Innlent

Færri leituðu til Stíga­móta og fækkar á bið­lista

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Drífa Snædal tók við sem talskona Stígamóta árið 2023.
Drífa Snædal tók við sem talskona Stígamóta árið 2023. vísir/vilhelm

Færri einstaklingar leituðu til Stígamóta árið 2023 en árin tvö þar á undan. Þá hefur fækkað nokkuð á biðlista sem lengdist töluvert árin 2021 og 2022.

Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum Stígamóta. Þar segir að 839 manns hafi leitað til samtakanna í fyrra en Stígamót eru ráðgjafar- og fræðslumiðstöð sem vinnur gegn kynferðisofbeldi. Af þeim fjölda leituðu 373 til samtakanna í fyrsta skipti.

Heildarfjöldi ráðgjafarviðtala á síðasta ári var 3.212 en hjá Stígamótum vinna að jafnaði tíu til ellefu ráðgjafar. Í tilkynningu frá Stígamótum segir Drífa Snædal, talskona Stígamóta, að í lok árs 2023 hafi ráðgjöfum verið fjölgað tímabundið til að vinna niður biðlista. Hlutastörf og fæðingarorlof í upphafi árs höfðu áhrif á viðveru ráðgjafa. 

Um nýliðin áramót voru 169 manns á biðlista hjá Stígamótum samanborið við 235 og 200 áramótin tvö á undan.

„Þetta þýðir að enn er rúmlega tveggja mánaða bið eftir fyrsta viðtali hjá Stígamótum þó vissulega séu gerðar undantekningar ef málin þola enga bið. Það á einkum við um ungar konur, brotaþolar hvers mál eru í hámæli í fjölmiðlum og þeirri streitu sem því fylgir og fólk sem eru að reyna að brjótast úr vændi. “

Færri leituðu til Stígamóta í fyrra en árin tvö á undan.

Stígamót hafa síðustu ár boðið uppá viðtöl við aðstandendur brotaþola og á síðasta ári leituðu 102 nýir aðstandendur til Stígamóta. 

„Eðli málsins samkvæmt fá þeir ekki mörg viðtöl hver, en það getur verið gríðarleg hjálp fyrir brotaþola að nánustu aðstandendur komi, þó ekki sé nema í eitt skipti til að fá ráðgjöf um afleiðingar kynferðisbrota.“ 

Drífa segir að í kjölfar aukinnar umræðu og þekkingar á ofbeldismálum með fjölda lítilla og stórra byltinga upp úr árinu 2016 hafi ásókn til Stígamóta aukist mjög hressilega. Aðsókn hafi haldist mikil og stöðug síðustu árin. 

„Það var brotið blað í sögu Stígamóta þegar nauðsynlegt reyndist að koma upp biðlista árið 2020 og síðan hefur verið sífelld barátta að stytta hann og útrýma. Ráðgjöfum hefur fjölgað síðustu ár og hefur það verið fjármagnað með frjálsum framlögum einstaklinga og fyrirtækja. Án þeirra fengju helmingi færri brotaþolar aðstoð hjá Stígamótum á hverju ári.“ 


Tengdar fréttir

Segir Borgar­leik­húsið ekki virða óskir þol­enda Heiðars

Talskona Stígamóta segir leikstjóra og leikskáld verksins Lúnu, áður Kvöldstund með Heiðari snyrti, og Borgarleikhúsið ekki fara með rétt mál hvað varðar viðhorf og aðkomu þolenda Heiðars að sýningunni og innihaldi hennar.

Guðrún Jónsdóttir er látin

Baráttukonan Guðrún Jónsdóttir er látin 91 árs að aldri. Hún fæddist þann sextánda júní 1931 og lætur eftir sig eina dóttur, Ragnheiði Thorlacius, fyrrverandi héraðsdómara. Hún lést í gær á hjúkrunarheimilinu Móbergi á Selfossi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×