virkar í samræmi við brunahönnun, þar á meðal rýmingaráætlun, hefði verið hægt að koma í veg fyrir mannslát. Ítrekaðar kröfur um úrbætur höfðu ekki leitt til nauðsynlegra aðgerða. Brunahólfun brást, reyklúgur opnuðust ekki og aflæsingarbúnaður dyra í flóttaleið virkaði ekki. Þá hafði viðbyggingin verið í notkun án tilskilins öryggis- og lokaúttektarvottorðs. Hér brugðust margir þættir þess kerfis sem átti að tryggja öryggi barnanna. Rannsókn má ekki tefjast Rannsókn lögreglu tók rúma tuttugu mánuði áður en málið var afhent ákærusviði síðastliðið sumar. Það er brýnt að skýra hvað fór úrskeiðis og koma í veg fyrir að slíkt gerist aftur. Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála (GEV) hefur það hlutverk að rannsaka alvarleg óvænt atvik í þjónustu sem hún hefur eftirlit með. Markmið slíkrar rannsóknar er að leita skýringa á því sem gerðist og draga af því lærdóm til að koma í veg fyrir að sambærileg atvik endurtaki sig. Rannsókninni á að ljúka með skýrslu um niðurstöðurnar og eftir atvikum tillögum að úrbótum. Rannsókn stofnunarinnar vegna brunans var sett á bið í janúar 2025 vegna þess að ekki var hægt að tryggja að framburður starfsmanna yrði ekki notaður gegn þeim í sakamáli. Rannsókn GEV var síðan lokað 5. maí síðastliðinn án rannsóknarskýrslu. Í umfjöllun fjölmiðla hefur komið fram að GEV hafi talið tímann sem liðinn var hafa torveldað rannsóknina, jafnvel þótt lagaheimildir yrðu bættar. Umboðsmaður barna hefur bent stjórnvöldum á nauðsyn þess að GEV geti rannsakað alvarleg atvik samhliða lögreglurannsókn. Frumvarp um breytingar á lögum um stofnunina er nú til meðferðar á Alþingi. Með því er meðal annars lagt til að vernda framburð sem aflað er við rannsóknir GEV og koma í veg fyrir að rannsóknarskýrslur hennar verði notaðar sem sönnunargögn í sakamálum. Tryggja verður bæði réttindi starfsmanna og möguleikann á að rannsaka öryggi þjónustunnar án tafar. Börn geta ekki beðið árum saman eftir því að kerfið dragi lærdóm af alvarlegum atvikum. Ábyrgðin verður að vera skýr Eftir birtingu skýrslu HMS óskaði umboðsmaður barna upplýsinga frá slökkviliði og byggingarfulltrúa um öryggi húsnæðisins og tilskilin vottorð. Hluti viðbyggingarinnar hafði verið tekinn aftur í notkun í apríl 2025. Spurningin var því hvort öryggi barnanna hefði verið tryggt þegar starfsemin hófst þar að nýju. Umboðsmaður barna kom málinu einnig á framfæri við umboðsmann Alþingis. Athugun umboðsmanns Alþingis leiddi í ljós að notkun húsnæðis neyðarvistunar Stuðla hafði verið óheimil eftir breytingar árið 2021 og fram í maí 2026. Byggingarfulltrúi heimilaði þá notkun þess til bráðabirgða með aukinni mönnun á grundvelli áhættumats brunahönnuðar. Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni með ábendingu um að Barna- og fjölskyldustofa bæri ábyrgð á starfsemi Stuðla þótt annar aðili ætti húsnæðið. Sú ábyrgð gæti m.a. falist í því að ganga úr skugga um að aðbúnaður uppfyllti öryggiskröfur eða eftir atvikum stöðva starfsemi í húsnæði sem ekki væri talið öruggt til slíkrar starfsemi. Umboðsmaður Alþingis áréttaði jafnframt að sömu sjónarmið ættu við um viðbrögð ráðuneytisins þegar því bærust upplýsingar um sambærilegar aðstæður. Ekki nægir að einstakar stofnanir sinni hver sínum afmarkaða þætti ef enginn tryggir að öryggi barnanna sé í raun varið. Stjórnvöld þurfa að gera skýra grein fyrir úrbótum eftir brunann, hver beri ábyrgð á framkvæmd þeirra og hvernig eftirliti verði háttað. Jafnframt þarf að tryggja að rannsóknir á alvarlegum atvikum geti hafist þegar í stað og skilað niðurstöðum sem nýtast í starfinu. Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi. Þegar svo alvarleg atvik verða í þjónustu við börn verðum við að sýna börnum og fjölskyldum þeirra meiri virðingu, rannsaka hvað gerðist og tryggja að nauðsynlegum úrbótum sé fylgt eftir. Börn sem dvelja í úrræðum á vegum ríkisins eiga skýlausan rétt á öruggri þjónustu. Lærdómurinn af brunanum verður að skila sér í raunverulegum aðgerðum, auknu öryggi og skýrri ábyrgð þeirra sem fara með vernd og umönnun barna. Höfundurinn er umboðsmaður barna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin er fjárfesting í landsbyggðunum Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Loftbrúin á að jafna aðstöðumun – ekki auka hann Jóhanna Lilja Eiríksdóttir skrifar Skoðun Bruninn á Stuðlum og ábyrgð ríkisins Salvör Nordal skrifar Skoðun Af hverju er ríkisstjórninni svona illa við landsbyggðina… Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki góðvild — þau eru góð stefna Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar Skoðun Börn bíða eftir hjálp á meðan stjórnvöld ræða einkunnir Kristín Kjartansdóttir skrifar Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Sjá meira
Skoðun Við krefjumst þess að þolendur segi frá. En er kerfið tilbúið að hlusta? Herdís Ósk Sveinsdóttir skrifar
Skoðun I'm simply the best, better than all the rest...: Skýrt markmið, óskýr framkvæmd og enn ein útgáfan Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar