Úlfur Úlfur: Mundi ekkert eftir viðtalinu sem hann fór í eftir að Stólarnir unnu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. október 2023 09:30 Helgi Sæmundur í viðtalinu fræga. S2 Sport Gestur Körfuboltakvölds Extra í gær var Helgi Sæmundur sem er meðlimur og annar stofnanda hljómsveitarinnar Úlfur Úlfur.
Helgi er mikill stuðningsmaður Tindastóls og var að sjálfsögðu á staðnum þegar Stólarnir urðu Íslandsmeistarar í fyrsta sinn í vor. „Hvernig var að verða Íslandsmeistari?“ spurði Stefán Árni Pálsson, umsjónarmaður Subway Körfuboltakvölds Extra. „Það var gott en það var erfitt. Það reif í,“ sagði Helgi Sæmundur brosandi. „Þú ferð í viðtal hjá okkur og ég er búinn að senda það inn til Eddunnar sem viðtal ársins. Það verður mjög líklega það. Þú ert glaður þarna,“ sagði Stefán Árni léttur. „Fyrir alla leikina í Reykjavík þá vorum við með fyrirpartý í Ölveri. Fyrir alla heimaleikina þá vorum við með partý fyrir utan íþróttahúsið. Þegar taugarnar eru að brenna svona og maður er að drekka bjóra með,“ sagði Helgi Sæmundur. Hann segist því hafa verið búinn að drekka mjög marga bjóra þegar hann fór í viðtalið í settinu hjá Körfuboltakvöldi. „Svo var partý eftir leikinn og ég var síðan kominn heim kannski fjögur, hálf fimm. Ég vakna níu um morguninn með drengnum og það eru svona tuttugu sekúndur frá því að ég vakna þangað til að ég er búinn að opna Stöð 2 Appið í símanum,“ sagði Helgi Sæmundur sem hafði áhyggjur af því hvað hann sagði í viðtalinu. „Ég mundi eftir því að hafa farið í viðtalið en ég man ekkert hvað ég sagði. Það var alveg hræðilegt. Þetta er samt alveg fyndið en ég var ekki að enda lífið mitt þarna,“ sagði Helgi Sæmundur sem skammaðist sín samt en þetta var þó staður og stund fyrir svona. Klippa: Körfuboltakvöld Extra: Viðtalið sem Helgi Sæmundur (Úlfur Úlfur) fór í
Körfuboltakvöld Tindastóll Subway-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira