Hlynur getur náð fjögurhundruðasta leiknum næsta vetur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júní 2023 13:30 Hlynur Bæringsson heldur áfram sem fyrirliði Stjörnuliðsins. Vísir/Bára Dröfn Hlynur Bæringsson hefur nú staðfest það að hann ætlar að spila með Stjörnunni í Subway deildinni á næsta tímabili.
Stjarnan segir frá því á síðu sinni að Hlynur hafi framlengt samning sinn um eitt ár. Hlynur heldur upp á 41 árs afmælið sitt í næsta mánuði. Þetta verður áttunda tímabil Hlyns með Stjörnunni en hann kom til liðsins árið 2016 eftir sex ár í atvinnumennsku. Hlynur hefur nú leikið 384 deildarleiki í efstu deild og er í sjöunda sætinu yfir leikjahæstu leikmenn frá upphafi. Hann vantar nú aðeins sextán leiki til að verða aðeins sá fjórði til að spila fjögur hundruð leiki í úrvalsdeildinni. Hlynur er frákastahæsti leikmaður deildarinnar frá upphafi og vantar 50 fráköst til að verða sá fyrsti til að taka fjögur þúsund fráköst. Hann er í sjötta sæti með 5198 stig og í níunda sæti með 1145 stoðsendingar. Þegar við tökum úrslitakeppnina með þá hefur Hlynur skorað 6533 stig, tekið 5030 fráköst og gefið 1462 stoðsendingar í 475 leikjum á Íslandsmóti karla. Hlynur lék sinn fyrsta leik í efstu deild með Skallagrími 16. október 1997 og það verða því liðin meira en 26 ár frá hans fyrsta leik þegar hann spilar í vetur.
Subway-deild karla Stjarnan Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira