„Ég vil helst spila 11 á móti 11“ Ester Ósk Árnadóttir skrifar 26. ágúst 2023 19:08 Hallgrímur Jónasson þjálfari KA var að vonum sáttur eftir dramatískan sigur á Stjörnunni Hulda Margrét „Þetta var alvöru leikur og alvöru spenna. Ég er gríðarlega ánægður með strákana,“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA eftir dramatískan sigur á Stjörnunni á Akureyri í dag. Lokastaða 2-1.
Hallgrímur var fengin til að lýsa lokamínútunum sem voru hádramatískar. „Við vorum nýbúnir að skjóta að slá, þeir komast í færi hinum megin. Ég sé svo ekki hvað gerist en það er dæmt víti og við missum leikmann út af vellinum með rautt spjald en sem betur fer fáum við ekki mark á okkur úr vítinu. Hann skýtur í tréverkið. Það var svo frábær karakter hjá liðinu að koma til baka úr þessu einum færri og skorum sigurmarkið.“ Hallgrímur hefði þó viljað sá suma hluti betri hjá sínum mönnum og nefndi þar pressuna hjá sínu liði, þá fannst honum svekkjandi að fá mark á sig þegar hafsentinn hans var utan vallar. „Mér fannst pressan ekki nógu góð þegar Stjarnan var að láta boltann ganga en við skorum mark og sköpum allavega þrjú góð færi. Svo í seinni hálfleik eigum við sláarskot. Það var hins vegar svekkjandi að fá á sig mark rétt fyrir hálfleik þar sem að einn leikmaður okkar er meiddur fyrir utan völlinn sem gerir það að verkum að við erum einum færri. Hafsentinn okkar er fyrir utan og mátti ekki koma inn á sem ég held að hafi verið rétt en samt pirrandi að vera liðið sem lendir í því.“ Ásgeir Sigurgeirsson kom inn á sem varamaður á 67. mínútu og sá til þess að öll stigin fóru til KA. „Ásgeir er flottur leikmaður, hann kom inn á og gerði það sem maður á að gera sem varamaður. Maður kemur inn á og maður leggur sig fram, sýnir að maður skiptir máli og hann gerði það í dag og tryggði okkur frábæran sigur.“ Það hefur verið mikið álag á KA undanfarið en fyrir þennan leik náði KA um það bil viku í frí. „Við fengum meiri tíma til að hvíla okkur og eins og þú sérð að þótt við höfum verið einum færri hér í lokin að þá höfum við samt orku til að klára leikinn. Skiptingarnar gerðu það líka að verkum að frískir menn komu inn á völlinn. Við erum bara alltaf að vinna í okkar málum og gera eins vel og við getum.“ KA á tvo leiki eftir í deild, þar af frestaðan leik á móti FH. „Við vitum það að ef við klárum þessa leiki sem eru eftir að þá eigum við ágætis séns á að enda í topp sex og það er klárlega markmiðið. Það er búið að vera að tala um einhverja neikvæðni hjá okkur en við erum alls ekki neikvæðir. Við erum bara gríðarlega ánægðir með það sem hefur verið í gangi í sumar. Við ætluðum að vera ofar í deildinni og nú er fullur fókus á að enda í efri helming deildarinnar.“ Sveinn Margeir fékk rautt spjald þegar skammt var til leiksloka, Daníel Hafsteinsson var í banni í dag vegna þess að hann fékk rautt í síðasta leik og þá er stutt síðan að Dusan Brkovic fékk rautt spjald í leik og var í banni. Hallgrímur hafði ekki mörgu við það að bæta. „Við erum mjög flottir þegar við erum einum færri en ég vil helst spila 11 á móti 11.“ Leikurinn við FH fer fram næstkomandi miðvikudag. „Það verður hörkuleikur, við spilum góðan leik við þá fyrr í sumar sem við unnum. Við förum í Hafnafjörðinn fullir sjálfstraust eftir þennan leik og gefum FH góðan leik.“
KA Stjarnan Fótbolti Besta deild karla Mest lesið Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Fótbolti Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Fótbolti Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Fótbolti Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Fótbolti Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Fótbolti Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Íslenski boltinn Reese rífur í sig metin Körfubolti „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Fótbolti Fleiri fréttir Hundrað metra met Bolt „fallið“ Bruno Fernandes bestur að mati leikmanna Dramatík í undankeppni Meistaradeildarinnar Afturelding í vænlegri stöðu á toppnum Forest fyrsta úrvalsdeildarliðið úr leik í deildarbikarnum Forest tilbúið að greiða 50 milljónir fyrir Delap Reese rífur í sig metin Norður-Írar draga stuðning sinn við Infantino til baka Brann áfram á sigurbraut í Evrópu Baleba orðinn leikmaður Manchester United Meinleg villa á maraþonmedalíu Infantino fær stuðning: „Hann hefur ekki gert neitt rangt“ „Einstakur“ Ísak gerði A fyrir unnustuna Eigandi 49ers handtekinn Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Birta þrumuræðu Freys fyrir leik gegn Noregsmeisturunum Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Hamilton iðrast orða sinna: „Axla ábyrgð og mun gera betur“ „Ekkert undir mér komið að tjá mig um það“ Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Savinho til Tottenham frá Manchester City Haukar fá risavaxinn liðsauka Arsenal telur sig geta náð samkomulagi um kaup á Alvarez Sjáðu sögulegt mark João Pedro í sigri Chelsea Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára Dagskráin í dag: Barist um sæti í Meistaradeild Evrópu Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City Sjá meira