Skoðun

Þegar báðir græða

Arnar Sigurðsson skrifar

– um vín sem siglir frá Íslandi til Danmerkur og Færeyja

Sagt er að vegir Guðs séu órannsakanlegir. Líklega er eitthvað til í því, en svipaða sögu má segja um vegi frjálsra viðskipta. Þegar ég stofnaði Santé árið 2014 hafði ég að minnsta kosti ekki hugarflug til að ímynda mér að einn daginn ættum við viðskiptavini í fimm löndum. Hvað þá að við myndum senda vín til Danmerkur.

Sending á leið til Danmerkur.

Galdurinn er gamall og einfaldur. Viðskipti eiga sér stað þegar báðir aðilar telja sig hagnast. Kaupandinn vill vínið, seljandinn fær greitt og báðir ganga sáttari frá borði. Enginn tapar. Þetta hefur verið vitað frá dögum Adams Smith en það virðist þurfa að endurtaka það á hverri öld.

Hólmfastur Guðmundsson frá Brekku á Vatnsleysuströnd skildi þetta fullkomlega. Árið 1698 seldi hann fáeina fiska kaupmanninum í Keflavík, sem bauð betur en kaupmaðurinn í Hafnarfirði. Hólmfastur fékk betra verð og kaupmaðurinn fékk fiskinn sem hann vildi. Báðir græddu. Fyrir þetta var Hólmfastur hýddur við staur. Glæpurinn var ekki að selja fisk heldur að selja hann í röngu verslunarumdæmi. Einokunarverslun Dana stóð frá 1602 til 1787 og byggðist á þeirri hugmynd að viðskipti væru eins manns gróði og annars tap. Það kom á daginn að tapið lenti nær allt á sama aðila.

Í dag sendum við Dönum vín og þeir borga fyrir það með glöðu geði. Það er ekki hefnd fyrir verslunareinokunina, heldur einfaldlega betra fyrirkomulag. Danskir viðskiptavinir fá vín sem þeir vilja, við fáum viðskipti og ríkissjóður fær áfengisgjald (já lesandi góður þú lest rétt við erum að flytja út skattheimtu). Allir græða.

Sending á leið til Færeyja.

Færeyingar fá líka sína sendingu. Þeir þekkja einokunina ekki síður en við, því dönsk einokunarverslun stóð þar til 1856, tæpum sjötíu árum lengur en hér. Í dag kaupa þeir það sem þeim sýnist, af hverjum sem þeim sýnist.

Það er reyndar nokkuð kaldhæðið að eftir reynsluna af einokunarverslun Dana skyldu Íslendingar verða svo hrifnir af hugmyndinni að þeir settu upp sína eigin. Hún hefur nú verið starfrækt í rúm hundrað ár. Danir lögðu sína niður og fengu sér vínbúðir á hverju götuhorni. Við héldum okkar og fengum okkur biðraðir á föstudögum.

Auðvitað gerir illkvittnasta embættismannakerfi heims (utan Norður-Kóreu) allt sem það getur til að koma í veg fyrir frjáls viðskipti og valda íslensku atvinnulífi og neytendum búsifjum. En embættismannakerfi hafa alltaf verið hugmyndarík þegar kemur að því að verja fólk fyrir bættum kaupmætti. Sagan geymir mörg dæmi:

Snjórinn í Japan. Árið 1986 reyndu japönsk stjórnvöld að halda evrópskum skíðum frá markaðnum með þeim rökum að japanskur snjór væri öðruvísi en evrópskur. Snjórinn tók ekki afstöðu.

Orrustan við Poitiers, seinni hálfleikur. Árið 1982 ákváðu Frakkar að öll myndbandstæki frá Japan skyldu tollafgreidd í Poitiers, litlum bæ langt inni í landi þar sem örfáir tollverðir opnuðu hvern kassa, lásu hverja handbók og skoðuðu hvert raðnúmer. Staðurinn var valinn af kostgæfni, því þar hafði Karl Martel stöðvað innrás árið 732. Myndbandstækin voru stöðvuð með svipuðum hætti, bara með meiri pappírsvinnu.

Kjúklingaskatturinn. Þegar Evrópuríki lögðu tolla á bandaríska kjúklinga árið 1964 svöruðu Bandaríkjamenn með 25% tolli á pallbíla. Kjúklingarnir eru löngu gleymdir en tollurinn á pallbílunum er enn í gildi.

Í öllum þessum dæmum töpuðu báðir aðilar. Neytendur borguðu meira og seljendur seldu minna. Eini sigurvegarinn var pappírinn.

Íslenska dæmið sómir sér vel í þessum hópi. Og talandi um kaldhæðni: fjármálaráðherra Viðreisnar, flokks sem berst fyrir því að Íslendingar njóti kostanna af því að tilheyra Evrópusambandinu, berst á hæl og hnakka gegn staðfesturéttinum sem þó er tryggður í EES-samningnum. Málatilbúnaðurinn gengur út á að ef vörulager er staðsettur á Íslandi megi túlka einokunarlögin þannig að reksturinn feli í sér sniðgöngu og draga hann fyrir dómstóla. Þetta er sami rekstur og skilar ríkissjóði áfengisgjaldi af vínum sem síðan eru flutt úr landi. Ríkið fær sem sagt sinn skerf af hverri flösku sem fer til Kaupmannahafnar og Þórshafnar en telur um leið að þeir sem senda hana eigi heima í dómsal.

Hólmfastur hefði kannast við rökin. Það er ekki salan sem er glæpurinn heldur staðsetningin.

Á meðan halda sendingarnar áfram. Til Danmerkur, til Færeyja og víðar, með vín sem er meiri eftirspurn eftir en framboð um allan heim. Hver einasta sending er lítill samningur þar sem allir ganga sáttir frá borði. Ef einhver í fjármálaráðuneytinu vill kynna sér hvernig það virkar er velkomið að kíkja á lagerinn.

Höfundur er annar eigenda Santé.




Skoðun

Sjá meira


×