Skoðun

Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali

Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Öryggi lands og þjóðar verður ekki tryggt með því einu að sýna fram á að Ísland verji tilteknu hlutfalli landsframleiðslu til varnarmála. Það sér hver maður. Fjármunirnir verða að skila raunverulegri getu til að mæta ógnum, verja borgarana og standa við skuldbindingar okkar gagnvart bandamönnum.

Fjárlaganefnd Alþingis hefur nú eftir langa bið fengið yfirlit yfir þau ríkisútgjöld sem flokkuð eru sem varnartengd útgjöld. Áætlað er að þau komi til með að nema rúmlega 51 milljarði króna árið 2027, eða tæplega 1% vergrar landsframleiðslu. Þar undir falla meðal annars útgjöld til löggæslu, Landhelgisgæslu og ýmissa borgaralegra innviða. Hjá herlausri þjóð getur slík flokkun sannarlega átt rétt á sér þótt öllu óljósara sé hvaða auknu viðbragðsgetu útgjöldin skapa.

Alþingi hefur markað veginn

Í febrúar samþykkti Alþingi samhljóða stefnu í varnar- og öryggismálum. Þar er kveðið á um „auknar og stigvaxandi fjárveitingar til varnartengdra verkefna og innviða“, aukna innlenda getu og þátttöku í varnarsamstarfi. Þar segir einnig að tryggja þurfi mannauð, áætlanir, varnarmannvirki og búnað til að mæta öryggisáskorunum og efla áfallaþol samfélagsins, almannavarnir og vernd borgara. Engu að síður er óljóst hvernig þessi stefna birtist í fjárlögum næsta árs. Hvaða nýju verkefni verða fjármögnuð, hvaða geta verður byggð upp og hvernig verður árangurinn mældur?

Ríkisstjórnin stefnir að því að varnartengd útgjöld nái 1,5% af landsframleiðslu árið 2035. Eðlilegt er að hún sýni á spilinn, hvaða skref hún hyggist stíga til að því markmiði verði náð, í stað þess að láta eftirmönnum sínum alfarið um að efna gefin fyrirheitin.

Þá samþykkti Alþingi árið 2024 stefnu um stuðning Íslands við Úkraínu til ársins 2028. Við þurfum að fá skýrt yfirlit um hvernig henni er fylgt eftir. Hafa framlög Íslands haldið í við aukinn stuðning nágrannaþjóðanna og samræmast þau markmiðum okkar? Stuðningur við Úkraínu er samtímis ákvörðun um sjálfsákvörðunarrétt þjóða og öryggi Evrópu.

Öryggis- og varnarmál mega ekki vera einkamál ríkisstjórna. Þau kalla á opna umræðu, reglulegt samráð ráðherra við Alþingi og breiða pólitíska samstöðu. Nú þarf að fylgja samþykktri stefnu Alþingis eftir með fjármagnaðri áætlun.

Hvar er landhelgisgæsluáætlunin?

Landhelgisgæslan er ein mikilvægasta öryggisstofnun landsins. Ríkisendurskoðun hefur ítrekað bent á þörf fyrir langtímaáætlun um starfsemi hennar og tækjakost. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis tók undir það og kallaði eftir landhelgisgæsluáætlun og í kjölfarið langtímafjárfestingaráætlun um búnað. Ráðuneytið stefndi að því að fyrri áætlunin lægi fyrir á árinu 2026. Ekkert bólar þó á henni.

Á sama tíma varar Landhelgisgæslan við því í umsögn um fjárlagafrumvarp ársins 2027 að fjárveitingar til hennar dugi ekki til að viðhalda starfseminni í óbreyttri mynd. Hvernig samræmist það áformum um aukna öryggisgetu? Nokkuð hefur verið til umræðu að bæta við fjórðu björgunarþyrlunni sem yrði með starfsstöð á Akureyri. Forsætisráðherra hefur tekið undir slík sjónarmið. Samkvæmt upplýsingum frá dómsmálaráðuneytinu gæti fjórða þyrlan og sjöunda áhöfnin tryggt að tvær þyrlur væru tiltækar 95–98% ársins í stað um 60% nú. Þetta yrði mælanleg aukning í öryggi landsmanna.

Að vera verðugur bandamaður

Undirstaða varna Íslands er aðildin að NATO og varnarsamningurinn við Bandaríkin frá 1951. Þá hafa skapast ný tækifæri til svæðisbundins samstarfs eftir inngöngu Finnlands og Svíþjóðar í NATO en þátttaka Íslands í JEF, varnarsamstarfi tíu Norður-Evrópuríkja undir forystu Breta, er gott dæmi um það sem vel hefur tekist í þessum efnum. JEF styrkir samstarfið innan NATO og Ísland hefur lagt ríka áherslu á þátttöku sína. Við getum og erum verðugur bandamaður þótt við höfum ekki eigin her til umráða. Lega landsins, aðstaða okkar, þekking og mannauður skipta máli.

Ýmis tækifæri felast í enn auknu norrænu samstarfi. Í svari við fyrirspurn minni um sameiginlegt drónaverkefni Norðurlandanna kom fram að Ísland hefði ekki tekið þátt í undirbúningnum þar sem hann snerist fyrst og fremst um hernaðarnotkun. Samstarf um rannsóknir, þróun, þjálfun og upplýsingaskipti getur skapað tækifæri fyrir Landhelgisgæsluna, lögreglu og almannavarnir og ótækt að herleysi útiloki okkur frá samstarfi sem þessu.

Að vera verðugur bandamaður snýst ekki aðeins um prósentur heldur um trúverðugar skuldbindingar og raunverulegt framlag til sameiginlegs öryggis. Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali. Það krefst aðgerða, fjárfestinga og samstöðu. Þegar öryggi lands og þjóðar er annars vegar eigum við öll að vera í sama liði.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Sjá meira


×