Sextán leiðtogar Gambino-fjölskyldunnar handteknir Hólmfríður Gísladóttir skrifar 9. nóvember 2023 08:26 Francesco Vicari, einnig þekktur sem „Cicco frændi“, er grunaður um að vera samstarfsmaður Gambino-fjölskyldunnar og sikileysku mafíunnar. Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum og á Ítalíu hafa handtekið sextán meinta leiðtoga Gambino-glæpafjölskyldunnar og samstarfsmenn þeirra. Einstaklingarnir eru grunaðir um svik, fjárkúganir og afskipti af vitnum, svo eitthvað sé nefnt.
Tíu voru handteknir í New York og nágrenni og sex í Palermo á Sikiley. Einn þeirra sem til stóð að handtaka gengur enn laus. Dómsskjöl sýna að hópurinn er grunaður um að hafa beitt hógunum og ofbeldi til að draga sér fé og svíkja fé út úr verkalýðsfélögum og sjóðum þeirra. Skotmörkin voru aðallega fyrirtæki í sorpbransanum. Þá eru sumir ákærðu grunaðir um að hafa hótað eigendum fyrirtækja og krafist greiðslna fyrir „vernd“. Þeir eru einnig sakaðir um að hafa sniðgengið reglur og beitt svikum til að vinna gróðarvænleg útboð. Meðal handteknu eru Joseph „Joe Brooklyn“ Lanni, foringi í Gambino-fjölskyldunni, Angelo „Fifi“ Gradilone og Francesco Vicari, einnig þekktur sem „Cicco frændi“, sem er grunaður um að vera samstarfsmaður Gambino-fjölskyldunnar og sikileysku mafíunnar. Þeir eiga yfir höfði sér allt að 180 ára fangelsi. Gambino-fjölskyldan er ein af mafíufjölskyldunum fimm í New York og var leidd af John Gotti þar til hann lést í fangelsi árið 2002 og seinna af Fran Cali, sem var myrtur fyrir utan heimili sitt í Staten Island árið 2019.
Bandaríkin Ítalía Erlend sakamál Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira