Viðskipti innlent

Vilja opna nýja kvennaálmu í Krýsu­vík

Jakob Bjarnar skrifar
Steingrímur Arnar og hans fólk hjá Fossum hringja Takk daginn inn.
Steingrímur Arnar og hans fólk hjá Fossum hringja Takk daginn inn. aðsend

Fossar fjárfestingarbanki hringdu inn Takk daginn svonefndan í dag en að þessu sinni styrkir bankinn Krýsuvíkursamtökin en markmið þeirra er að opna nýja kvennaálmu.

Afrakstur þóknunargjalda Fossa renna til einhvers tiltekins málefnis og að þessu sinni eru það Krísuvíkursamtökin sem njóta góðs af því. Auk Fossa taka Kauphöllin (Nasdaq Iceland) og uppgjörsfyrirtækið T Plús þátt í „Takk deginum“ með því að fella niður öll gjöld af viðskiptum Fossa innan dagsins sem renna þá til söfnunarinnar. Að auki gefur auglýsingastofan TVIST vinnu sína sem tengist deginum.

Mikil ánægja hefur verið með framtakið frá upphafi og vöxtur í söfnuninni frá ári til árs. Á síðasta ári söfnuðust 23,9 milljónir króna sem runnu til Píeta samtakanna og árið áður söfnuðust 21,6 milljónir sem runnu til Jafningjaseturs Reykjadals. Hér er því um að ræða upphæðir sem skipta máli. Samtals hefur á þessum árum safnast um 90 milljónir króna.

„Viðskiptavinir okkar eru virkilega jákvæðir í garð söfnunarinnar og hafa lagt sitt af mörkum til þess að vinna að því sameiginlega markmiði að fjölga plássum og opna nýja kvennaálmu í Krýsuvík.Fólk er greinilega meðvitað um mikilvægi þess að styrkja þetta mikilvæga úrræði og stytta biðlista, sem ógna heilsu og lífi fólks,“ segir Steingrímur Arnar Finnsson, forstjóri bankans.

Eins og áður segir hefur söfnunin skilað inn tugum milljóna og Steingrímur Arnar segir þau þakklát fyrir stuðninginn.

„Auk þess vegur þungt þáttur viðskiptavina sem hafa lagt söfnuninni lið með beinum framlögum inn á reikning söfnunarinnar. Við bindum miklar vonir við geta nýtt þessar síðustu klukkustundir sem eftir eru af söfnuninni til þess að slá metið síðan í fyrra,“ segir Steingrímur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×