Hekla Dögg Jónsdóttir opnaði sýninguna 0° 0° Núlleyja á Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum síðastliðinn laugardag. Markús Þór Andrésson er sýningarstjóri.Listasafn Reykjavíkur
Listakonan Hekla Dögg Jónsdóttir opnaði sýninguna 0° 0° Núlleyja á Kjarvalsstöðum um síðustu helgi. Margt var um manninn á opnuninni þar sem listunnendur sameinuðust og gerðu sér glaðan og skapandi dag.
Hekla Dögg (f. 1969) er sjöundi listamaðurinn sem valinn er til þátttöku í sýningaröð Listasafns Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum, þar sem farið er yfir feril lykilpersóna í íslensku listalífi.
„Hvert og eitt þeirra er valið með tilliti til einstaks framlags þeirra og sérhæfingar á sínu sviði, bæði hvað viðvíkur miðlum, aðferðum og viðfangsefnum. Slík stöðutaka á sér stað í framsetningu lykilverka frá ólíkum tímum í Vestursal Kjarvalsstaða og útgáfu sýningarskrár þar sem fjallað um ferilinn í samhengi listasögunnar og samtímans. Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson,“ segir í tilkynningu frá safninu.
Þá er verkum Heklu Daggar líst sem hverfulum leik á mærum hin hversdagslega og hins töfrandi „þar sem óvæntar ummyndanir bjóða okkur að upplifa tilveruna í nýju ljósi“. Sýningin stendur til 29. febrúar 2024.
Hér má sjá vel valdar myndir frá opnuninni:
Hekla Dögg Jónsdóttir ásamt móður sinni.Listasafn ReykjavíkurMarkús Þór Andrésson sýningarstjóri, Hekla Dögg Jónsdóttir myndlistarmaður og Ólöf K. Sigurðardóttir safnstjóri.Listasafn ReykjavíkurAriana Katrín Katrínardóttir og Claus Sterneck.Listasafn ReykjavíkurHekla Dögg Jónsdóttir opnaði sýninguna 0° 0° Núlleyja með pomp og prakt.Listasafn ReykjavíkurAllar kynslóðir sameinuðust á Kjarvalsstöðum síðastliðinn laugardag og nutu listarinnar. Listasafn ReykjavíkurSýningunni er líst sem hverfulum leik á mærum hin hversdagslega og hins töfrandi. Listasafn ReykjavíkurFólk gerði sér glaðan og skapandi dag á Kjarvalsstöðum.Listasafn ReykjavíkurOtho og Erna GunnarsdóttirListasafn ReykjavíkurHekla Dögg er með sýninguna í Vestursal Kjarvalsstaða.Listasafn ReykjavíkurNathalia Druzin Halldórsdóttir og Dorothée Kirch.Listasafn ReykjavíkurIngibjörg Sigurjónsdóttir, Ingibjörg Hannesdóttir og Markús Þór Andrésson.Listasafn ReykjavíkurÞessar glæsilegu konur voru í góðum gír á opnuninni. Listasafn Reykjavíkur. Sigrún Hrólfsdóttir og Hallgrímur Helgason létu sig ekki vanta.Listasafn ReykjavíkurBerghildur Erla Bernharðsdóttir og Börkur Edvardsson.Listasafn ReykjavíkurGuðrún Erla Geirsdóttir og Ragnheiður Elísabet. Listasafn ReykjavíkurListasafn ReykjavíkurNína Guðrún Baldursdóttir, Maríanna Eva Dúfa Sævarsdóttir og Mirra Elísabet Valdísardóttir allar hjá Listasafni Reykjavíkur. Listasafn ReykjavíkurÁsdís Spano og Edda Halldórsdóttir.Listasafn ReykjavíkurJoe Keys og Hákon Bragason og Hjalti Freyr Ragnarsson.Listasafn ReykjavíkurÓlöf K. Sigurðardóttir safnstjóri með erindi.Listasafn ReykjavíkurLíf og fjör!Listasafn ReykjavíkurFjöldamargir kíktu við á sýningaropnun Heklu Daggar.Listasafn ReykjavíkurHekla Dögg teygir á hugmyndum okkar um „hér og nú“ og notar listina sem frjálst og opið rými þar sem hver og einn markar sér eigin viðmið.Listasafn ReykjavíkurBananaskúlptúrar hafa vakið athygli í samtímalistinni og er eftirminnilegt þegar að banani festur upp á vegg á listahátíðinni Art Basel í Miami sló algjörlega í gegn. Listasafn ReykjavíkurHekla Dögg notast við fjölbreytta miðla í listsköpun sinni.Listasafn ReykjavíkurHjalti Freyr skoðar listina gaumgæfilega. Listasafn ReykjavíkurLeikgleðin var sannarlega til staðar á laugardaginn.Listasafn ReykjavíkurMarkús Þór Andrésson sýningarstjóri og Ólöf K. Sigurðardóttir safnstjóri taka á móti gestum.Listasafn Reykjavíkur