Hvern langar í kannabis? Gunnar Dan Wiium skrifar 20. júní 2023 14:30 Ég lít í kringum mig og mér finnst samfélagið og lög þess og reglur skrítin, undarleg. Ég fer í hverfissjoppuna sem lifir á hádegispásu nemenda gagnfræðaskólans við hliðin á og þar selja þeir auðvitað slísi burgers og chips og kit-kat en líka allskonar annað. Þeir selja sígarettur og vindla og svakalegt úrval á lummum og veipdrasli, þeir selja meira að segja tóma ziplock poka við hliðina á tannkreminu, (kannski hugsa þeir að gott sé að eiga litla ziplock poka til að safna stökum tölum og smellum sem fylgja með nýjum skyrtum og jökkum.) Fyrir innan lummuborðið er svo spilavítið og þar hanga fárveikir spilafíklar sem eru margir hverjir búnir að spila frá sér fjölskyldur, sjálfsvirðinguna og mannorðið. Ég lít í kringum mig og sé fyrirtæki eins og Svens hasla sér völl með sænskum fánalitum á risastórum skiltum um allan bæinn eins og ekkert sé eðlilegra, þeir meira segja auglýsa í auglýsingahléi gettu betur eins og það sé staður og stund. Koffíndrykkir í hundruðum milligramma flokknum eru seld ungmennum og svo þegar þau geta ekki sofið er þeim bara gefið melatonin þ.e.a.s. ef þau eru ekki með uppáskrifuð svefnlyf við svefnleysisaukaverkunum við adhd lyfjunum sem þau neyðast til að taka sem “viðeigandi” lyfjagjöf við ofvirkni og athyglisbrest. Ríkið sér svo um að skaffa fólki alkóhól því á bak við þá neyslu er svokölluð “menning” og í henni skálum við og tökum trúnna á bakkus konung, fyrir okkur er eðlilegt að drekka leysiefni og verða fyrir eitrunaráhrifum, hindra endurupptöku boðefna og fyrir vikið raska eðlilegri og heilbrigðri boðefna framleiðslu með viðeigandi þvinku, þunglyndi og timburmönnum, allt partur af prógramminu og alls ekkert óeðlilegt þar. Við hristum þetta bara af okkur og skellum okkur á Kentucky og gúlp-þömbum tveggja lítra kókflöskur og svo kokgleypum stóran bragðaref fyrir svefninn. Þetta er það sem ég sé, meðal annars. Ég sé líka að CBD vörur og hráhamp sem Matvælastofnun ríkisins gaf grænt ljós fyrir alls ekki svo löngu síðan til innflutnings allt í einu stöðvaðan í tollinum og vörur innflutningsaðila gerðar upptækar án skýringa bara því starfsmaður á plani fannst það bara einn daginn. Ég sé og upplifi fordóma í garð undraplöntunar kannabis og bera svokallaðir sérfræðingar á vegum hins opinbera yfirleitt fyrir sig sömu rökin sem eru að það sé einfaldlega skortur á rannsóknum sem gerir þetta mál með CBD og aðra kannabínóða erfitt viðureignar. Þessi rök “sérfræðingana” eru svo röng því rannsóknir sem gerðar hafa verið á kannabis síðustu 30 ár eða svo skipta tugum þúsunda. Þessar rannsóknir hafa svo leitt til þess að lögleiðing á kannabis hefur átt sér stað út um allan heim bæði vestan hafs og austan. Sama gildir um rannsóknir á tóbaki, sykri, lummum og koffíni og fituríkum mat og alkóhóli og svo framvegis og framvegis, þær skipta einnig tugum ef ekki hundruðum þúsunda. Samt sem áður fara unglingarnir í gagnfræðaskólanum í næstu götu við mig í hádegishléinu og kaupa sér 200mg koffín nokkóa og lummur og big chrunchy Lion-bar og slefa svo yfir spilakassann. Svo fara þau út og veipa blý og nikkel í stórhættulegu magni og fá fyrir vikið framheilaskaða sem rannsóknir sýna að sé óafturkræfur. Þetta er allt í boði þeirra laga og reglna sem gilda, löglegt sjálfsvíg fyrir börn, unglinga og fullorðina í slow motion í nafni hefða, menningar, heimsku og spillingar. Hvað varðar kannabis þá er kannski best að útskýra kerfið sem kallast á ensku Endocannabinoid system, skammstafast sem ECS. Á íslensku myndi það þýðast sem Endokannabínóðakerfið og því skammstafast sem EKK. Kerfið sem um ræðir er flókið merkjakerfi frá frumunum sem samanstendur af endókannabínóðum, ensímum og kannabínóða-móttökum, sem hafa stjórn á ýmissi starfsemi í mannslíkamanum. Ber að nefna í þessu samhengi hjálp við svefn, lund, matarlyst og meltingu, minni, bólgumyndun, húðvandamál, endurheimt og frjósemi. Þessar flóknu tengingar finnast í heilanum, vefjum og kirtlum og í öllum aðal líffærum okkar. Kerfið var uppgötvað af tékkneskum vísindamanni árið 1992 í Ísrael og við þessa uppgötvun komust vísindamenn að því að líkaminn framleiðir sína eigin kannabínóða í margvíslegum tilgangi sem kerfið, ECS er hannað til að taka á móti. CBD og aðrir kannbínoðar hafa sýnt sig að hafa stór heilsufarsleg áhrif á fólk sem þjáist af hinum og þessum kvillum. Allt frá alvarlea flogaveikum einstaklingum, parkinson og krabbameinssjúklingum niður í skilvirkari endurheimt íþróttafólks sökum sterks mótvægis við bólgumyndun í líkamanum. Listinn er orðin langur af fólki hér á landi sem hefur hlotið bót meina sinna og er því komin reynsla af notkun kannabínóð sem styður þessar fullyrðingar hér að ofan. Síðustu hundrað ár eða svo hefur hampurinn, plantan verið svert og talin hættuleg og ólögleg. Þá er ég ekki aðeins að tala um Indica afbrigði plöntunar heldur líka ræktun og öll notkun á Iðnaðarhampi sem fyrir áróðursherferð há kapítalískra hagsmunaafla var gríðarlega útbreidd og áberandi sem hráefni í allskonar iðnaði. Má nefna í því samhengi í iðnaði sem snéri að allskonar textíl framleiðslu og pappír svo eitthvað sé nefnt. Þegar stórir hagsmunaaðilar innan pappírsiðnaðarins, stáliðnaðar, plast og pólyester komu saman í einskonar samkurli með íhaldssömu og valdamiklu samfélagi bindindishreyfinga í Bandaríkjunum upp úr 1900 fór af stað mikil viðhorfsbreyting í garð plöntunnar sem svo nú loksins virðist vera í sterkum og jákvæðum viðsnúning. Núna í ár eru um 3 ár síðan ræktun iðnaðarhamps varð lögleg aftur á Íslandi og síðan þá hefur orðið mikil vitundarvakning í garð hampsins sem og heilsufarslegum ávinning af notkun kannabínóða. Ræktun er orðin útbreidd og þó svo ræktendur séu mis reynslumiklir og misskilvirkir hvað varðar notkun og vinnslu hampsins. Sumir eru komnir lengra en aðrir og með skýr markmið hvað varðar úrvinnslu og sölu afurða á meðan aðrir eru að fikra sig áfram með óljós markmið þrátt fyrir gríðarlegan áhuga á þeim möguleikum sem afurðin býður upp á. Sama hve skilvirk úrvinnslan er að hverju sinni þá situr alltaf umhverfisþátturinn eftir því í raun má segja að hampurinn sé að binda um 20 sinnum meira kolefnum en hefðbundin skógrækt og að ca 1 hektari í ræktun sem tekur um 3-4 mánuði sé nóg til að kolefnisjafna einn Íslending miðað hvað við losum í dag. Og hvað þessa gríðarlegu kolefnisbindingu hampsins varðar þá er einnig svo afar undarlegt að liðið sem lofar hinu og þessu eftir hin og þessi ár í kolefnisjöfnu Íslandi virðist ekkert kynna sér ofur eiginleika hampsins í þeim efnum. Reikningsdæmið er einfalt, til að kolefnisjafna Ísland eins og það leggur sig þarf aðeins að rækta í eitt tímabil um einn hektara per íslending og málið er dautt, loforð orðin að veruleika aldrei þessu vant. Ég lít í kringum mig og sé skrítið samfélag, ég sé skrítin og óheilbrigð lög sem gera heilbrigða einstaklinga að lögbrjótum. Ég sé heilbrigt fólk fara á skjön við lög og reglur því það fylgir sannfæringu sinni um hvað er raunverulega rétt og heilbrigt. Þessi hegðun skapar hins vegar klofning í samfélagsvitundinni og framkallar skömm sem hefur í raun engan rétt á sér. Ég vil eindregið hvetja til byltingar sem snýr að sýn á sannleikann og afturhvarfs til náttúrulegra efna. Kannabis er ekki hættuleg jurt. Kannabis er gjöful og nærandi. Hún er hráefni í formið sem skýlir okkur gegn veðri og vindum. Hún bindur eitrið sem við spúum frá okkur. Kannabis er plöntulæknirinn sem læknar kvilla vitundar og líkamans. Maðurinn hefur vitað þetta í þúsundir ára og komin er tími til að við nýtum okkur þessa vitneskju í nafni lýðheilsu og umhverfisverndunar. Höfundur starfar sem búðarmaður, hlaðvarpsstjórnandi Þvottahússins og umboðsmaður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Gunnar Dan Wiium Mest lesið Valdhafar sem óttast þjóð sína eiga ekki skilið völdin Ágústa Árnadóttir Skoðun Flokkarnir sem raunverulega öttu viðkvæmum hópum saman og þeir sem þrífa upp eftir þá Þórður Snær Júlíusson Skoðun Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann Skoðun Handhafar sannleikans og hið gagnslausa væl Helgi Héðinsson Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun Aðlögun á Austurvelli Heiða Ingimarsdóttir Skoðun Halldór 14.06.2025 Halldór Engin haldbær rök fyrir því að dánaraðstoð skaði líknarmeðferð Ingrid Kuhlman Skoðun Til hamingju með daginn á ný! Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Handhafar sannleikans og hið gagnslausa væl Helgi Héðinsson skrifar Skoðun Flokkarnir sem raunverulega öttu viðkvæmum hópum saman og þeir sem þrífa upp eftir þá Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Valdhafar sem óttast þjóð sína eiga ekki skilið völdin Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Til hamingju með daginn á ný! Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Gefðu blóð, gefðu von: saman björgum við lífum Davíð Stefán Guðmundsson skrifar Skoðun Versta sem gæti gerzt Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Aðlögun á Austurvelli Heiða Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen skrifar Skoðun Auðlindin er sameign – en verðmætasköpunin er ekki sjálfgefin Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Brotin stjórnarandstaða í fýlu Arnar Steinn Þórarinsson skrifar Skoðun Úthlutun Matvælasjóðs Fjóla Einarsdóttir skrifar Skoðun Engin haldbær rök fyrir því að dánaraðstoð skaði líknarmeðferð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Réttlæti næst ekki með ranglæti Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Fagleg rök fjarverandi við opinbera styrkveitingu Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson skrifar Skoðun Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ísland smíðar – köllum á hetjurnar okkar Einar Mikael Sverrisson skrifar Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Hvenær kemur að okkur? Hjördís María Karlsdóttir skrifar Skoðun Frjór jarðvegur fyrir glæpagengi til að festa rætur Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Án greiningar, engin ábyrgð Gísli Már Gíslason skrifar Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar Skoðun Verkin sem ekki tala Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Þið dirfist að kalla mig fasista og rasista? Davíð Bergmann skrifar Skoðun Gleymdu að vanda sig Vanda Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Vindhögg Viðskiptaráðs Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Skref aftur á bak fyrir konur með endómetríósu Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Sjá meira
Flokkarnir sem raunverulega öttu viðkvæmum hópum saman og þeir sem þrífa upp eftir þá Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun
Skoðun Flokkarnir sem raunverulega öttu viðkvæmum hópum saman og þeir sem þrífa upp eftir þá Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Gervigreindarskólinn Alpha: Framtíðarsýn fyrir íslenska grunnskóla Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen skrifar
Skoðun Auðlindin er sameign – en verðmætasköpunin er ekki sjálfgefin Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Opið bréf til Ölmu Möller, heilbrigðisráðherra Anna Margrét Hrólfsdóttir,Lilja Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Ætla stjórnvöld virkilega að eyðileggja eftirlaunasjóði verkafólks endanlega? Vilhjálmur Birgisson skrifar
Skoðun Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu Erla Tinna Stefánsdóttir skrifar
Skoðun Yfir 90% ferðamanna eru ánægðir með dvöl sína á höfuðborgarsvæðinu Inga Hlín Pálsdóttir skrifar
Skoðun Rödd barna og ungmenna hunsuð í barnvænu sveitarfélagi? París Anna Bermann Elvarsdóttir,Heimir Sigurpáll Árnason,Fríða Björg Tómasdóttir,Lilja Dögun Lúðvíksdóttir,Bjarki Orrason,Sigmundur Logi Þórðarson,Aldís Ósk Arnaldsdóttir,Leyla Ósk Jónsdóttir,Rebekka Rut Birgisdóttir,Ólöf Berglind Guðnadóttir,Íris Ósk Sverrisdóttir skrifar
Skoðun Myndir þú hætta að flokka ruslið? – Sjálfbærni er ekki tíska Helga Björg Steinþórsdóttir,Eva Magnúsdóttir skrifar
Flokkarnir sem raunverulega öttu viðkvæmum hópum saman og þeir sem þrífa upp eftir þá Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Í Kópavogi borga tekjuháir foreldrar leikskólabarna mest, er það svo ósanngjarnt? Rakel Ýr Isaksen Skoðun