„Þetta er dálítið sérstök staða sem nú er í gangi. Við erum auðvitað með allan þennan snjó, og það er enn að snjóa suðvestanlands í kvöld og nótt með þessum éljum,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur hjá veðurvaktinni og Blika.is.
„Úti á Grænlandshafi er dálítil gömul lægð, hálofta-, köld lægð og svo er önnur sem er í miklum vexti suðaustur af landinu og kemur ekki hér við sögu, en hún eiginlega ryksugar þessa til sín. Þegar það gerist um miðjan dag á morgun þá skellur hér á okkur dálítill vestanstrengur. Frá Snæfellsnesi, við Faxaflóa, Suðurnesjum og á Suðurlandi, austur fyrir Eyjafjöll og Mýrdal. Það er bara þannig, ef það er útlit fyrir einhverja 15 til 20 metra á sekúndu, að þessi snjór fer bara allur af stað og gerir bara skafrenning,“ segir Einar.
Rætt var við hann í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.
Útlit sé fyrir að veðrið byrji að versna á Suðurnesjum rétt fyrir hádegi. Þá verði mjög blint og skafrenningur, og jafnvel él og snjókoma. Gera megi ráð fyrir því að umferð fari úr skorðum á meðan veðrið gengur yfir.
„Þetta er í svona þrjá tíma yfir miðjan daginn, og aðeins seinna og fram á síðdegi austur í sveitum.“
Veðrið muni fara um suðvestanvert landið og austur með ströndinni.
„Það hvessir líka austur við Klaustur og austur við Skaftafell, á Öræfum og þar. Það er þá frekar undir kvöldið. En mér sýnist þetta ætla að verða verst hér á Suðurnesjum.“

Færir vegir fljótir að fyllast
Vegagerðin hafi lýst yfir óvissuástandi frá klukkan 9 í fyrramálið. Víða sé búið að ryðja vegi, en ekki muni líða að löngu þar til illfært, eða jafnvel ófært, verði um vegi á þeim svæðum sem veðrið gengur yfir.
„Það komast allir til vinnu og skóla í fyrramálið. Það er fínasta veður fyrst í fyrramálið, áður en þetta brestur á.“
Þó sé nokkur óvissa um tímasetningar.
„Það er nokkuð tryggt að það komi til með að hvessa. Nákvæmlega hvenær það verður, það er líklegt að það veðri um miðjan daginn, jafnvel aðeins fyrr.“
Fólk verði að fylgjast vel með veðurfréttum í kvöld og líta eftir mögulegum breytingum á veðurspám.
„Og helst að vera ekkert á ferðinni. Hvorki innan bæjar né utan, svona á meðan þetta er verst.“
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi í kvöld frá sér tilkynningu þar sem varað var við skafrenningi, éli og snjókomu fyrir hádegi og þar til síðdegis.“
„Bæði verður blint og hætt við verulegri ófærð jafnt innan bæjar sem á vegum.
Hálka í kortunum
Til lengri tíma litið megi búast við því að hlýni stuttlega á fimmtudag. Síðan frysti ofan í það, með tilheyrandi hættu á fljúgandi hálku.
„Þetta er erfitt vetrarástand. Flughálka og alls konar í þessu. Svo í lengri framtíð sjáum við einhverja norðanátt. En fyrst og fremst erum við að horfa á þetta á morgun, því skafrenningur í þéttbýlinu suðvestanlands, hann hefur mjög mikil áhrif þegar snjórinn fer af stað.“
Dregur úr vindi annað kvöld
Gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir höfuðborgarsvæðið, Suðurland, Faxaflóa og Breiðafjörð frá og með hádegi á morgun.

Í hugleiðingum veðurfræðings af vef Veðurstofu Íslands segir að búast megi við vestan kalda eða strekkingi á morgun og éljum.
„Um hádegi er útlit fyrir að það hvessi á sunnanverðu landinu, hvassviðri eða stormur þar síðdegis og varasamt ferðaveður. Þessi vestan strengur hefur verið nokkuð á reiki í spám síðustu daga og er fólk hvatt til að fylgjast með veðurspám. Annað kvöld dregur svo úr vindi og ofankomu.“
Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að óvissustig verði í gildi á fjölda vega, og þeir geti lokað með stuttum fyrirvara. Vegirnir eru eftirfarandi:
- Hellisheiði
- Þrengsli
- Mosfellsheiði
- Kjalarnes
- Hafnarfjall
- Suðurstrandarvegur
- Reykjanesbraut
- Grindavíkurvegur
- Lyngdalsheiði
- Akrafjallshringur
- Borgafjörður
- Hvalfjörður
- Mýrar
- Hringvegur (1) milli Hveragerðis og Markarfljóts
- Uppsveitir Suðurlands
- Árborgarhringur
Þá verður Krýsuvíkurvegi lokað klukkan 6:00 í fyrramálið.