Innlent

Þessi hafa boðað komu sína á leiðtogafundinn

Máni Snær Þorláksson skrifar
Leiðtogafundurinn verður haldinn í Hörpu í vikunni.
Leiðtogafundurinn verður haldinn í Hörpu í vikunni. Vísir/Vilhelm

Mikill fjöldi fólks hefur boðað komu sína á leiðtogafund Evrópuráðsins sem fram fer í Hörpu í vikunni. Forsetar, forsætisráðherrar, aðrir ráðherrar og kardínáli eru á meðal þeirra sem eru á gestalistanum. Ekki hefur verið gefið upp hvort einhver frá Úkraínu komi á fundinn.

Leiðtogafundur Evrópuráðsins verður haldinn í Hörpu í Reykjavík í vikunni, á þriðjudaginn og miðvikudaginn. 

Utanríkisráðuneytið hefur nú sent frá sér lista með þeim fulltrúum sem hafa boðað komu sína á fundinn. Emmanuel Macron, forseti Frakklands, Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambansdins, eru til að mynda á listanum.

Á listanum segir að það eigi enn eftir að staðfesta hver eða hvort einhver mæti fyrir hönd Úkraínu á fundinn.

Hér fyrir neðan má sjá öll þau sem hafa boðað komu sína á fundinn.

Fulltrúar meðlimaþjóða:

Albanía: Edi Rama, forsætisráðherra

Andorra: Joan Forner Rovira, fastafulltrúi Evrópuráðsins

Armenía: Nikol Pashinyan, forsætisráðherra

Aserbaísjan: Jeyhun Bayramov, utanríkisráðherra

Austurríki: Alexander Van der Bellen

Belgía: Alexander de Croo

Bosnía og Hersegóvína: Željka Cvijanović, forseti

Bretland: Rishi Sunak, forsætisráðherra

Búlgaría: Iliana Iotova, varaforseti

Danmörk: Mette Frederiksen, forsætisráðherra

Eistland: Alar Karis, forseti

Finnland: Sauli Niinistö, forseti

Frakkland: Emmanuel Macron, forseti

Georgía: Irakli Garibashvili, forsætisráðherra

Grikkland: Katerina Sakellaropoulou, forseti

Holland: Mark Rutte, forsætisráðherra

Írland: Leo Varadkar, forsætisráðherra

Ísland: Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra

Ítalía: Giorgia Meloni, forsætisráðherra

Króatía: Andrej Plenković, forsætisráðherra

Kýpur: Nikos Christodoulides, forseti

Lettland: Egils Levits, forseti

Liechtenstein: Daniel Risch, forsætisráðherra

Litáen: Gitanas Nauséda, forseti

Lúxemborg: Xavier Bettel, forsætisráðherra

Malta: Robert Abela, forsætisráðherra

Moldóva: Maia Sandu, forseti

Mónakó: Isabelle Berro-Amadeï, utanríkis- og samvinnuráðherra

Norður-Makedónía: Dimitar Kovachevski, forsætisráðherra

Noregur: Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra

Portúgal: António Costa, forsætisráðherra

Pólland: Andrzej Duda, forseti

Rúmenía: Klaus Werner Iohannis, forseti

San Marínó: Alessandro Scarano og Adele Tonnini

Serbía: Aleksandra Đurović, fastafulltrúi Evrópuráðsins

Slóvakía: Zuzana Čaputová, forseti

Slóvenía: Nataša Pirc Musar

Spánn: José Manuel Albares Bueno, utanríkisráðherra

Svartfjallaland: Dritan Abazović, forsætisráðherra

Sviss: Alain Berset, forseti

Svíþjóð: Tobias Billström, utanríkisráðherra

Tékkland: Petr Pavel, forseti

Tyrkland: Mehmet Kemal Bozay, staðgengill utanríkisráðherra

Ungverjaland: Katalin Novák, forseti

Úkraína: Óstaðfest

Þýskaland: Olaf Scholz, kanslari


Fulltrúar áheyrnaríkja:

Bandaríkin: Linda Thomas-Greenfield, fulltrúi Bandaríkjanna í Sameinuðu þjóðunum

Japan: Ryotaro Suzuki, sendiherra á Íslandi

Kanada: Stéphanie Dion, erindreki

Mexíkó: Carmen Moren Toscano: staðgengill utanríkisráðherra

Páfadómur: Pietro Parolin kardináli


Fulltrúar alþjóðlegra sambanda:

Evrópusambandið: Charles Michel, forseti Evrópuráðs, og Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar

OSCE: Bujar Osmani, starfandi forseti, og Helga Schmid, aðalritari

Sameinuðu þjóðirnar: Ilze Brands Kehris, varaframkvæmdastjóri mannréttindamála


Háttsettir fulltrúar Evrópuráðsins:

Marija Pejčinović Burić, framkvæmdastjóri Evrópuráðsins

Tiny Kox, forseti þings Evrópuráðsins

Leendert Verbeek, forseti 

Siofra O'Leary, forseti mannréttindaráðs

Dunja Mijatović, fulltrúi mannréttindaráðs

Gerhard Ermischer, forseti ráðs frjálsra félagasamtaka

Marinela Petrova, stjórnarformaður þróunarbankans

Carlo Manticelli, stjórnarmeðlimur þróunarbankans

Claire Bazy-Malaurie, forseti Feneyjarnefndarinnar


Aðrir háttsettir fulltrúar:

Armenía: Ararat Mirzoyan, utanríkisráðherra

Kýpur: Constantinos Kombos, utanríkisráðherra

Færeyjar: Aksel V. Johannesen, forsætisráðherra

Georgía, Ilia Darchiashvili, utanríkisráðherra

Ísland: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra

Lettland: Edgars Rinkēvičs, utanríkisráðherra

Liechtenstein: Dominique Hasler, utanríkisráðherra

Norður-Makedónía: Bojan Marichikj, staðgengill forsætisráðherra

Rúmenía: Aurescu Bogdan, utanríkisráðherra

San Marínó: Luca Beccari, utanríkisráðherra




Fleiri fréttir

Sjá meira


×