Viðskipti innlent

Þrjú­hundruð þúsund krónur fyrir 47 fer­metra: Gríðar­leg eftir­spurn á leigu­markaði

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Íbúðin er við Týsgötu í 101 Reykjavík.
Íbúðin er við Týsgötu í 101 Reykjavík. Fold fasteignasala

Tæplega 47 fermetra íbúð við Týsgötu í Reykjavík hefur verið auglýst til leigu fyrir þrjúhundruð þúsund krónur á mánuði. Fasteignasali segir gríðarlega eftirspurn eftir leiguhúsnæði útskýringuna á háu leiguverði. 

Eignin á Týsgötu var skráð á fasteignavef Vísis í síðasta mánuði. Þar segir að íbúðin, sem er 46,8 fermetrar, sé fullbúin húsgögnum og tækjum. Rafmagn er ekki innifalið í leiguverðinu.

Gústaf Adolf Björnsson fasteignasali hjá Fold segir útskýringuna á leiguverðinu vera gríðarlega eftirspurn eftir leiguhúsnæði. Ekki sé staðsetningin endilega það sem hækki verðið svo mikið. Hann nefnir dæmi um íbúð í Dalbrekku í Kópavogi en þrjátíu umsóknir um þá íbúð bárust fasteignasölunni á einum sólarhring. 

Þá segir hann að fyrir íbúð fullbúna húsgögnum við Kristnibraut í Grafarholti þar sem ásett verð var einnig þrjúhundruð þúsund krónur á mánuði hafi á fjórða tug umsókna borist á einum sólarhring. „Þetta er bara landslagið sem við stöndum frammi fyrir,“ segir Gústaf í samtali við Vísi. 

Hann segir gríðarlega mikla eftirspurn eftir leiguíbúðum geta átt þátt í hve hátt fasteignaverð íbúða er í dag. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×